Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981. 11 Mannlíf Mannlíf Mannlíf Mannlíf Monchit Cruz var gráti nær. Móðir hans, Marina, gladdist. Fréttirnar um það að Ferdinand Marco, forseti Filippseyja, hefði bannað myndsegulbandaleiki, fékk þannig misjafnar undirtektir. Héðan i frá kosta slíkir leikir Filippseyinga 624 dali í sekt og allt að 12 ára fangelsi. Börnum finnst þetta auðvitað mesta óréttlæti en flestir foreldrar eru á sama máli um það að leikirnir séu aðallega til að plokka fé út úr börnum og hafi auk þess ill áhrif á þau. Tilgangur yfirvalda mcð banninu er sem sagt sá að bjarga æskunni frá glötun. Æskan er hins vegar ekki tilbúin til að láta bjarga sér. Unglingur sem kom að rafleikjastofu lokaðri eftir bannið sagði örvæntingarfull- ur: — Ég hætti í skólanum til að geta stundað þessa lciki og verið hamingjusamur. Hvað á ég nú að gera?’ <€ Susan Hampshire: OrOblinda stafar allavega ekki afheimsku. — En hún hefurgertmikið tf/að hjálpa öðrum með sama vandamál og m.a. skrifað bók um það rúmið með honum, fékk hún nóg og sneri aftur heim til London. — Lífið í Hollywood er miskunnar- laust og hrottalegt, segir hún. — Ég kýs fremur minni frægð og minni peninga, en langt og hamingjusamt líf heima hjá mér. Susan Hampshire giftist nýlega í annað sinn, skipafélagsforstjóranum Eddie Kulukundis. Síðan hefur hún tekiðsér hvíld frá öllum leikstörfum. — En það verður ekki lengi, segir Susan. — Tengdamamma er meira að segja farin að spyrja mig hvenær ég ætli aftur út að vinna! Nógu þrjózk til að gefast aldrei upp Er Susan komst að því að orðblinda er algeng fötlun ákvað hún að reyna að hjálpa þeim sem líða fyrir hana. Hún hefur staðið fyrir söfnunum og komið fram í fjölmiðlum til að vekja athygli foreldra á að þetta er fötlun sem þó er unnt að lagfæra. — Það ætti að prófa öll börn í lestri áður en þau hefja skólagöngu sína til að athuga hvort þau eru orðblind, segir hún. — Það hjálpar mikið að hefja sér- stakar lestraræfingar með börnunum nógu snemma. Orðblinda lýsir sér ekki á sama hátt hjá öllum. Hvað Susan viðkemur dansa Susan Hampshire er orðblind nefnilega ekki jafn áþreifanleg fötlun og t.d. blinda eða heyrnarleysi. Á Bretlandi eru meira að segja margir læknar, sem halda því fram að orðblinda sé ekki til. Susan Hampshire var heppin, hún var aldrei send í sérskóla. Móðir hennar, sem var þekkt ballettdansmey, rak dansskóla. í sambandi við hann rak hún einnig einkaskóla fyrir nemendur sína og í þann skóla gekk Susan. Hún neytti allra bragða til að leyna fötlun sinni. Hún lærði námsbækurnar utan að og skrifaði stíla eftir stílum vinkvenna sinna. Á sama hátt hefur hún lært texta utan að fyrir samlestrar- æfingar í leikhúsinu. — Ég sat uppi heilu næturnar og hætti ekki fytr en ég kunni textann utan að, segir hún. — Á fyrstu samlestraræfingunni lét ég svo eins og ég sæi textann þarna í fyrsta sinn. bókstafirnir fyrir augum hennar og hún á bágt með að greina línurnar. Hún á auðveldara með að lesa tölur en bókstafi. Orðblindan hefur auðvitað verið henni mikill Þrándur í Götu i sambandi við atvinnu sína. En hún segist hafa verið nógu þrjózk til að gefast aldrei upp — og auk þess getur hún ekki hugsað sér skemmtilegra starf en að vera leikkona. Susan hefur fengið mörg og freist- andi tilboð frá Hollywood. Árið 1%1 bauð Fox kvikmyndafélagið henni 7 ára samning. Hún fór þá til Hollywood, en þegar leikstjóri fyrstu myndarinnar ætlaðist til að hún færi í Susan Hampshire, ein af vinsælustu leikkonum Englands, er orðblind og hefur nú með aðstoð ritara skrifað bók um þessa fötlun sína. — Orðblinda er í flestum löndum dulið vandamál, segir hún. — Oft er lit- ið á orðblind börn sem heimsk börn og þau eru send í sérskóla. Orðblinda er Póstsencfum Dúnúlpur, dúnhúfur,barna- úlpur, skíðagleraugu, Moon boots, lúffur,skíðahjálmar skíðahanzkar. Skíðagallar, allar stærðir, stretch skíðabuxur, skíða- vesti, skíðaskór, barna- skíðasett, eyrnaskjól. Adidas íþróttavörur í stór- kostlegu úrvali. Æfinga- gallar, íþróttatöskur, boltar, velúrgallar. Náttf ötin í f élagslitun- um hafa svo sannar- lega slegið í gegn, stærðir 1—12 ára Riitlrrllu Þú færð jólagjöf íþróttamannsins hjá okkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.