Tölvumál - 01.04.1995, Page 28
Apríl 1995
SH um tölvutengingar. Slík verka-
skipting er aðeins möguleg með
víðtæku samskiptaneti og stuðlar
að því að gera fyrirtækið hæfara í
íjölþjóðlegu samstarfi.
Tölvupóstnotkun innan SH er
mjög mikil og víðtæk og festi sig í
sessi þegar fyrirtækin erlendis
komust í slíkt samband við fyrir-
tækið og er tölvupósturinn ómiss-
andi tæki í samskiptum og eykur
framleiðni hjá öllum þeim sem taka
hann í notkun. Tölvupóstur er
mikilvægt hjálpartæki hjá fyrir-
tækjum sem eru í íjölþjóðlegu sam-
starfi og tímamunur á milli sam-
starfsaðila er mikill eins og hjá SH,
getur verið frá 2 til 9 tímum.
Nýjasta útfærslan í notkun tölvu-
póstsins innan SH eru sendingar til
og frá frystitogurum og skiptir ekki
máli hvar þeir eru staddir því
tölvupósturinn er sendur með
aðstoð frá Inmarsat kerfinu.
Aðalkerfi SH er Fjölnir sem
hefúr verið aðlagaður umhverfi SH
og ennfremur eru minni útgáfur af
kerfinu hjá söluskrifstofum erl-
endis, þannig að allir sem vinna að
sölumálum nota sama kerfið en
það styrkir samskiptin í sölukerf-
inu og tryggir að allir hafa aðgang
að sömu upplýsingum. Nær allir
hlutar Fjölnis eru notaðir hjá SH
og hafa þeir verið aðlagaðir starf-
semi þess verulega. Fjölnir er
keyrður á öðrum netþjóninum. SH
kaupir og selur aðildarfélög n
sínum umbúðir og rekstararvönir
og til að halda utan um þessi við-
skipti eru notaðir hlutar úr Alvís-
kerfinu frá Kerfí hf. og er þetta
kerfi rekið á AS/400 tölvunni.
Öll samskipti á milli Fjölnis
kerfísins hér heima og erlendis eru
um tölvupóstkerfið á sjálfvirkan
hátt en þannig er gögnum miðlað
á milli kerfanna í ólíkum löndum.
Tíðni sendinga er breytileg allt frá
vikulega til þess að senda upp-
lýsingar strax og þær verða til.
Þetta er gert með aðstoð eiginleika
í tölvupóstkerfínu og ekki síst
stýrikerfísins sem er notað en það
er OS/2. Þetta stýrikerfi hefur verið
notað til að leysa mörg og flókin
verkefni hjá SH svo sem eins og í
samskiptum. Á sömu tölvunni er
verið að keyra mörg verkefni sam-
hliða sem sýnir íjölhæfni stýri-
kerfisins. Tölvupóstkerfið er
cc:Mail frá Lotus.
Samskiptin við söluskrifstofur
eru um búnað frá Eicon Technol-
ogy, en framleiðendur að hugbún-
aði tölvupóstkerfisins ganga út frá
að hægt sé nota m. a. samskipta-
búnað frá þeim. Ennfremur er
notaður hugbúnaður sem nýtir sér
þessi samskipti þannig að hægt er
að skrá sig inn á netkeífið erlendis
og taka yfir útstöðvar á netinu þar
og stýra þeim frá Islandi og það
skiptir ekki máli hvort viðkomandi
útstöð notar DOS/Windows eða
OS/2 stýrikerfi. Þetta er mjög
þægilegt ef einhver vandamál
koma upp sem þarfnast tafar-
lausrar úrlausnar. Öll forritin sem
notuð eru í þessu sambandi keyra
undir OS/2.
Framleiðendur sem selja
afurðir sínar í gegnum SH geta sótt
bæði sértækar og almennar upp-
lýsingar beint í Hafsjó sem er upp-
lýsingakerfi sem rekið er af Streng
hf. I Hafsjó geta aðilar nálgast
framleiðslu- og markaðsupp-
lýsingar, viðmiðunarverð á fram-
leiðsluvörum og margt fleira. Til
að koma upplýsingum á milli
Hafsjávar og SH er notuð sama
hugmyndin og í samskiptum við
söluskrifstofur erlendis en hún er
frábrugðin að því leytinu að notuð
er SQL-tenging við Fjölni sem
flytur gögn til og frá Informix
gagnagrunni Hafsjávar.
SH hefur haft frumkvæði að því
að innleiða samræmda strika-
merkingu á ytri umbúðum sam-
kvæmt stöðlum í íslenskum sjávar-
útvegi og er notaður EAN-128 til
þessa. Strikamerkið gerir öllum
kleift sem sýsla með vöruna, að
skrá hana auðveldlega og allur
rekjanleiki vöru verður mun þægi-
legri. Þegar vara er flutt út frá
framleiðanda er hún lesin inn í
flutningakerfi farmflytjanda sem
síðan sendir skráninguna til SH.
Þar eru útbúnir reikningar og skjöl
samkvæmt strikamerkjalestri.
Hagræðið af strikamerkinu er
ótvírætt fyrir framleiðendur innan
SH því einskráningin hefur leitt til
þess að hlutirnir ganga hraðar fyrir
sig og eru fyrr tilbúnir sem þýðir
að þeir sem eru í svokallaðri
greiðsluflýtingu, fá vöru greidda
viku eftir að varan fer frá landinu.
Allir hlutir gerast mun hraðar nú,
ferðir farmflytjenda eru tíðari og
sendingar eru smærri en fleiri til
viðskiptavina sem krefst þess að
fyrirtækið verður að ráða yfir öfl-
ugum og sveigjanlegum tölvusam-
skiptum.
Strikamerkjavæðingin hefur
leitt af sér aukagetu sem er útgáfa
kassamiða sem er merking á ytri
kassa. Framleiðendur sækja sér
skrá í Hafsjó þegar þá vantar lýs-
ingu á nýjum miða og prenta eftir
þörfum í stað þess að liggja með
margar gerðir af merkimiðum á
lager.
Nokkrir framleiðendur gefa
upp framleiðslu sína til SH í gegn-
um Hafsjó og er þá skrá sem fram-
leiðslu- og birgðakerfi fram-
leiðenda skilar af sér, lesin sjálf-
virkt inn í Hafsjó og síðan sótt um
SQL-tenginguna hjá SH. í gögn-
unum er m.a. númer tilbúins brettis
sem er í strikamerkinu en þetta
númer er síðan hægt að nota til að
fylgjast með afdrifum vörunnar,
svo sem hvenær varan er flutt út,
hvenær hún er greidd og hver
keypti hana. Framleiðendur munu
síðan fá þessar upplýsingar til baka
og geta þá lesið þær inn í kerfin
sín til frekari notkunar.
í þessum pistli hef ég leitast við
að varpa nokkru ljósi á hvernig
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
nýtir sér upplýsingatæknina og
tölvusamskipti við útflutning og
sölu sjávarafurða í hinum síminnk-
andi heimi.
Sigurður Ingi Margeirs-
son er deildarstjóri
tölvuþjónustu SH.
28 - Tölvumál