Tölvumál - 01.04.1995, Page 13
Apríl 1995
Mynd 3 Yfirlitsskjámynd hjá hafnsögumönnum í Grindavík
sogum í höfninnni og þar með
öryggi skipa sem bundin eru við
bryggju. Gögn þessi eru mjög
mikilvæg fyrir ákvörðunartöku um
hafnarframkvæmdir.
Lokaorð
Upplýsingar um veður og sjó-
lag eru afar mikilvægar fyrir sjó-
farendur við ísland. Upplýsinga-
kerfi fyrir sjófarendur er hugsað til
að mæta hluta af þeirri þörf og það
hefur sýnt sig á þeim tírna sem
hafnastöðvarnar hafa starfað að
áhugi manna er mikill.
Sjálfvirkar veðurstöðvar geta í
mörgum tilfellum leyst hefð-
bundnar veðurathuganir af hólmi
og greiður aðgangur að gögnum úr
þeim eykur gildi stöðvanna.
Steingrímur Gunnars-
son er verkfræðingur
hjá Hugrúnu hf.
Punktar...
Stafrænt útvarp
I Svíþjóð eru nú að fara af
stað stafrænar útvarpssend-
ingar. Hljómgæði útvarpsins
verða svipuð hljómgæðum
geislaspilara og margar nýj-
ungar eru fyrirhugaðar. Eitt af
því sem verður kannski mögu-
legt er að tengja tölvuna við út-
varpið og taka á móti t.d.
veðurkortum. Eða nýjustu
upplýsingar af verðbréfa-
markaðnum. Einnig væri hægt
að hugsa sér að fá á skjáinn
söngtexta lagsins sem er verið
að flytja eða nótumar. Þá er
um það að ræða að tækið
“hlustar” á nokkrar rásir í einu.
Ein rásin er fyrir hljóðið, næsta
fyrir nótur og svo framvegis.
Reyndar er verið að vinna að
uppsetningu svipaðra kerfa
víðar. En útvarpstækin sjálf
eru dýr, að minnsta kosti í
fyrstu eða yfir 70.000 kr.
Tölvuleikir hættulegir
Það heyrðist af litlum strák
sem var með stóran skurð á
enni sem mikið blæddi úr. Sá
hafði lent í því að sannreyna
hvað tölvuleikir eru hættulegir.
Þeir voru tveir saman félag-
amir í tölvuleik sem fólst í því
að koma kappakstursbíl fyrst
í mark. Þeir gátu með aðstoð
tveggja stýripinna báðir tekið
þátt í leiknum samtímis. En
það var sama hversu oft þeir
reyndu með sér, alltaf vann sá
sami. A endanum varð hinn
svo reiður að hann þreif á loft
stýripinnan sinn og sló himi í
hausinn með honum.
Var þetta tölvuspilinu að
kenna eða getur þetta gerst í
hvaða leik sem er?
0.15
Tíðni [Hz]
Tími [klst]
Mynd 4: Tíðnirit af ölduhæð
Tölvumál - 13