Tölvumál - 01.04.1995, Blaðsíða 12
Apríl 1995
. Mællgöan eru send tll
Veöurstofu íslands
og,Vlta-og hafrtqmála-
skrifstofunnar um símakerflö
| HORNAFJORÐUR
•ao vio Miwr.
.■....•••■ [' I i
Safnstoö hjá hafnarvog.
Q Talgervlll
Fastlfnusamband
5 ,;?][ , t” .. .,. • - ‘ . .;:i' . fc
Mælistöö
'y .Sjávárskynjarar-
ISr -
ÍpSHpBn°
’ ; ' L
,w*>
Öldudufl
N» •
Mynd 1 Mœlikerfi á Höfn í Hornafirði
ákveðin mörk. Nú geta sjófarendur
fengið nákvæmar upplýsingar um
veður og sjólag við ósinn með því
að hringja í talgervilinn. Sjómenn
hafa nýtt sér þessar upplýsingar og
íýrstu 6 mánuðina voru símtölin
um 250 á viku. Annað dæmi um
notkun talgervilsins er á Grundar-
tangahöfn. Þar er ekki samfelld
hafnsöguvakt, en hins vegar er þar
hafnastöð og tveggja línu talgervill
(á íslensku og ensku) með veður-
upplýsingum sem uppfærðar eru á
10 mín. fresti.
Tenging stöðva
Við hönnun kerfisins var lagt
út frá því að hafnastöðvar gætu
hringt í aðrar hafnastöðvar og sótt
þaðan gögn. Kerfið er því ómið-
lægt í þeim skilningi að hægt er að
skilgreina hvaða stöð sem er sem
upphringistöð hjá öðrum stöðvum.
Sem dæmi um slíka uppsetn-
ingu má nefna hafnarkerfið í
Grindavík. Þar
geta hafnsögu-
menn fylgst
með veðri frá
kerfinu í Þor-
lákshöfn, auk
þess sem upp-
lýsingar um
ölduhæð frá
öldudufli út af
Garðskaga fást
í gegnum mót-
takara í Sand-
gerði. I Þor-
lákshöfn eru
svo aftur sótt
gögn frá
Grindavík auk
ölduhæðar frá
dufli við Vest-
mannaeyjar.
Ýmsir aðil-
ar eru tengdir
við upplýsinga-
kerfíð og sækja
reglulega gögn
þaðan;
- Stöðvadeild Veðurstofunnar
hringir sjálfkrafa á klukkutíma
fresti í stöðvarnar á annesjum
og í hluta af hafnastöðvunum.
- Vita- og hafnamálstofnun
safnar upplýsingum um öldu-
hæð og sjólag í kringum landið.
- Sjómælingaríslandshafabein-
tengingu við mælistöð í
Reykjavíkurhöfn. Flóðhæðar-
mælingar í Reykjavíkurhöfn
eru grunnur að sjávarfallatöflu,
sem Sjómælingar gefa út
árlega.
Annað sam-
bærilegtveður-
athugunarkerfi,
sem Hugrún hf.
er aðili að, er
rekið af vega-
eftirliti Vega-
gerðarinnar.
Vegagerðin
hefur fram að
þessu látið setja
upp eigin mæli-
stöðvar við þjóðvegi víðs vegar um
land, en það kerfi hefur einnig
aðgang að nokkrum stöðvum í
hafnakerfmu. Margir möguleikar
eru á samnýtingu veðurstöðva sem
reknar eru af hinum ýmsu aðilum.
Margvísleg verkefni
Margir rannsókaraðilar nota
gögn frá mælistöðvunum. Jarð-
eðlisfræðideild RHÍ og Vita- og
hafnamálstofnun hafa samvinnu
um langtímamælingar á sjávar-
borði og landrisi. í tengslum við
það verkefni hafa verið settar upp
mælistöðvar með sérstökum
kvörðunarbúnaði umhverfis
landið, sumar hverjar við afar
erfiðar aðstæður. Sumar hafna-
stöðvanna hafa einnig slíkan
kvörðunarbúnað. Tilgangurinn
með því verkefni er að fá nákvæmt
mat á meðalsjávarhæð, en vegna
breytinga á afstöðu tungls og
jarðar er venjulega miðað við
a.m.k. 19 ára samfelldar mælingar.
Annað verkefni í tengslum við
mælikerfið er athugun á öldugangi
í höfnum. Þá er mælt samfellt á
hverri sekúndu með þrýstinemum
og upplýsingar sendar jafnóðum
frá mælistöð til tölvu, til úrvinnslu.
Hægt er að tengja nokkra þrýsti-
nema við hverja mælistöð. Nem-
arnir eru ýmist festir við bryggju
eða sökkt niður á sjávarbotn, innan
eða utan hafnar. í úrvinnslunni eru
merkin tíðnigreind, leiðrétt og síuð
og þannig fæst mat á öldugangi og
Mynd 2 Blokkmynd af mælikerfi
12 - Tölvumál