Tölvumál - 01.05.2000, Page 12
Þriðja kynslócSin
EDGE mun auka
gagnaflæðið í GPRS
þrefalt miðað við
GS/V1 og er því
ámóta í þeim efnum
við UMTS eins og
það fer af stað
GPRS er hlutfallslega
lítil viðbót við
núverandi GSM kerfi
sem nýtist í 3G og
með hagkvæmum
WAP/GPRS-símum,
sem líklegt er að
verði almennir strax á
næsta ári
A dagskrá er að
veita henni allt að 2
Mb/sek flutningsgetu
í kyrrstöðu í
nærumhverfi. I fyrstu
útgáfu virðist þó
enginn framleiðandi
miða að meiru en
384 kb/s
Ein höfuð ástæðan
fyrir nýju radíókerfi í
3. kynslóðinni er betri
bandbreiddarnýtni og
möguleikar á
sfórauknum fjöldaað-
gangi miðað við
GSM
slóðina. Að öðru leyti er höfuðáherslan á
2.5G frekar en 3G. GPRS verður tilbúið á
þessu ári en UMTS-hlutinn að öðru leyti
2002. EDGE, sem er endurbót á radíó-
hluta GSM og bandaríska TDMA-kerfis-
ins IS-136, er á dagskrá 2001.
Þar eð GPRS verður á ferð tveimur
árum á undan öðrum hlutum í UMTS og
þetta er sama pakkanetið og fyrirhugað er
í GSM gefur það rekstraraðilum 2. kyn-
slóðarkerfa forskot á að sækja með farsím-
ann inn á „internetmarkaðinn“ áður en 3.
kynslóðin er tilbúin, auk þess sem þetta er
milliskref yfir í 3G. Notendur verða hins
vegar að endurnýja hjá sér að fullu í
hverju þessara framfaraskrefa sem í vænd-
um eru.
í næsta 3GPP samkomulagi, R’00 (þ.e.
release 2000), er á dagskrá frekari frysting
á 3G (sbr mynd 7 sem ég vík að síðar) en
náðist í R’99.
Það sem er nýtt í UMTS (mynd 1) um-
fram GSM er nýtt radíókerfi (e), pakka-
netið GPRS (f) og CAMEL (customised
mobile application part) (c). Það síðast-
nefnda hefur verið á dagskrá í þremur
áföngum allt frá GSM R96 og út-
breiddasta notkunartilfellið í CAMEL
fram að þessu eru án efa SMS. í 3G breyt-
ist það nú yfir í MMS (multimedia messa-
ge system). Hámarksafköst UMTS verða í
næstumhverfi og innanhúss 2Mb/s, 384
kb/s í stórsellunni og 144 kb/s á ferð, og
veitir jöfnum höndum rásatengda og
pakkatengda þjónustu.
Ávinningur GSM af þessu er GPRS
pakkagagnanet sem GSM fær á sig til
hliðar við rásatengda símanetið (b) sem
felst í GSM í dag. I rásaskiptu símakerfi
eins og GSM vitum við að að jafnaði fer
helmingur tímans í tvíátta símasambandi í
að hlusta á hinn samtalsaðilann og 20% að
auki í bið, og unnt er að nýta þessar eyður
til pakkaflutnings. Eins og ég vík að síðar,
eru 8 tímahólf (talsambönd) á hverri burð-
artíðni í GSM og það má nýta eyður þeirra
allra á samnýttri pakkarás. Reiknað er
með að GPRS geti veitt allt að 115 kb/s
afköst þegar best lætur, en eins og í öðrum
pakkanetum eru afköst sem nást að jafnaði
háð álagi. Annar kostur er, miðað við rása-
tengda símakerfið, að pakkanetið er
sítengt, biðtíminn við að setja upp rásir
sparast.
En þessi afkastaauking í gagnaflutningi
hefur ekki náðst með bandbreiddaraukn-
ingu heldur betri nýtingu á því sem fyrir
var í GSM. Það er fyrst með EDGE (2001)
sem 2.5G skilar bandbreiddaraukningu. í
EDGE felst ný mótunartækni sem hefur
meiri bandbreiddamýtni en sú sem finnst í
GSM, en hún krefst nýrra magnara í
gmnnstöðvum sem þurfa nú að vera línu-
legir, bæði í styrk og fasa. í EDGE felst
því róttæk breyting á radíóhluta GSM-
kerfanna. Og þetta á bæði við um notenda-
búnaðinn og grunnstöðvamar. EDGE mun
auka gagnaflæðið í GPRS þrefalt miðað
við GSM og er því ámóta í þeim efnum
við UMTS eins og það fer af stað. Og það
kann að leyna á sér í sértilfellum miðað og
UMTS, því að það leyfist á lægri tíðnum. í
EDGE-staðlinum stendur líka til að heim-
ila tækni sem auðveldar uppsetningu tví-
áttasambanda með ójafnri bandbreidd
(asymmetrical channels), sem oft er gagn-
legt í gagnasendingum frá miðlægum upp-
lýsingagrunnum (sjá TDD síðar).
Áhrif 2.5G á þróunina gæti orðið tví-
þætt. Annars vegar að ryðja veginn fyrir
3G, einkum varðandi nýja þjónustu, hins
vegar til að seinka 3G ef rekstraraðilar
telja hag sínum betur borgið með frekari
uppbyggingu GSM/GPRS/EDGE en að
fara út nýtt 3G kerfi. Sú spurning hversu
hratt 3. kynslóðin færist yfir hefur fleiri
hliðar á sér en tæknilega. GPRS er hlut-
fallslega lítil viðbót við núverandi GSM
kerfi sem nýtist í 3G og með hagkvæmum
WAP/GPRS-símum, sem líklegt er að
verði almennir strax á næsta ári. Er þetta
skjótfarnasta leiðin til að nálgast „intemet-
markaðinn“. EDGE er róttækari upp-
skurður á GSM-kerfunum og nýtist ekki í
3G. Það er því háð hagsmunum rekstrar-
aðila og svæðisbundnum aðstæðum hvort
EDGE muni hafa mikil áhrif. Ég minntist
á í upphafi að stærri þjóðir í Evrópu muni
bjóða út til hæstbjóðenda rekstrarleyfin
fyrir 3G og þar sem þetta er komið af stað
eru upphæðirnar þegar orðnar óheyrilega
háar. Þeir sem ekki fá munu án efa reyna
aðrar leiðir til að ná til þessa markaðar og
það á grundvelli leyfa sem þeir þegar hafa
og borguðu miklu minna fyrir. Og ef við
lítum að nýju á mynd 2 (sem ég fjalla um
síðar) þá geta önnur kerfi með lítilli aðlög-
un náð því marki sem sett eru 3G í dag
12
Tölvumál