Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1995, Qupperneq 34

Tölvumál - 01.04.1995, Qupperneq 34
Apríl 1995 Tölvusvið Fiskistofu Eftir Auðun Sæmundsson Inngangur Fiskistofa var stofnuð 1. sept- ember 1992 og er því rúmlega tveggja ára. Fiskistofa annast dag- lega framkvæmd laga um stjórnun fiskveiða og eftirlit með fiskveið- um. Einnig hefur Fiskistofa með höndum eftirlit með framleiðslu og meðferð sjávarafurða. Fiskistofa annast söfnun, skráningu og úr- vinnslu upplýsinga á sviði sjávar- útvegsmála er varða stjórnsýslu á sjávarútvegssviðinu. Tölvudeild Fiskistofu þjónar þremur stofnunum sem eru sjávar- útvegsráðuneytið, Hafrannsókna- stofnunin og Fiskistofa. Starfs- menn þessara stofnana eru um 200, þar af starfa um 60 hjá Fiskistofu. Tölvudeild Fiskistofu á sér þó lengri sögu því hún var áður starf- rækt hjá Hafrannsóknastofnuninni. Þar hefur tölvutæknin verið nýtt í tugi ára t.d. vann höfundur þess- arar greinar við verkefni fyrir stofnunina árið 1973, þá sem starfsmaður Skýrr. Síðan fékk stofnunin sínar eigin tölvur. Fyrst var um að ræða PDP með RTll og RSX stýrikerfmu en fljótlega var Venix stýrikerfið sett á þær. Um 1983 komu DEC Professional vélar og var Venix einnig keyrt á þeim. HP/9000 vélar frá HP komu 1986 og voru þær með HPUX stýrikerfið. Fyrstu SUN vélamar (Sun 3/50) komu 1987-1988. Enn fremur rak sjávarútvegsráðuneytið umfangsmikla tölvustarfsemi áður en Fiskistofa var stofnuð og tók við umsjón með kvótakerfmu og þar með þeim tölvumálum sem tengjast því verkefni. Fiskistofa hefur samvinnu við ýmsar stofnanir t.d. Landhelgis- gæslu og Siglingamálastofnun og á tölvusviðinu hefur stofnunin samvinnu við Tölvuþjónustu sveitarfélaga varðandi skráningu og söfnun upplýsinga um landaðan afla gegnum tölvukerfið Lóðs. Ymis fýrirtæki og stofnanir eru tengdar tölvukerfí Fiskistofu til þess að þau geti fylgst sem nánast með kvótastöðu fiskiskipa og afla sem berst á land. Hér má nefna fískvinnslufyrirtæki, fiskmarkaði, hafnir, Fiskifélag Islands, dagblöð og tímarit, hagsmunasamtök o.fl. Menn geta bæði tengst með X.25 og Intemeti. Mynd 1 lýsir hvaðan gögn berast Fiskistofu til söfnunar og úrvinnslu. Á tölvusviði starfa nú 9 manns. Sviðinu er skipt í 3 deildir þ.e. hug- búnaðardeild, kerfísdeild ogþjón- ustudeild. Hugbúnaðardeild hefur umsjón með nýsmíði og viðhaldi á hugbún- aði, gerir t.d. innsláttarforrit fyrir ýmsar mælingar á vegum Hafrann- sóknastofnunarinnar, viðheldur kvótabókhaldskerfi og gerir ýmis forrit vegna úrvinnslu gagna og út- býr lista og skýrslur úr kvótabók- haldi. Kerfisdeild sér um uppsetningu og hefur urnsjón með netlögnum, netbúnaði og hugbúnaði fyrir vinnustöðvar og miðlara. Einnig sér deildin um uppsetningu vélbún- aðar og samskipti við tæknideildir Frh. afbls. 32. ingar fyrir tímaskráningu og 250 tímaskráningarstöðvar. Öll kerfin eru þjónustuð frá skrifstofu Marel í Reykjavík í gegnum mótalda tengingar. Á þann hátt má uppfæra hugbúnað, að- stoða notendur og laga ýmis vanda- mál á einfaldan hátt. Þar sem flest tækin eru skjátæki, einskonar heimskir skjáir, má jafnvel “skipta” um hugbúnað í vogum og skrán- ingarstöðvum í gegnum móaldið í stað þess að senda EPROM heims- homa á milli. Hugbúnaður og vélbúnaður hefur verið í sífelldri þróun frá því að verkefnið hófst í árslok 1991. Þessa dagana er verið að skoða verkfæri til að mæta kröfum not- enda um myndrænt viðmót. Einnig er verið að vinna í endurhönnun á gæðaskráningarhluta kerfísins en gæðamál eru ofarlega á baugi í fiskvinnslu um þessar mundir. Þó svo að Marel sé líklega í hugum flestra tengt vogum og tækjabúnaði, er hugbúnaður síst minni þáttur í framleiðsluvörum fyrirtækisins, en vélbúnaðurinn. í vogum, tækjum og kerfum Marel er það samspil öflugs rafeinda- búnaðar við sérhæfðan hugbúnað og gangöruggan vélbúnað, sem gerir þennan búnað að eftirsóknar- verðri vöru um allan heim. Sigurpáll Jónsson er deildarstjóri tækni- deildar Marel 34 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.