Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1981, Qupperneq 35
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981.
Veðrið
35
Sjónvarp
52Í 11 félagsskap brezku
tl21”: 1 leyniþjónustunnar
Rithöfundurinn Thor Vilhjálmsson er einnig ágætis myndlistarmaður. Hér
virðir hann fyrir sér eina myndanna á sýningu, sem hann hélt um sfðustu ára-
mót í Djúpinu við Hafnarstræti. DB-mynd og Vísismynd Gunnar Örn.
ÓPBJÖLLUNNAR
- útvarpssagan kl. 21,30:
STÍLGALDRAR OG
NÚTÍMAMAÐURINN
„Er dimmt i skóginum?
Húm.
Við lýsum á trjástofnana hvern eftir
annan, og vindum leið okkar milli
háu trjánna undir þéttu laufþaki
þeirra sem grisjar geislana Stundum
lendum við i ljósabaði. Kannské sjá-
um við hvitan blett í hnakka þess sem
áundaner.”
Þannig hefst skáldsagan Óp bjöll-
unnar, sem höfundurinn, Thor
Vilhjálmsson, les nú i útvarpið á
mánudagskvöldum kl. 21.30.
Thor er einn okkar sérstæðustu
prósahöfunda og þekking hans á
máli og myndauðgi þess er með ólik-
indum. Fáir geta siungið setningar af
meira hugviti en hann. Stilgaldur
hefur það verið kallað með réttu.
Fyrsta bók Thors hét Maðurinn er
alltaf einn og kom út 1950.
Siðan hefur hann sent frá sér fjölda
bóka, og siðasta skáldsaga hans,
Turnleikhúsið, þykir ýmsum hans
besta.
Þar, eins og i mörgum öðrum verk-
um sinum, fjallar hann um einsemd
nútímamannsins, sem verður fyrir
ótal áhrifum, hittir fjöldann allan af
fólki, fer viða og sér margt, en er
samt alltaf eins og einn i sinni eigin
veröld. Firrtur, ekki sinn eiginn ör-
lagavaldur.
Thor er hinn besti upplesari, en að
hlusta á hann er likt og að hlusta á
tónlist, atburðarásin er hæg og stil-
galdrarnir ráða ferðinni.
ihh
Eins og búast mátti við af Bretum
eru þættir þessir byggðir á góðum leik
og hnyttilegri uppbyggingu, en síður á
hraðri atburðarás og æsilegri klippingu
Starfsliðið á skrifstofu TSTS, deildar í
brezku leyniþjónustunni. Yfirmaður-
inn, Cragoe, situr lengst til vinstri en
gegnt honum aðstoðarmaður hans,
Zelda. Við hlið hennar sitja Wiggles-
worth og Herbert. Þeir eru báðir skotn-
ir í henni og skiptast á um að bjóða
henni í mat en hún lætur sér fátt um
finnast. Dökkhærða stúlkan aftast
vinnur þarna einnig en kemur lítið við
sögu í fyrsta þættinum.
Tökum í umboðssölu allar gerðir af
skíðavörum fyrir börn og fullorðna.
Seljum einnig hin heimsþekktu skíði,
DYNASTAR og ATOMIC.
Ef þú vilt kaupa eða selja, komdu þá til
okkar.
UMBODSSALA MEÐ
SKÍDA VÖRUR OG HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
jJI
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290
Alan Howard leikur Cragoe, yfirmann
TSTS, þeirrar deildar i brezku leyni-
þjónustunni sem úrskurðar hæfni um-
sækjenda til njósnastarfa.
swmi
Brezkur njósnamyndaflokkur í sex
þáttum tekur nú við af Hart-hjónun-
um.
í fyrsta þættinum kynnumst við
starfsfólki TSTS, deild í brezku leyni-
þjónustunni sem sér um hæfni um-
sækjenda til njósnastarfa. Á deildinni
vinna nokkrar manneskjur og sam-
skipti þeirra eru af ýmsum toga spunn-
in. Þar er ýmist vinátta eða afbrýðisemi
á ferðinni. Svo eru sumir skotnir í
sumum og aðrir ekki, eins og gengur.
Þátturinn hefst á því að von er á
manni, sem hugsanlega gæti hentað til'
að leysa af hendi sérverkefni á vegum
leyniþjónustunnar. Yfirmaðurinn,
Cragoe, gefur samstarfsmönnum
sinum, þeim Wigglesworth og Herbert,
skipun um að hlusta á samtal sitt og
gestsins í innanhúss-símakerfinu . . .
eins og þeir bandarísku. Allt fer hægt
af stað en smám saman tengjast þræðir
og fléttast saman í snjalla heild.
Þótt þættirnir séu að vissu leyti sjálf-
stæðir er þeim sem vilja njóta þeirra
til fullnustu bent á að fylgjast með frá
upphafi.
-IHH.
Veðurspá
dagsins
Gert er ráð fyrir suðvestlægri átt
og hlýindum um allt land, súld eða
rigning vestanlands en þurrt víðast
á Austurlandi og hlýindi.
Veðrið
hér
ogþar
Kl. 6 i morgun var á Akureyri
skýjað +7, Helsinki alskýjað +2,
Kaupmannahöfn slydda +2, Osló
léttskýjað —5, Reykjavík alskýjað
+ 7, Stokkhólmi slydda + 1, Þórs-
höfn alskýjað + 6.
Kl. 18.00 i gær var í Aþenu
skýjað +13, Berlín alskýjað +2,
Chicago alskýjað +2, Feneyjum
léttskýjað +3, Frankfurt slydda
+ 1, Nuuk skýjað —3, London
rigning +9, Luxemborg rigning
+ 7, Las Palmas léttskýjað +21,
Mallorca léttskýjað +14, New
York heiðskírt +6, Paris rigning
+ 10, Róm heiðskírt + 8, Malaga
heiðskírt + 15, Vin slydda + 1.
Gengið
IMr. 229.1. desember 1981 kl. 09.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 8,156 8,180 8,998
1 Steriingspund 16,002 16,049 17,653
1 Kanadadollar 6,933 6,953 7,648
1 Dönsk króna 1,1459 1,1493 1,2642
1 Norsk króna 1,4279 1,4321 1,5753
1 Sœnsk króna 1,5005 1,5049 1,6553
1 Finnsktmark 1,8998 1,9054 2,0959
1 Franskur franki 1,4613 1,4656 1,6121
1 Belg.franki 0,2185 0,2191 0,2410
1 Svissn. franki 4,5969 4,8104 5,0714
1 Hollenzk florina 3,3682 3,3781 3,7159
1 V.-þýzktmark 3,6880 3,6988 4,0686
1 ftötskllm 0,00687 0,00689 0,00757
1 Austurr. Sch. 0,5250 0,5266 0,5792
1 Portug. Escudo 0,1266 0,1270 0,1397
1 Spánskurpesetí 0,0865 0,0868 0,0954
1 Japansktyen 0,03803 0,03814 0,04195
t Irsktound 13,084 13,123 14,435
8DR (sérstttk dráttarréttlndi) 9,6300 9,6583
01/09
Sfmsvari vsgna ganglsskránlngar 22190.