Tölvumál - 01.04.1995, Síða 43
Apríl 1995
Alvís - Utvegur
Mynd 2
haldi, aflabók, gæðakerfi, til verk-
bókhalds og lagerkerfís fyrir verk-
stæði.
Samskipti út á við
Nokkuð er um bein tölvusam-
skipti hjá HB. Fyrst er að nefna að
tengt við eina PC tölvu er mótald
og í gegnum það er verið í sam-
bandi við Hafsjó. Þetta tengisam-
band nýtist til samskipta við Sölu-
miðstöð Hraðfrystihúsanna og eru
send sjálfvirkt framleiðsluskeyti
frá birgðakerfi þar í gegn. Einnig
er lesið verð úr verðskrá, ásamt
yfirliti um bretti sem hafa verið
afreiknuð. Með þessari tölvu er
einnig haft samband við Inmarsat
vegna samskipta við skipin.
Upplýsingakerfi
fiskvinnslunnar
Upplýsingakerfi vinnslunnar
nær allt frá því að skip fara á sjó,
til þess að vara er afhent til útflutn-
ings. í vinnslunni er reynt að skrá
allar upplýsingar jöfnum höndum
og eins lögð áhersla á það að upp-
lýsingar séu skráðar þar sem þær
verða til og þá af þeim starfsmönn-
um sem vinna verkin. Mjög vel
hefur gengið að fá starfsmenn til
þess að tileinka sér þá tækni sem
til þarf og hafa þeir sýnt mjög
mikla samviskusemi við allar
skráningar. Þetta hefur síðan leitt
til þess að hægt er að treysta upp-
lýsingum sem skráðar eru niður.
Það er veruleg vinnuhagræðing í
því að láta “sérfræðingana” sem
hafa mesta þekkingu skrá niður
upplýsingamar jöfnum höndum og
ná þannig að útrýma skráningar-
eyðublöðum. Þess má geta að eftir
að starfsmenn í tækjum hófu að
skrá framleiðslu beint í tölvu og
halda utan um allar birgðahreyf-
ingar, er birgðastaða alltaf rétt og
er þar mikil breyting frá fyrri tíð.
Flæði upplýsinga
Þegar skip leggur úr höfn er
veiðiferð skipsins stofnuð í afla-
kerfi. Togararnir senda í land upp-
lýsingar á hverjum degi um þann
afla sem þeir hafa fengið. Þessar
upplýsingar eru skráðar jöfnum
höndum í upplýsingakerfið og er
af því veruleg hagræðing fyrir
vinnslustjómun. Einnig er í kerfinu
einföld reiknivél til þess að fram-
reikna og áætla afla til þess tíma
sem skipið kemur að landi og
landar afla sínum. 1 hráefniskerfmu
birtist dagatal þar sem fram kemur
yfirlit um þann afla sem er vænt-
anlegur, bæði það sem hefur verið
skráð frá skipinu, ásamt stöðu á
hráefnislager að morgni og er
þannig glögg yfirsýn yfír það
hráefni sem er til ráðstöfunar á
hverjum degi. Þegar horft er fram
í tímann er verið að vinna með
áætlunartölur, en þegar litið er
aftur í tímann, er um staðreyndir
að ræða.
Hráefni er ráðstafað jöfnum
höndum inn til vinnslu og það
skráð á sama tíma og sést þannig
hvemig vinnslan gengur fyrir sig á
hverjum degi.
Þessi yfirsýn er mjög mikilvæg
fyrir stjómendur og geta þeir því
fylgst með því á skrifstofu sinni
hvernig framleiðslan gengur. í
framhaldi af því að hafa fullkomn-
ar upplýsingar um afla er hægt að
gera áætlanir um vinnslu fram í
tímann. Enn sem komið er, er ein-
göngu um að ræða einfalda skrán-
ingu á magni hráefnis, af hverri
fisktegund, sem áætlað er að vinna.
Með því að væntanlegur afli birtist
á áætluðum löndunardögum, sést
mjög fljótt hvort ekki hefst undan
UAH260 Hráefni vikunnar Haraldur Böðvarsson hf.
Alvis
Hús : 012 + Haraldur Böðvarsson hf.
Samtals i móttöku: 51.083,00
12=Hráefni dagsins 13=Afli dagsins 14=Aðkeypt dagsins
15=Framleiðsla dagsins
Fletta frá
Dagsetning Frá f. degi Væntanlegt Móttekið Alls inn
31.10.1994 mán 44 48.889 52.345 101.234
1.11.1994 þri 44 64.874 20.000 2.535 51.618
2.11.1994 mið 44 51.618 16.618
3.11.1994 fim 44 16.618 17.875 993
4.11.1994 fös 44 993 126.786 97.779
5.11.1994 lau 44 97.779 97.779
6.11.1994 sun 44 97.779 97.779
Samtals: 164.661 54.880 268.430
FLEIRA
F3=Ljúka F4=Kvaðning F5=Endurstilla Fll=Prenta F12=Rjúfa
F17=Val F18=Útlit F19=<— F20=—> F21=Skipanalina
Tölvumál - 43