Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
11
Það er ekki á hverjum degi sem ara-
bískir stórhöfðingjar gista landið okkar
kalda, allra síst i svartasta skammdeg-
inu.
Einn slíkur er þó staddur hér þessa
dagana, stórfursti frá Saudi-Arabíu og
ber hans hálgöfgi nafnið Omar M.
Shams. Hann er einn af meðlimum
konungsfjölskyldunnar, fyrrverandi
ráðherra og stjórnarformaður í stærsta
innflutningsfyrirtæki á sviði matvæla i
landi sínu. Rekur það skrifstofur og
hefur viðskipti um heim allan. Hingað
er hann kominn á vegum Erlendar
Guðmundssonar, framkvæmdastjóra
Nígis.en það er íslenskt fyrirtæki sem
hefur aðsetur bæði hér á landi og í
Nígeríu.
Blaðamaður DV hitti furstann að
máli í gærdag og vildi forvitnast eilítið
um ferðir hans og erindi hér.
„Ég er hingað kominn til að heim-
sækja vini og kunningja, auk þess sem
ætlunin er að ræða við ýmsa aðila um
leiðir til að auka viðskipti milli íslands
og Saudi-Arabíu. Mér er tjáð að þið
íslendingar búið mjög vel að matvæl-
um, bæði landbúnaðar- og sjávar-
afurðum og hef ég mikinn áhuga á að
kanna möguleika á útflutningi þessa til
Saudi-Arabíu. 1 sambandi við þetta get
ég nefnt að fyrirtæki mitt hefur meðal
annars nýverið reist mjög stórar kæli-
geymslur bæði í Jedda og höfuðborg-
inni Rijad og er það fyrsta skrefið til að
stórauka viðskipti á þessu sviði”, sagði
furstinn.
Ekki kvað hann þó matvælaskort i
því mikla olíulandi vera orsök þessa
áhuga, heldur fyrst og fremst vaxandi
þörf til að auka fjölbreytni og fram-
boð. En hvað skyldu Saudi-Arabar
hafa að bjóða okkur í staðinn?
Vill kaupa íslenskt lamba-
kjöt, fisk og lagmeti
,,Ég geri mér ekki grein fyrir hverjar
þarfir eru helstar hér á landi, en vænti
þess að aðilar héðan sýni þessum
viðskiptum áhuga og kanni hvað við
höfum upp áað bjóða”.
Og hvernig skyldi furstanum svo
lítast á land og þjóð?
,,Alveg stórkostlega og það má segja
að allt sem fyrir augun hefur borið,
hafi komi á óvart. ísland kemur mér
fyrir sjónir sem hin óþekkta paradís á
jörð”, sagði Shams fursti að lokum.
Meðan á dvöl hans hér stendur hittir
hann að máli forsvarsmenn helstu út-
flutningsaðila og embættismenn, en í
fylgd með furstanum er hópur
viðskiptamanna og aðstoðarfólks.
Þess má geta að svo skemmtilega vill
til að nú um þessar mundir eru ísland
og Saudi-Arabía að taka upp stjórn-
málasamband í fyrsta skipti og mun
Ingvi Ingvason, sendiherra í Stokk-
hólmi, afhenda konungi landsins
trúnaðarbréf sitt innan skamms. -JB.
Þessa mynd tók Bjarnleifur af furst-
anum í Þingholli í gærdag. Hans
hágöfgi er sjálfur fyrir miðri mynd, en
á hægri hönd honum er dr. Galim
Dahir, aðstoðarmaður og túlkur.
Vinstra megin við furstann situr svo
Erlendur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Nigis.
Ótti um aukna eldvirkni á Reykjanesi:
ENGIN ÁSTÆÐA TIL AÐ ÓTTAST HAMFARIR
segirOrkustofnun
Sá orðrómur hefur verið á kreiki á
Suðurnesjum undanfarið, að ein-
hverjar breytingar séu að verða á
jarðhitasvæðinu þar. Munu menn
hafa talið sig verða vara við nýjar
sprungur og aukinn brennisteinsþef,
sem rekja megi til vaxandi virkni á
svæðinu
DV bar þessar hugmyndir undir
Sverri Þórhallsson hjá Orkustofnun,
sem er vel kunnugur svæðinu:
,,Á jarðhitasvæði eru náttúrlega
alltaf einhverjar breytingar á hvera-
virkni, en við höfum ekki orðið varir
við neinar óeðlilegar breytingar á
þessum stað. Ég skal ekkert um það
fullyrða hvort þessi umtalaða
sprunga er ný eða hvort mönnum
hefur bara sést yfir hana áður, en það
hefur ekkert komið fram til dæmis á
jarðskjálftamælum sem gefur ástæðu
til aðóttast.”
„Hvað varðar brennisteinsþefinn í
Svarlsengi, þá á hann sér mjög eðli-
legar skýringar. Fram til þessa hefur
lítill sem enginn þefur verið þarna, en
með aukinni vinnslu á svæðinu eykst
framleiðsla á brennisteinsvetni sem
veldur hinni velþekktu hveralykt. Ég
held því að engin ástæða sé til að
óttast einhverjar hamfarir á Suður-
nesjum á næstunni”, sagði Sverrir.
-JB.
STOR
^ öð ^ Fimmtudag 3. des. — 18. umferðir
Sólarlandaferð frá
Útsýn
Dingó
PHILIPS
kann tökin á tækninni
Borðtennissamband íslands heldur stórbingó í Sigtúni fimmtudag
3. des. og hefst kl. 20.30. Húsifl opnafl kl. 19.15.
FRÁBÆRIR VINNINGAR, meðal annars Philips HiFi hljómtœki og
Bose hátalarar, Philips litsjónvarpstœki, Philips og Kenwood
heimilistæki og Superia reiflhjól.
Heildarverðmæti vinninga um kr. 65 þús. (6,5 millj. g. kr.) Góðir
aukavinningar.
Verð á spjaldi kr. 30.- Ókeypis aðgangur. Spilaflar 18 umférflir, auk
sórstaks leikfangabingós fyrtr yngri kynslóðina.
Mætifl vel og stundvíslega.
Borðtennissamband íslands.
HEIMILISIÆKI BARNAFÖT HÚSGÖGN MATVÖRUR