Tölvumál - 01.05.2000, Side 24

Tölvumál - 01.05.2000, Side 24
GPRS GPRS og upplýsingabyltingin Jóakim Reynisson Við samruna stafrænu farsímakerfanna við pakkakerfi tölvu- og vefheimsins verður bylting í fjarskipta- möguleikum almenn- ings Við samruna stafrænu farsímakerf- anna við pakkakerfi tölvu- og vef- heimsins verður bylting í fjar- skiptamöguleikum almennings. Á þennan hátt mun takast að skapa sítengdan, þráð- lausan upplýsingaheim. Hugmynd sem hingað til hefur virst sem tálsýn í hugum ójarðtengdra framtíðarrýna verður brátt að veruleika. Þökk sé snjöllum hugmyndum, Netinu, GSM og GPRS. Grundvöllur þessa risaskrefs sem nú er framundan er tækniþróun innan GSM sem nefnd er GPRS, General Packet Radio System. Tækni sem tengir IP heima tölvu- og veraldarvefsins við hin vinsælu GSM símtæki og gerir sítengd, hraðvirk gagna- samskipti möguleg, hvar sem er og hvenær sem er. Þróunarsagan Farsímakerfum er gjaman skipt upp í flokka sem ætlað er að lýsa stað þeirra í þróunarsögunni. Þannig em fyrstu far- símakerfin nefnd fyrsta kynslóð, 1G (Generation 1). Þessi kerfi voru hliðræn og komu fyrst verulega fram á sjónarsvið- ið upp úr 1980. Dæmi um kerfi af þessari kynslóð er NMT farsímakerfið en NMT kerfið er í raun það 1G kerfi sem ruddi brautina fyrir aðra kynslóð farsímakerfa, 2G. Einkenni 2G kerfanna er að þau eru stafræn og það er um leið sú tækni sem leitt hefur til gríðarlegra vinsælda þeirra. Stafræna tæknin gerði mögulegt að bjóða farsímanotendum örugg, hlerunarlaus, há- gæða samskipti og ekki aðeins heima fyrir heldur um allan heim (reiki, enska: roam- ing). GSM kerfið er einmitt eitt 2G kerf- anna og það lang útbreiddasta. Sem dæmi má taka að áætlað er að heildarfjöldi far- símanotenda í heiminum hafi s.l. áramót verið um 436 miljónir. Þar af voru GSM notendur um 254 miljónir, eða 65% 2G notenda, sem segir mikið um gríðarlegar vinsældir GSM. Á sama tíma og stafræna farsímatæknin hefur farið sigurför um heiminn hefur tölvutæknin slitið bamskónum og með veraldarvefinn sér við hlið farið sína sigurför um heim allan. Þarna eru því tvær skrúðgöngur í gangi og lúðrar og trumbur óma um heimsbyggðina en vandamálið er bara það að miljónir manna þurfa of oft að hlaupa á milli til að geta tekið þátt í þeim báðum. Þess vegna vilja menn nú sameina göngumar og færa kosti tölvu- og vef- tækninnar inn í farsímakerfin. Langflestir spá því að í náinni framtíð muni fjarskiptatæknin styðjast að lang- mestu leyti við pakkalausnir, tækninni sem tölvu- og vefheimar byggja á. Innan fárra ára mun þriðja kynslóð farsímakerfa, 3G, koma á markað og einkenni þessara kerfa verður að þau byggja að miklu leyti á pakkatækninni og taka þannig tillit til samruna farsíma- og tölvuheima. 2G kerf- in eru hins vegar rásabyggð eins og hefð er fyrir í símtækni og þess vegna er ákveð- in gjá milli þeirra og pakkaheimsins. Þessa gjá á nú að brúa og það er GPRS 24 Tolvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.