Tölvumál - 01.05.2000, Síða 28
GPRS
GPRS er lítils virði ef
aðeins væri fyrir
tæknina
an bíða svo enn öflugri aðferðir við að ná
meiri hraða, breytingar í sendistöðvum
munu auka rásahraðann verulega sem
ásamt EDGE (Enhanced Data GSM
Evolution) mun innleiða allt að 380kb/s
og handan þess er stóra skrefið yfir í
þriðju kynslóðina, 3G, sem boðar allt að
2Mb/s.
Þjónustur
GPRS er lítils virði ef aðeins væri fyrir
tæknina. GPRS mun augljóslega nýtast
við hefðbunda vöfrun um vefinn með t.d.
fartölvu eða tengingu starfsmanns inn á
fyrirtækjanet. Hins vegar er enn meira
spennandi að sjá hvað gerist með þróun á
þjónustu til daglegs brúks fyrir venjulegt
fólk. Þar hefur mikið að segja hver þróun-
in verður í farsíma- og upplýsingatólum
öllum. Sjáum við fyrir okkur eitt tæki sem
getur allt eða mörg tæki sem hvert vinnur
ákveðið verk, eða blöndu af þessu öllu?
Líklegast er að svo verði, sum okkar vilja
lítinn nettan síma til að tala í og annað tól
til að halda utan um tölvupóst, skilaboð,
skipulag og þess háttar. Enn aðrir vilja eitt
allrahanda tæki fyrir alla notkun, til að
tala í, skoða myndir, versla með og
skemmta sér með. Allir þessir möguleikar
munu skapa gríðarleg tækifæri fyrir alla
sem að málum koma, neytendur sem og
hönnuði og viðskiptaaðila því eins og fyrr
sagði er hreinlega búist við risasprengju í
samruna farsímanna og upplýsingatækn-
innar. Framtíðin er gífurlega spennandi en
um leið sveipuð hulu sem erfitt er að sjá í
gegnum og einmitt það gerir þennan heim
jafn heillandi og raun ber vitni.
Jóakim Reynisson er
framkvæmdastjóri tæknisviðs Tals hf.
Tölvusíminn
908 5000
Varstu að
kaupa tölvu?
Tölvusíminn þjónustusími fyrir tölvunotendur
kl. 10-22 virka daga og 12-20 um helgar
89,90 mínútan - þú borgar aldrei fyrir meira en 10 mínútur hverju sinni.
internetið
verðsamanburður
leikir
stór og smá tölvuvandamál
Kynntu þér tilboð handhafa tölvukorta
á heimasíðu okkar.
www.tolvusiminn.is
ll
TOIVU
EHiiliiiu
Netfang: hjalp@tolvusiminn.is
Veffang: www.tolvusiminn.is
28
Tölvumál