Tölvumál - 01.04.1995, Page 6
Apríl 1995
anna framlegð og flöskuháls í
framleiðslu. Mikilvægi svonefndra
“skuggaverða” varð einnig ljósara.
Nú þegar bestun er orðin innbyggð
í töflureikna, t.d. Solver í Excel,
má gera sér vonir um að stutt sé í
almenna notkun bestunarlíkana við
framleiðslustjómun í fiskvinnslu.
Tölvuvogirog
tölvusjón
Hráefni fiskvinnslu er og hlýtur
ávallt að vera afar breytilegt eins
og í mörgum öðrum tegundum
matvælaiðnaðar. Magn, gæði og
aðrir eiginleikar eru hendingum
háðir en ekki þekktir með tilteknum
vikmörkum eins og í öðrum iðn-
greinum. Það hefur því alltaf verið
mikil þörf fyrir nákvæmar vigtanir
í fískvinnslu.
Fyrir rúmlega 10 árum byrjuðu
bæði Marel hf., sem varð til úr
þróunarsamvinnu Raunvísinda-
stofnunar Háskólans (Páll Theó-
dórsson, Rögnvaldur Ólafsson
o.fl.) og Framleiðni sf. og Póls hf.
(nú Póls rafeindavörur hf.) á ísa-
firði að þróa og selja tölvuvogir,
þ.e. vogir byggðar á notkun raf-
eindatækni, sjá[5]. Tölvuvogimar
buðu upp á meiri hraða og ná-
kvæmni og ýmsa nýja möguleika,
sem varð til þess að fram komu
flokkarar, samvalsvogir, sjóvogir,
safntölvur fyrir skráningar o.fl.
tæki fyrir fiskvinnslu.
Samvalsvogir em gott dæmi um
hagnýtingu reikni- og upplýsinga-
tækni í fiskvinnslu. Fiskflök berast
eftir færibandi að tölvuvog, sem
vigtar þau og tekur á örskammri
stundu ákvörðun um hvert beina
skuli hverju flaki, þ.e. ofan í hvert
af X hólfum samvalsvogarinnar.
Markmiðið er að velja saman flök
í pakka þannig að uppgefmn þungi
pakka náist með að jafnaði sem
minnstri yfirvigt. Samstarf hefur
verið milli Marel hf. og Háskólans
(undirritaðs o.fl.) um að endurbæta
reiknirit samvalsvoga, en það
byggir m.a. á líkindafræðilegum
aðferðum. í dag er þessi fram-
leiðsla oft nefnd sem dæmi til
hvatningar um að vissulega er hægt
að þróa hátæknilegan búnað fyrir
sjávarútveg hér á landi og flytja út.
Marel hf. er um þessar mundir að
reyna að komast inn á nýja mark-
aði í kjúklingavinnslu og fram-
leiðslu svínakjöts m.a. í Banda-
ríkjunum. Nýjustu söluvörurnar
byggja á tölvusjón sem notuð er
m.a. til formflokkunar.
Hjá Upplýsinga- og merkja-
fræðistofu Háskólans (Sigfús
Bjömsson o.fl.) er verið að rann-
saka ýmsa aðra möguleika tölvu-
tækninnar. Nefna má leysisskann-
tækni til mælinga m.a. á eðlisein-
kennum í fiskholdi [6] og Sniðil,
sem er leysitækni til tölvustýrðs
niðurskurðar á fiskflökum [7]. Á
Raunvísindastofnun Háskólans og
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
er verið að reyna að gefa tölvunum
lyktarskyn [8]. Það hyllir sem sagt
undir vélmenni, sem geta séð,
þefað, hlustað, talað og skorið,
snyrt, vigtað og pakkað fiski.
Mannlausar vinnulínur í frysti-
húsum eru í sjónmáli.
Samhæfing tölvukerfa
Um 1985 varð mörgum ljóst að
tölvukerfi fyrstihúsa voru ósam-
stæð og virkuðu ekki saman. Sem
dæmi má taka fyrirtæki með bók-
hald og bónuskerfi á miðlægri
tölvu frá einum hugbúnaðarsala,
framlegðarkerfi á einkatölvu frá
öðrum, tölvuvogir og safntölvu frá
Marel og e.t.v. önnurtæki frá Póls.
Háskólinn (undirritaður, Pétur
K. Maack, Snorri Agnarsson o.fl.)
hafði þá frumkvæði að tveimur
samvinnuverkefnum íjölmargra
aðila, þar sem upplýsingakerfm og
samskipti milli þeirra voru fyrst
greind og síðan samdar samræmd-
ar lýsingar á gagnaflæði og skilum
milli kerfishluta og tillögur að
stöðlum um skilin, sjá [9] og [10].
Hugtök í framleiðslustjórnun,
gæðastjórnun og framlegðarút-
reikningum voru skilgreind og
samræmd. Að verkefnunum stóðu
auk Háskólans ýmis hugbúnaðar-
og tölvufýrirtæki, þ.á.m. Þróun hf.,
en einnig Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Islenskar sjávarafurðir
hf.
Hugmyndin var og er enn sú
framtíðarsýn að bjóða megi á erl-
endum mörkuðum íslensk tölvu-
kerfi frá ýmsum aðilum, sem öll
virki vel saman. I framhaldi af
þessum verkefnum eru Háskólinn
(undirritaður, Rögnvaldur Ólafs-
son og Snoiri Agnarsson) og Marel
nú aðilar að norrænu verkefni
BENEFISK, þarsemm.a. erunnið
að samhæfingu gagnaflæðis milli
einstakra kerfíshluta, sjá [11].
Gæðastjórnun hefur á síðustu
árum verið ofarlega á baugi í at-
vinnulífinu og einnig í rannsóknum
og kennslu hjá Háskólanum, sam-
anber t.d. Quality Fish verkefni
(Pétur Maack o.fl., sjá heimild
[12]. Aukináherslaágæðastjómun
hefur leitt til þess að fram hafa
komið nýjar kröfur til upplýsinga-
kerfa um rekjanleika framleiðsl-
unnar, og hefur það einnig verið
rannsakað í BENEFISK verk-
efninu.
Tölvur um borð í
fiskiskipum
Hver hefði trúað því fyrir tíma
örtölvubyltingarinnar, sem varð
fyrir tæpum 20 árum, að tölvur
yrðu ómissandi fyrir skakara? Um
árabil hefur fyrirtækið DNG á
Akureyri framleitt handfæravindur
sem eru tölvustýrðar. Það er at-
hyglisvert að minnstu skipin nýttu
sér tölvutæknina jafnvel fyrr en
mörg hinna stærri. En stærri skipin
hafa svo sannarlega tekið við sér
og tölvuvæðst þótt tregðu hafi gætt
í fyrstu.
Fyrir tæpum áratug lauk Há-
skólinn (undirritaður, Kristján Jón-
asson, Oddur Benediktsson o.fl.)
þróun tölvukerfís sem nefnt var
Útgerðarráðgjafmn, en það var að
6 - Tölvumál