Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981. 13 iur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur AUGLYSINGAR OG UPPLYSINGAHLUT- VERK ÞEIRRA Almennt er álitið að auglýsingar fullnægi mikilvægu upplýsingahlut- verki í nútíma þjóðfélagi og sennilega er það einkum vegna slíkra sjónar- miða að auglýsingar eru yfirleitt leyfðar. Væntanlega verður ekki hjá því komizt að auglýsingar hafi ýmiss konar aukaverkanir, ef svo má að orði komast en það er tvímælalaust einn megin tilgangur löggjafar um óréttmæta viðskiptahætti að gera þessar aukarverkanir sem minnstar. Sem dæmi um neikvæð áhrif aug- lýsinga í framangreindri merkingu má nefna þátt þeirra i að skapa kaupsálir, óraunverulega heims- mynd, þar sem veröldin virðist eingöngu setin ungu hamingjusömu og hraustu fólki, með fullar hendur fjár, og auðvitað er aðgöngumiðinn að þessari töfraveröld eitthvert vöruglingur. Á þennan hátt geta aug- lýsingar villt mönnum sýn en þær geta einnig verið villandi á svo marg- an annan hátt. Áður óþekktur sogkraftur Samkvæmt augiýsingaflóðinu nú um jólin, standa neytendum eingöngu til boða úrvalsvörur, svo segja auglýsendur a.m.k. Við skulum líta á nokkur dæmi: Hörkuspennandi bók, dularfull og hröð atburðarás. Opinská og ærleg bók. Bráðfyndin skáldsaga. Æsispennandi ástarsaga. Vinsælasta unglingabók síðustu ára. Fyndin, hrífandi og átakanleg bók. Hrífandi næm og máttug saga. Stórbrotin saga. Traust og vandað heimilistæki. Einstakur safngripur. Frábært hjól. Úr framtíðarinnar. Skartgripir í sér- flokki. Tækið er ótrúlega létt og þægilegt. Frábært litsjónvarpstæki. Heimsþekktar skíðavörur. Áður óþekktur sogkraftur (um ryksugu). Engu líkt. Ef menn vilja dreifa huganum i jólaamstrinu og skreppa í kvikmyndahús, þá er einfalt að fletta upp í blöðunum og eftirfarandi stendur m.a. til boða: Stór- skemmtileg og dularfull leynilög- reglumynd. Gullfalleg stórmynd. Bráðskemmtileg ný gamanmynd. Af- ar gamansöm mynd. Mjög fjörug og skemmtileg mynd. Æsispennandi lit- mynd. Magnþrungin og spennandi mynd, o.s.frv. o.s.frv. Villandi upplýsingar Samkvæmt lagaákvæðum um óréttmæta viðskiptahætti er óheimilt að veita rangar eða villandi upp- lýsingar i auglýsingum enda séu þess- ar upplýsingar til þess fallnar að hafa m.a. áhrif á eftirspurn vöru og þjónustu. Hér er um að ræða eina mikilvægustu meginreglu löggjafar um óréttmæta viðskiptahætti. Með hliðsjón af þeim dæmum, sem nefnd eru að framan, hlýtur sú spurning að vakna hvort tak- markalítið hól og notkun órökstuddra glamuryrða í aug- lýsingum, feli ekki einmitt í sér brot á nefndri meginreglu, þ.e. að villt sé um fyrir neytendum með þessum tiltekna hætti. Staðreyndir eða hól Auglýsingum má gjarnan skipta i tvo flokka eflir því hvort sagt er frá staðreyndum, sem hægt er að sanna eða afsanna, eftir atvikum, t.d. verði, magni, tegund o.s.frv. eða ínútímaþjóðfélagi hvort auglýsingin samanstendur fyrst og fremst af ósannanlegum um- mælum og fullyrðingum, sem visa til smekks, tilfinninga o.s.frv. og eru ÓRÉTTMÆTIR VIÐSKIPTAHÆTTIR Þórður Gunnarsson lögfræðingur reistar á huglægu mati auglýsandans. Það er Ijóst að lagareglur um villandi auglýsingar eiga fyrst og fremst við um fyrri tegundina, en þar með er ekki sagt að mönnum sé selt sjálf- dæmi, þegar um síðari tegundina er að ræða. í fyrsta lagi er á það að lita að við mat á því hvort auglýsinger villandi, skiptir verulegu máli að hverjum auglýsingunni er beint. Það er t.d. ljóst að börn og unglingar eru í flestum tilvikum miklu áhrifanæmari en fullorðnir, þannig að auglýsing sem í augum eins neytanda er mark.laui; skrum, getur í augum annars verið loforð og af þeirri á- stæðu vidandi. Þá er á það að líta að vegnahins fjölbreytta vöruframboðs er gjarnan freistandi fyrir neytendur að láta hól auglýsenda stjórna gerðum sínum og af þeirri ástæðu ber auglýsendum að gæta hófs. I þessu samandi er rétt að hafa i huga að hólið og skrumið hlýtur að bera einhvern árangur, því annars hlytu auglýsendur fyrir löngu að hafa breytt um söluaðferðir. Samkvæmt lagaákvæðum um óréttmæta viðskiptahætti hvílir á- kveðin upplýsingaskylda, m.a. á seljendum vöru og þjónustu. Þetta þýðir það í reynd að á ákveðnum sviðum viðskipta dugar hólið ekki eitt, heldur þurfa til viðbótar að' koma fullnægjandi upplýsingar og gefst vonandi tækifæri til að fjalla nánar um þaðsíðar. Niðurstaða Samkvæmt framansögðu er það niðurstaða mín, að auglýsendum séu sett ákveðin mörk við notkun ósannanlegra ummæla í aug- lýsingum. Þessi mörk eru að vísu afar óljós en ráðast fyrst og fremst af því, að hverjum auglýsingin beinist, upplýsingaskyldu og markaðs- aðstæðum almennt En hvað sem um lögmæti þessara auglýsinga má segja, þá eru þær mjög hvimleiðar og að mínu mati væri það ekki overðugt verkefni fyrir t.d. Félag bókaút- gefenda og Félag kvikmyndahúsaeig- enda að beita sér fyrir úrbótum á þessu sviði, enda lagsamlega eðlileg- ast að slíkt frumkvæði komi frá aug- lýsendum sjálfum. NYPLATA Upp á himins biáum boga HliðA: Jóhann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson syngja við undirleik Guðrúnar Kristinsdóttur. Þar á meðal eru lögin: Sólskrikjan, Hríslan og lœkurinn og Smaladrengurinn. Hlið B: Jóhann Konráðsson syngur við undirleik Fritz Weisshappel. Þar á meðal eru lögin: Ætti ég hörpu, í Jjarlœgð, Lindin, Gígjan og fleiri gamlir kunningjar. Þetta er plata sem y/jar í skammdeginu L ív/bí UTGAFAN Gránufóiagsgötu 4 — Akureyrí — Sími 96-22111. ÓSKADRAUMUR FÖNDRARANS FILMUR OG VÉLAR S.F. Skólavörðustía 41 — Sími 20255 Saman þjöppuð gæði Nákvœm stilling moð hökum í 0,30, og 46 gráður. Blaðlœsingar fyrir sögun upp i allt að 45% Stillanlog Stiltanlog blað4ia»ð or auðvold. öryggishlíf hlífir í öllum stoliingum Innbyggður „Splittor" Stillanlogur sloði fyrir nákvœma boinsögun. dBP^verkfœri Fyrlr hámarks- öryggi or hœgt að læsa straumrofanum í „OFF Fosting fyrir poka oöa ryksugu. Verð ásamt fjölda fylgihlutakr. 1.176. Fjölvirkstingsög (jigsaw) moð aflúrtaki fyrir mart konar fylgihluti, svo scm slípi- og fægihjól og fræsarabarka með ýmsum fylgihlutum. 'Ðrcmcl Moto-Tool" með 1001 möguleika: Fræsar, borar, slípar, fægir, sker út, grefur, brýnir. Fjölmargir fylgi- hlutir fáanlegir, svo sem fræsaraland, borastatíf, haldari, ótal oddar, sagir og slíparar. Standard Moto-Tool Verð kr. 748,- Moto-Tool með innbyggðum hraðastilli, verð kr. 995,- TÓmSTUnDflHÚSIÐ HF Laugouegi 164-Reyfcjauifc $=51901

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.