Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981.
3
Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjómar:
„Kom ekki
tilgreina"
—að leyfa fjölskyldunni að
byggja á báöum lóðunum
„Þeir, sem búa þarna, gerðu kröfu
um að fá að byggja átta íbúðir til að fá
að gera upp tvö óleyfishús. Það kom
ekki til greina af hálfu borgarinnar
að samþykkja þetta,” sagði Sig-
urjón Pétursson er DV leitaði hans
skýringa á lóðadeilunni við Rauðalæk-
inn.
„Húsið við Rauðalæk er algjört
óleyfishús,” sagði Sigurjón. „íbúarnir
áttu ekki erfðafestu, því hana var búið
að gera upp. Þegar um er að ræða
óleyfishús, hefur borgin keypt þau á
ákveðnu matsverði. Það stóð til boða
þarna, nákvæmlega eins og hjá öðrum
sem hafa þurft að víkja við sömu kring-
umstæður. Þetta boð reyndist húseig-
endum ósættanlegt.
Þá var reynt að teygja sig lengra og
þeim boðið upp á úthlutun á öðrum
byggingaréttinum, sem er fjórar íbúðir,
gætu íbúarnir komið sér saman um
málið. Værum við á þessum grundvelli
reiðubúnir til að Ieysa til okkar þessar
eignir. En þeir náðu ekki samkomulagi
og þannig strandaði það mál.
Þetta var rætt í borgarráði og af
embættismönnum borgarinnar. Niður-
staðan varð sú, að ekki væri hægt að
ganga lengra vegna fordæmis og vegna
þess sem gert hefur verið fyrir fólk und-
ir sömu kringumstæðum.
Síðan gerðist það, sem ég veit ekki
með hvaða hætti gerðist, að tilteknum
byggingaraðilum tókst að semja við
eigendurna. Umræddir aðilar hefðu átt
fullan rétt á úthlutun með eðlilegum
hætti sem byggingaverktakar, svo það
er ekkert óeðlilega staðið að úthlutun
gagnvart þeim.
Þessi samningur er verulega hag-
stæður fyrir borginá. Hún losnar fyrir
vikið við verulegan kostnað, þar sem
byggingarmeistararnir sjá um að fjar-
lægja húsið. Og þarna verða byggð tvö
hús,” sagði Sigurjón að lokum.
-JSS
Lifa á jólatrjám
allt árið
— H jálparsveit skáta í
Hafnarf irði af lar fjár
með jólatréssölu
Þetta er það sem við lifum á allt árið
svo þetta verður að ganga vel,” sagði
einn félaganna í Hjálparsveit skáta í
Hafnarfirði, þegar við hittum hann
með fangið fullt af jólatrjám fyrir utan
félagsheimili hjálparsveitarinnar.
Undanfarin ár hefur sveitin aflað
fjár til rekstrar sveitarinnar með sölu á
jólatrjám í Hafnarfirði. Núna var farið
inn á þá braut að hjálparsveitin flutti
inn sjálf jólatré frá Kanada, svokallað-
an Kanadaþyn, en auk þess selur sveitin
íslenzkt og danskt rauðgreni. Kanada-
þynurinn er mjög fallegur og er reynsl-
an af honum sú að hann fellir barr
miklu seinna en rauðgrenið. Er þynur-
inn lítið eitt dýrari en „venjuleg” jóla-
tré.
„Við opnuðum án þess að eiga til
jólatré, en á sunnudagsmorgni kom
síðan skipið til landsins frá Kanada og
við gátum drifið trén heim,” sagði
Birgir Dagbjartsson sveitarforingi.
„Síðan hefur salan gengið mjög vel og
verður jólatréssalan í heimili sveitar-
innar opin dag hvern frá klukkan 13 til
Ein stúlkan úr HJélparsveit skáta i
HafnarfíríU ar hér að ganga fri jóia-
tré fyrir áhugasaman kaupanda.
Verzlunarráð mótmælir innborgunarskyldunni:
Skadleg,, vemdaraðgerð”
Verzlunarráð fslands hefur sent frá
sér harðorð mótmæli vegna ákvörðun-
ar rikisstjórnarinnar um innborgunar-
skyldu á innflutt húsgögn og innrétt-
ingar.
I mótmælaskjali Verzlunarráðs segir
meðal annars, að reynslan sem hafi
fengizt af þessu fyrirkomulagi árin
1979 og 1980 sýni ekki að það hafi leitt
til minni innflutnings. Þvert á móti hafi
innflutningur húsgagna aukizt um nær
46% á umræddu tímabili. Reynslan
hafi einnig sýnt, að innborgunarskyid-
an hafi aðeins haft áhrif fyrstu 5-6
mánuðina, en ekki söguna meir.
Segir enn að innborgunarskyldan
væri í sjálfu sér ekki umkvörtunarefni,
væri hún aðeins gagnslaus verndarað-
gerð. Hins vegar sé það ntikið áhyggju-
efni, að áhrif hennar séu jafnframt
skaðleg. Vti hún meðal annars undir
óheilbrigða viðskiptahætti, segir Verzl-
unarráð.
' -JSS
Lögreglan fékk f rest
Dómsmála- og fjármálaráðuneytin
heimiluðu enn lengri frest á gildistöku
nýja vaktafyrirkomulagsins hjá lög-
reglunni. Óskaði 20 manna kröfunefnd
lögreglunnar eftir þeim fresti við
ráðuneytin eins og við sögðum frá hér
í blaðinu.
Hin nýja vaktaskipan átti upphaf-
lega að taka gildi 1. desember, en var
síðan frestað til 1. janúar. Þriðji frest-
urinn hefur nú fengizt og er hann til 1.
febrúar.
Deiluaðilar munu reyna að komast
að samkomulagi fyrir þann tima.
Meðal þess sem um er deilt er lögskip-
aður hvildartími lögreglumanna. Segja
þeir að hann sé verulega skertur með
nýja vaktafyrirkomulaginu.
Ráðuneytin hafa óskað eftir þvi að
lögreglumenn komi sjálfir með tillögur
að lausn þessa vandamáls. Þær hafa
enn ekki komið en ráðuneytin vona að
þessi nýi frestur dugi til þess.
-klp-
VH) TELJUM
að notaðir
VOLVO
bflar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
VOLVO 345 DL '82, BEINSK.,
ekinn 6 þús., verð kr. 125.000,-
VOLVO 244 GL '80, BEINSK.,
ekinn 21 þús., verð kr. 150.000,-
VOLVO 244 GL '80, SJÁLFSK.,
ekinn 37 þús., verð kr. 155,000,-
VOLVO 244 DL '80, BEINSK.,
i ekinn 22 þús., verð kr. 125.000,-
VOLVO 244 GL '79, BEINSK.,
J ekinn 41 þús., verð kr. 125.000,-
J VOLVO 245 GL '79, SJÁLFSK.,
ekinn 45 þús., verð kr. 143.000,-
VOLVO 245 GL '79, BEINSK.,
ekinn 52 þús., verð kr. 135.000,-
VOLVO 245 DL '78, SJÁLFSK.,
(ekinn 36 þús..
verökr. 125.000,-
(0
35200 VELTIR
Qster
hrærivél
frá
Verð kr.
Innifaliö í verði: Hakkavél, mixari, hnoðari, 2 skálar og þeytari.
Hafnarfjoröur: Ljós og raftæki
Akrsnes: Þóröur Hjálmarsson
Borgarnes: K.f. Borgfirðinga
Patreksfj. Raft. Jónasar Þórs
isafjöröur: Straumur h.f.
Bolungarvík: Jón Fr. Einarsson
Blönduós: K.f. Húnvetninga
Sauöárkrókur: Hegri sf.
Siglufjöröur: Gestur Fanndal
Ólafsfjöröur: Raftækjavlnnustofan sf.
Akureyrí: Akurvik
Húsavík: Grímur og Árni
Vopnafjöröur: K.f. Vopnfiröinga
Egilsstaöir: KH B.
Seyöisfjöröur: Stálbúöin
Eskifjörður: Pöntunarfól. Eskfiröinga
Neskaupsstaöur: Ke. Lundberg
Höfn: K.A.S.K.
Þykkvibær: Fr. Friöriksson
Vestmannaeyjar: Kjami sf.
Keflavik: Stapafell hf. N
Vörumarkaðurinn hf.
| Ármúla 1 A — Sími 86117