Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1930, Blaðsíða 72
72
Sigfús Blöndal
drögum saman það lítið, sem menn vita með v>ssu um
Ingibjörgu systur Ólafs konungs Tryggvasonar, þá hittum
við hana á fyrstu ríkisárum bróður hennar, og er hennar
pá getið sem ungrar ekkju. Dá er hennar getið I Lax-
dælu, og par farið mörgum orðum um vinfengi peirra
Kjartans, og Laxdæla lætur á skiljast, að Ingibjörg óski
sér Kjartan til manns, og að meira að segja Ólafur kon-
ungur bróðir hennar, sé fús á að samþykkja það gjaforð,
og binda þannig þennan glæsilega, íslenzka höfðingjason
fastar við sig og Noreg. Nú væri það í sjálfu sér ekki
óhugsanlegt, að Ólafur konungur hefði ætlað sér að leggja
undir sig ísland, og að hann hefði ætlað sér að nota
Kjartan til þeirra verka, og þá að launuin ætlað honum
systur sína og sjálfsagt jarlstign yfir landinu —, en slíkt
er getgáta ein; það eitt vitum við fyrir satt, að Ingibjörg
Tryggvadóttir gekk að eiga Rögnvald Úlfsson jarl á
Gautlandi skömmu áður en bróðir hennar féll í Svoldrar-
bardaga haustið 1000. Það má geta nærri, að þetta
hjónaband hefði getað orðið í mesta máta til stuðnings
fyrir ríki Ólafs Tryggvasonar, sem þá stóð á völtum fót-
um, eins og kunnugt er, og af sögu Ólafs helga má sjá,
að það varð Noregi til gagns síðar, því Ingibjörg reynd-
ist þeim frændum sínum á konungsstóli Noregs ágætur
bjargvættur. Dví er engan veginn óhugsanlegt, að þó
Ólafur konungur hefði upprunalega verið harðánægður
með Kjartan Ólafsson fyrir mág, þá hefði hann samt get-
að orðið annars hugar þegar mágsemd bauðst við eins
voldugan höfðingja og Rögnvaldur jarl var, og Ingibjörg
þá lika talið það gjaforð sér og Noregi hentugra. Dá
yrði skýringin á öllu saman þessi — Bolli hefði farið
til íslands sannfærður um, að ráðahagur þeirra Kjartans
og Ingibjargar væri bjargföst vissa; bæði hann sjálfur og
ættingjar Kjartans og Guðrúnar — og að lokum hún sjálí —
hefðu svo trúað þessu. En svo kemur Rögnvaldur sem