Tölvumál - 01.04.1995, Síða 45
Apríl 1995
UAH210 Óráðstafað hráefni Haraldur Böðvarsson hf.
Alvis
Hús : 012 Haraldur Böðvarson hf.
Fisk: KAR + Karfi
14=Ráðstafa 15=Leiðrétta 24=Ráðstafa saman
Uppruni Veiðidag S G Mf Ein Móttekið Meðalþ. Kiló Ráðstafað
HARAL 95006 22.02.95 OS KAS 27.02.95 0, 656 59.484,00 24.191,00
stór 58,84 % 0, 994 34.998,00 14.233,00
milli 14,90 % 0,579 8.861,00 3.603,00
u 500 gr. 26,27 % 0,400 15.625,00 6.354,00
Samtals: 0, 656 59.484,00 24.191,00
LOK
F3=Ljúka F4=Kvaðning F5=Endurstilla F10=Þrepun Fll=Prenta
F12=Rjúfa F13=Endurtaka F17=Val F18=Útlit F24=F-lyklar
í því að framleiða kassamiða jöfn-
um höndum, frekar en að þurfa að
hafa á lager nægjanlegt magn af
þeim fjölda afurða sem mögulegt
er að framleiða, en þær skipta
hundruðum. Kassamiðaprentun er
ekki komin í fullan gang hjá HB,
en hún notar í dag sameiginlegan
prentara með gerð brettamiða.
Þegar vara er skráð í tæki, er
reiknað út hve mikill fjöldi kassa
af hverri afurð er þar til staðar og
er síðan prentaður sá íjöldi kassa-
miða sem þarf á ytri umbúðir fyrir
innihald tækisins. Hægt er að hafa
sjálfvirka tímastillingu á því hve-
nær miðarnir prentast út eða panta
þá þegar starfsmönnum hentar.
Eftir að varan hefur verið sett
á bretti, skrá starfsmenn í tækjun-
um það magn sem um ræðir. Tengt
skjánum er miðaprentari frá Inter-
mec, sem prentar brettamiða með
strikamerki, sem fara á allar hliðar
brettisins. Þau númer sem brettin
fá eru lykilatriði í öllu birgðahaldi.
Þessi númer eru notuð alfarið í
gegnum allt vörukerfi Sölumið-
stöðvarinnar, og í gegnum þau
næstrekjanleiki afurðanna til allra
þátta í framleiðslunni. Hver eining
fær þannig fast ákveðið númer og
er því mjög auðvelt að halda utan
um allar hreyfingar brettisins.
Þegar bretti er afskipað, er
númer þess skráð eða að notuð er
handtölva til þess að lesa strika-
merki þeirra bretta sem send eru
frá fyrirtækinu. Síðan er lesið úr
handtölvunni inn í birgðakerfíð og
þannig færist sjálfkrafa upplýs-
ingar um það hvaða bretti eru að
fara í tiltekna afgreiðslu. Eftir að
varan kemur í hendur Eimskip, eða
Jökla, skrá þeir þessi númer einnig
og þamiig er hægt í gegnum þeirra
upplýsingakerfi að fá vitneskju um
það hvar brettin eru stödd í flutn-
ingsferlinum.
Þegar afreikningur berst frá
Sölumiðstöðinni kemur fram hvaða
bretti er verið að afreikna, ásamt
því að þessar upplýsingar er hægt
að lesa frá Hafsjó, og þannig gera
sjálfvirkt upp afreikningana. Eftir
að framleiðsla hefur verið skráð á
hverjum vinnsludegi, býr birgða-
kerfíð til framleiðsluskeyti sem
sent er til Sölumiðstöðvarinnar í
gegnum Hafsjó. Þaðan er einnig
lesin verðskrá SH og hún uppfærð
sjálfvirkt í tölvukerfinu.Eftir að
skráning á brettum, og merking
þeirra, var tekin upp er Ijóst að
birgðahald er allt öruggara og það
hefúr sýnt sig aftur og aftur, að það
sem tölvan sýnir að til sé á lager,
stemmir í öllum tilvikum.
Gæðaeftirlit
Þegar afurðir eru skoðaðar eru
niðurstöður skráðar jöfnum hönd-
um í gæðakerfið. Þýska fyrirtækið
Nordsee hefur viðurkennt gæða-
eftirlit Haraldar Böðvarssonar og
notar niðurstöður þess sem hluta
af sínu. Þegar afurðum er afskipað
til þeirra, eru skrifaðar út gæða-
skýrslur þeirra framleiðslulota sem
afurðirnar koma frá. Þetta á sér
stað þannig að eftir að bretti hafa
verið skráð í afskipun, eru fundnar
sjálfvirkt þær framleiðslulotur sem
þau tilheyra og viðeigandi upp-
lýsingar skráðar út með þýskum
texta. Þetta er dæmi um virkan
rekjanleika afurða.
Gæðaeftirlitskerfið mun verða
notað til þess að skrá niður allar
niðurstöður gæðaskoðanna, hvort
sem um er að ræða hráefniseftirlit,
afurðaeftirlit, vinnslueftirlit og/eða
hollustu- og búnaðarskoðun. Einn-
ig er gæðaeftirlitið notað til skrán-
ingar á niðurstöðum efnagreininga
sem unnar eru á rannsóknarstofu
fiskimjölsverksmiðjunnar.
Til skamms tíma hefur ein-
göngu verið um að ræða skráningu
afurðaeftirlits, en á næstu mán-
uðum verður tölvuvæðingu annars
eftirlits komið á.
Fiskimjölsverksmiðja
Tölvukerfið er ekki bara ein-
göngu notað fyrir frystihús Har-
aldar Böðvarssonar, heldur tekur
það til allra þátta þess. í fiskimjöls-
verksmiðjunni á sér stað skráning
á framleiðslu með mjög áhuga-
verðri miðlara-biðlara lausn.
Mest af því fiskimjöli sem þeir
framleiða er sett í stórsekki og felur
skráningarlausnin það í sér að
merkja hvern og einn þeirra með
strikamerktu spjaldi. í mjölhúsi
verksmiðjunnar er Pólsvog sem
notuð er til að vigta sekkina. Við
þessa vog hefur verið tengd skrán-
ingarstöð frá Intermec, sem einnig
tengist strikamiðaprentara. Við
skráningu á framleiðslu, sem felur
m.a. í sér staðfestingu á afurð og
vakt, er þunginn á sekknum lesinn
sjálfvirkt frá voginni og strika-
spjaldið búið til. Spjaldinu er síðan
rennt í gegnum lesara á skráningar-
Tölvumál - 45