Tölvumál - 01.04.1995, Síða 10
Apríl 1995
Tölvuvinnsla í frystitogara
Eftir Víði Ólafsson
Haustið 1994 kom ný Guðbjörg
til ísafjarðar. Þar um borð má fmna
flest það sem þekkist í dag í sam-
bandi við tölvunotkun til sjós. Við
erum með þrjár megingerðir af
tölvum þ.e. PC vélar, Macintosh
og PLC stýritölvur.
Notkunin á þessum vélum er
mjög mismunandi allt frá ritvinnslu
til keyrslu á aðvörunarkerfum eða
siglingafræði.
Ef við byrjum á vélarrúminu þá
erum við með eina Power Mac vél
sem við notum aðallegatil keyrslu
á viðhalds- og lagerforritinu MSS
VerkVaki frá Fjarhönnun hf. Þar
höfúm við yfirsýn yfír allt reglulegt
viðhald og eftirlit ásamt því að gera
pantanir og halda utan um vara-
hlutalager skipsins. Sambærilegt
kerfí var í gömlu Guðbjörginni frá
1989 og gaf mjög góða raun.
Einnig höfum við eina PC vél
en hún er notuð til þriggja hluta.
Aðalverkefni fyrir hana er að vera
einskonar eftirlitsstöð á aðvörunar-
kerfið fyrir skipið. Aðvörunar-
kerfíð er af gerðinni Lyngsö Ma-
rine og er danskt. Það er tölvustýrt
og er keyrt á sérstakri tölvu sem er
innbyggð í kerfíð. Við höfum síðan
samband við kerfíð um 5 panela í
brú, vél, borðsal og vélstjóra-
klefum. PC tölvan er í vaktklefan-
um og með henni er hægt að kvitta
fyrir aðvörunum, skoða aðvaranir
aftur í tímann, skoða súlurit yfír
afgashita aðalvélar og ýmislegt
fleira.
Með henni má einnig ná í upp-
lýsingar um hitastig í frystilest.
Þeim upplýsingum er safnað inn á
svokallaðann "data logger" og
geymir hann aflestur af 6 hita-
mælum á klukkutíma fresti í 30
daga. Með því að tengja loggerinn
inn á tölvuna getum við náð í
þennan aflestur og látið hana birta
hann t.d. í grafí eða sem Excel skrá.
Að lokum erum við með forrit
inni á henni sem kallast Dicare.
Með því er fylgst með ástandi aðal-
vélarinnar. Aðvörunarkerfið er
notað til að keyra nánast öll gildi
sem hægt er að mæla á vélinni inn
í dicare forritið og síðan þarf að
færa nokkur inn handvirkt. Að því
loknu fer forritið yfír ástandið og
ber það saman við ástand á nýrri
vél. Ef einhver gildi eru komin út
fyrir viðmiðunarmörk þá er látið
vita af því og einnig bent á hvað
getur valdið skekkjunni. Að lokum
er bent á leiðir til úrbóta. Með
þessu má segja að maður fái mikið
af þeirri reynslu sem safnast hefur
hjá vélaframleiðandanum með vél-
inni og getur það stuðlað að því
að vélin fái nákvæmara og betra
viðhald en ella.
Á millidekkinu er ein PC vél
sem sér um að merkja fiskkassana
áður en þeir eru látnir niður í lest.
I tölvunni eru geymdar merkingar
fyrir allar tegundir pakkninga. Sá
sem er í því að setja öskjumar í
kassa þarf að velja hvaða merkingu
á að nota hverju sinni. Þegar kass-
inn er látinn á færibandið að bindi-
vélinni, kemur hann að skynjara
sem lætur tölvuna vita af kass-
anum, hún setur þá bleksprautu-
prentara sem eru í hliðum færi-
bandsins í gang og þeir merkja
kassann með tegund, framleiðslu-
degi og síðasta söludegi. Jafnframt
heldur tölvan utan um íjölda kassa
af hverri tegund sem hafa farið
niður í lest.
I brúnni eru 5 tölvur. Tvær af
þeim eru notaðar sem plotterar
fyrir feril skipsins. Það er bæði
McSea og Seaplot sem eru lang al-
gengustu forritin til þess. Ásamt
því að skrifa og vista feril skipsins
þá hafa skipsstjórnarmennirnir
vistað í þeim heilan hafsjó af fróð-
leik um botninn á allri fískislóðinni
í kring um landið. Bæði dýpi, festur
og annað sem að gagni má koma.
Einnig eru komin siglingakort á
geisladisk inn á McSea tölvuna og
er þá hægt að hafa kortið uppi á
skjánum og, ef svo mætti segja,
sigla í kortinu.
Togspilum skipsins er stjómað
með PC vél með snertiskjá og hægt
er að framkvæma flestar aðgerðir
með því að benda á skjáinn.
Þetta kerfí er íslenskt frá Raf-
boða Rafur hf. en þeir eru gamal-
reyndir í hönnun kerfa til sjálf-
virkrar stýringar togspila.
Fjórða tölvan í brúnni er notuð
við telex tæki sem sendir og tekur
við skeytum um gervihnött. Al-
gerlega ómissandi tæki þegar verið
er að veiðum á djúpslóð þar sem
ekkert símasamband er.
Að lokum er í brúnni tölva sem
er notuð í ýmislegt svo sem að
halda utan um aflamagn og sam-
Frh. á nœstu síðu.
10 - Tölvumál