Tölvumál - 01.04.1995, Síða 44
Apríl 1995
UAH260 Hráefni vikunnar Haraldur Böðvarsson hf.
Alvis
Hús : 012 + Haraldur Bövarsson hf.
Samtals i móttöku: 51.083,00
12=Hráefni dagsins 13=Afli dagsins 14=Aðkeypt dagsins
15=Framleiðsla dagsins
Dagsetning 31.10.1994 mán <— Áætlað í vinnslu 44 > <— Raun > Annað í vinnslu 36.360 Fletta frá Annað Alls út 36.360
1.11.1994 þri 44 22.000 13.791 35.791
2.11.1994 mið 44 34.000 1.000 35.000
3.11.1994 fim 44 33.500 33.500
4.11.1994 fös 44 30.000 30.000
5.11.1994 lau 44
6.11.1994 sun 44
Samtals: 119.500 1.000 50.151 0 170.651
FLEIRA
F3=Ljúka F4=Kvaðning F5=Endurstilla Fll=Prenta F12=Rjúfa
F17=Val F18=Útlit F19=<— F20=-> F21=Skipanalina
í vinnslunni, en þó er það mikil-
vægast að mjög fljótt kemur í Ijós
hvort ekki er um nægjanlegt hráeíhi
að ræða. Einn mikilvægur þáttur í
skráningu hráefnisins er það að um
leið og samið hefur verið um að
kaupa hráefni af einhverjum aðila,
er hægt að skrá það í kerfið og er
það þar með skilaboð til þeirra
starfsmanna sem sjá um skráningu
afla, hvers er að vænta og hver
seljandi er.
Skráning og móttaka
á hráefni
I dag er skráður afli hjá skipun-
um, sem er í raun þær upplýsingar
sem koma fram á lestarkorti þess,
velt yfir á lager með einni skipun
við löndun. Aflaeiningar eru síðan
taldar inn, og skráning afla leiðrétt,
ef þörf krefur.
Hins vegar er stefnt að því í
náinni framtíð, að taka upp ná-
kvæmari skráningu á móttöku afla.
Þá yrði hver aflaeining, hvort sem
um er að ræða bretti með kössum,
eða kar með fiski, merkt með
strikamiða við móttöku þess. Mjög
áhugavert er að nota við þessa
skráningu búnað sem notar þráð-
laus samskipti og gæti þessi merk-
ing því alveg eins átt sér stað niður
á bryggju. A strikamiðanum kæmi
fram frá hvaða skipi (eða seljanda)
hráefnið er, ásamt fisktegund og
veiðidegi. Þegarhráefninu er síðan
ráðstafað inn til vinnslu, eða selt
úr húsi, er strikamiðinn lesinn og
þannig er þessari tilteknu einingu
ráðstafað. Með þessu fæst glöggt
og raunhæft yfirlit um það hvað er
til á hráefnislagernum; yfirlit yfir
fisktegundir, veiðidaga og selj-
endur. Ráðstöfun aflans verður
mjög einföld, og upphefur sá
vinnusparnaður þá auknu vinnu
sem felst í skráningu aflans í upp-
hafi. Að auki vinnst með þessu
Mynd 3
aukinn rekjanleiki í vinnslunni, þar
sem mun nákvæmari upplýsingar
liggja fyrir um það hráefni sem
ráðstafað er til vinnslu á hverjum
tíma.
Sýnataka hráefnis
Þegar tekið er á móti afla, þarf
að taka af honum sýni, bæði til
ákvörðunar á t.d. meðalþunga í
kassa og eins til flokkunar á afla í
stærðarflokka. Flokkunin er notuð
bæði til verðlagningar og eins til
framleiðslustýringar. I móttöku,
þar sem afii er skoðaður, er tölvu-
skjár þar sem allar niðurstöður eru
skráðar jöfnum höndum. Við það
að skrá þessar upplýsingar þarna
eru þær orðnar aðgengilegar fyrir
alla starfsmenn og nýtast strax við
ákvörðunartöku.
Þegar hráefni á lager er skoðað,
er hægt að fá fram jöfnum höndum
niðurstöður sýnatöku og sjá þannig
t.d. hvemigafli skiptist milli veiði-
daga í stærðarflokka. Þetta gefur
glögga yfirsýn fyrir vinnsluna.
En til þess að upplýsingar séu
marktækar og hægt sé að treysta
þeim verður að færa þær jöfnum
höndum og hafa þá verkferla að
upplýsingunum sé treyst fullkom-
lega. Með fræðslu og umræðu
verður starfsmönnum Ijóst hverjar
afleiðingar á skráningu upplýsinga
er og fá skilning á því hvers er að
vænta með vinnu þeirra.
Vinnsluupplýsingar
Þegar fiskur fer inn til vinnslu
fer hann inn á Marel flæðilínu og
þar er safnað saman upplýsingum
tengdum vinnslu hans. Skráð er
magn frá hverjum starfsmanni og
einnig afskurður og er þannig hægt
að sjá nýtingu hvers og eins, ásamt
afköstum og skiptingu í mismun-
andi afurðir. í Marel kerfíð er
einnig skráð gæðaeftirlit vinnslu.
Fljótlega verður farið í það að
tengja saman upplýsingarnar sem
safnast upp í Marel kerfinu, við
framleiðsluhluta Alvís Útvegs, og
þannig verður fengin heildarsýn
um framleiðsluflæðið.
Skráning framleiðslu
og birgðahald
Eftir að vöru hefur verið pakk-
að og komið í pönnur, er hún skráð
í tækjabók beint í tölvu. Markmiðið
með tækjabókinni er m.a. að gera
kleift að prenta kassamiða jöfnum
höndum, í stað þess að nota sleiki-
miða. Veruleg vinnuhagræðing er
44 - Tölvumál