Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 3
Efnisyfirlit
5 Upplýsingatækni í
sjávarútvegi á íslandi
Páll Jensson
8 Hvar eigum við heima?
HaukurOddsson
10 Tölvuvinnsla í frystitogara
Víðir Ólafsson
11 Upplýsingakerfi fyrir
sjófarendur
Steingrímur Gunnarsson
14 Að róa á mið upplýsinga
Þorvaldur Baldurs
21 Fiskvinnslu- og
sjávarútvegskerfið
Útvegsbankinn og Hafsjór
Jón Örn Guðbjartsson
24 Macsea
skipstjórnarbúnaðurinn
Kristján Gíslason
27 Tölvusamskipti og
útflutningur
Sigurður Ingi Margeirsson
29 Framleiðslueftirlitskerfi fyrir
fiskvinnslu
Sigurpáll Jónsson
34 Tölvusvið Fiskistofu
Auðun Sæmundsson
40 Hafdís
Bjarni Hákonarson
42 Tölvukerfi Haraldar
Böðvarssonar hf., Akranesi
Sturlaugur Sturlaugsson og
Óskar Einarsson
Ritstjórnarpistill
Þótt það hafi stundum heyrst að allir íslendingar
gætu vel lifað af því að selja hver öðrum varning þá
er það nú samt staðreynd að sjávarútvegur er undir-
stöðuatvinnuvegur þjóðarinnar. Vegna hans er landið
byggilegt og vegna hans er hægt að halda uppi þeim
lífskjörum sem við erum vön.
Oft á tíðum virðist einnig það sama gilda um
upplýsingatækni hér á landi. Mikið hefur til dæmis
borið á hugbúnaði fyrir verslun, bókhald og því um
líku.
Þó ekki sé ástæða til að gera lítið úr því þá hefur
minna borið á þeirri starfsemi sem er í kringum
upplýsingatækni fyrir sjávarútveginn. En þegar betur
er að gáð má sjá að reyndar er margt þar um að velja.
Þetta tölublað Tölvumála er helgað upplýsinga-
tækni í sjávarútvegi. Kennir þar margra grasa. Leitast
er við að fjalla um þetta efni frá sem flestum hliðum.
Því er hér að finna greinar frá framleiðendum og
seljendum búnaðar. Einnig eru greinar frá fisk-
verkunarstöðvum í landi, frá útgerðinni og frá helstu
seljendum afurðanna. Þar að auki frá þeim sem
stunda rannsóknir á þessu sviði svo og frá tengdum
greinum. Lesendur geta með lestri þessa blaðs
sannfærst um það sem marga gat grunað að ýmislegt
er að gerast í upplýsingatækni fyrir sjávarútveginn.
Magnús Hauksson
v________________________________________________________y
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Auglýsingar:
Átak hf., S. 568 2768
Umbrot: Svanildur Jóhannesdóttir
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Ritstjóri og ábm.:
Magnús Hauksson
Aðrir ritnefndarmenn:
Bergþór Skúlason
Gísli R. Ragnarsson
Ingibjörg Jónasdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi íslands.
Tölvumál - 3