Tölvumál - 01.05.2000, Side 11

Tölvumál - 01.05.2000, Side 11
ÞriÖja kynslóðin Þar eð GPRS verður á ferð tveimur árum á undan öðrum hlutum í UMTS og þetta er sama pakkanetið og fyrirhugað er í GSM gefur það rekstrar- aðilum 2. kynslóðar- kerfa forskot á að sækja með farsímann inn á „internet- markaðinn" áður en 3. kynslóðin er tilbúin Hámarksafköst UMTS verða í næstumhverfi og innanhúss 2Mb/s, 384 kb/s í stórsellunni og 144 kb/s á ferð, og veitir jöfnum höndum rásatengda og pakkatengda þjónustu i kynni að draga dilk á eftir sér kostnaðar- lega við umskiptin. Búist var við að það héldi áfram og við sæjum meira af nýjum framsæknum tæknisamþykktum drifnum í gegn af iðnaðinum. Eftir allt að áratug af markaðsdrifmni þróun í GSM var 3. kyn- slóðin augljóslega iðnaðardrifm, eins og svo margt á fjarskipta- og tölvusviðinu þar sem tækniframfarir eru svo örar að neyt- endur og rekstraraðilar eiga í erfiðleikum með að torga. En s.l. ár fór á annan veg. Farið var að gæta óróa, ekki síst hjá rekstr- araðilum 2G kerfa, sennilega vegna fjár- festingarinnar í 2. kynslóðarkerfunum sem víða eru ný, og markaðarins ef rekstrar- leyfi 3G kerfanna færu annað en til þeirra. Á þessu stigi höfðu rekstraraðilar stofn- að með sér samtök nefnd OHG (Oper- ators' Harmonization Group) til að hafa áhrif á þessa þróun og samræma hana því sem fyrir var. Frá því í byrjun þess áratug- ar sem GSM hafði verið við lýði, var þró- un þess skipt upp í 3 áfanga. Fyrsti áfang- inn var afgreiddur snemma og frystur með staðli svo að samræmd iðnaðarframleiðsla og víðtæk markaðssetning gæti hafist. GSM varð ríkjandi farsímakerfi í heimin- um út á 1. áfanga og því minni áhersla lögð á að ganga frá hinum tveimur. En með tilkomu 3G koin nú upp þrýstingur frá OHG í formi tillagna til ITU um að af- greiða viðbæturnar á GSM sem fyrst og jafnvel bæta við það sem upprunalega var á dagskrá, viðbætur sem í dag er vitnað til sem 2.5 G, og stuðla að þróun frá 2G yfir í 3G og samræmingu. Hvaða óhrif mun 2.5 G hafa á gang mála? Frá því að grunnurinn að 3G var lagður um áramótin ‘98/’99 gætti því viðleitni til samræmingar á milli 2. og 3. kynslóðar- innar frekar en áframhald á 3G sjálfu. Sá hópur sem ræður mestu um framvindu 3G núna nefnist 3GPP (3. Generation Partnership Project) og er ráðgefandi fyrir ITU. Þetta er mjög víðtækur alþjóðlegur hópur stöðlunarstofnana landanna og álf- anna, ITU, iðnaðarins og GSM og UMTS markaðssambandanna (GSM Forum, UMTS Forum). Auk þess að sinna fram- vindu 2. kynslóðarinnar hefur 3GPP að markmiði að samræma þær 5 staðlatillög- ur að 3. kynslóðinni sem ITU sat uppi með þegar ekki var lengra komist í sam- komulagsátt með IMT-2000, fækka val- kostum og auka alþjóðlega samhæfni í 3G. Tvær höfuðtillögumnar em sú frá ETSI, sem nefnd er UMTS og seinna varð sam- ræmd tillaga Evrópu og Japan, og sú am- eríska, nefnd cdma 2000. En bæði þessi kerfi byggja tæknilega á bandaríska 2. kynslóðarkerfinu IS-95 sem er gjörólíkt GSM, og GSM hafði, ef svo mætti að orði komast, kveðið í kútinn í samkeppni 2. kynslóðarkerfa um alþjóðamarkaðinn! Það er ekki laust við kaldhæðni, að Evrópa skyldi nú byggja á þessu kerfi en ekki sínu eigin GSM. í R99 (release 1999), en svo er plaggið nefnt sem byggist á starfi þeirra s.l. ár, er lagður grunnurinn að 3. kynslóðinni (sjá mynd 1) og tengslum hennar við 2. kyn- Tölvumál 11

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.