Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1982, Side 12
12 ™ fijálst, áháð dagblað Útgáfufólag: Frjála fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Framkvmmdastjóri og útgéfustjóri: Höröur Einarsson. Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Ellert B. Schram. Aöstoöarritstjóri: Haukur Helgason. Fróttastjóri: Snmundur Guðvinsson. Auglýsingastjórar: Póll Stefánsson og Ingólfur P. Steinsson. Ritstjórn: Sföumúla 12—14. Auglýsingar: Siöumúla 8. Afgreiðsla, áskrrftir, smÁauglýsingar, skrifstofa: ' Þverholti 11. Skni 27022. Sími ritstjórnar 86611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Siöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Áskriftarverð á mónuði 100 kr. Verð í lausasöiu 7 kr. Holgarblað 10 kr. Lesið milli áramótalína Áramótahugleiðingar eru gott dæmi um, að orð má nota til að dylja skoðanir. í breiðsíðum stjórn- málaleiðtoganna um þessi áramót var ekki vikið einu orði að krossgötum stjórnarsamstarfsins milli jóla og nýárs. Alþýðubandalagsmenn höfðu þá frumkvæði að hugmyndum um þingrof í janúar og kosningar í marz. Þeir þóttust vita, að ríkisstjórnin væri enn í svo góðu áliti, að hún mundi fá nýtt fjögurra ára umboð í kosningum. Samt kom í ljós, að hugmyndin átti ekki nægu fylgi að fagna. Meðal stjórnarsinna í Sjálfstæðisflokknum er vaxandi óbeit á tilhugsuninni um sérstakt framboð. Og án slíks væri tilgangslaust að efna til kosninga. Albert Guðmundsson hefur sagt, að af hans hálfu komi ekki til greina að bjóða sérstaklega fram til borg- arstjórnar. Og Friðjón Þórðarson hefur skýrt tekið fram, að sérframboð hans til alþingis komi ekki til greina. Svo gæti vel farið, að marzkosningar mundu ein- mitt sameina Sjálfstæðisflokkinn og þar með fella ríkisstjórnina, en ekki veita henni það nýja fjögurra ára umboð, sem stuðningsmenn þingrofs sækjast eftir. Hugmyndir þessar um þingrof og kosningar hafa tafíð samkomulag innan ríkisstjórnarinnar um efna- hagsaðgerðir um áramótin. Alþýðubandalagið ljáði ekki máls á neinu, meðan hugmyndirnar væru viðraðar milli stjórnaraðila. Marklaust er að spá einkunnarorðunum, sem ríkis- stjórnin hefði gengið undir til kosninga. Þau hefðu vafalaust orðið töluvert hressilegri en þau, sem við sáum í áramótahugleiðingum leiðtoga ríkisstjórnar- flokkanna. En nú virðist ljóst, að ekki verði gengið til kosninga. Og þeir Svavar Gestsson og Steingrímur Hermannsson hafa tjáð okkur, að fískverð muni hækka og gengi krónunnar lækka, hugsanlega samhliða ýmsu krukki á öðrum sviðum. Enn einu sinni er ástæða til að vara við sumum hug- myndum ráðherra. Til dæmis væri hreint glapræði að víkja af vegi fullrar verðtryggingar fjárskuldbindinga, núna þegar við erum þó komin meira en hálfa leið til árangurs. í sjálfu sér er ástandið ekki afleitt og allra sízt, ef miðað er við fyrri áramót og fyrri ríkisstjórnir. Þjóðin hefur það í stórum dráttum mjög gott, svo sem brjáluð jólakauptíðin leiddi greinilegast í ljós. Hverju sem það er að þakka, þá hefur þjóðarhagur og kaupmáttur launa gert örlítið betur en að standa í stað og einnig örlítið betur en hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndum. Slíkt má teljast gott í kreppunni. Mismunur okkar og nágrannanna er, að við höfum fulla atvinnu og fjórfalda verðbólgu. Hið fyrra er sumpart fengið með því að flytja út atvinnuleysi til þeirra. Og hið síðara er áratuga gömul staðreynd, nánast hornsteinn. Leiðtogar stjórnar og stjórnarandstöðu eru í stórum dráttum sammála um, að tvær hættur séu alvarlegar. Önnur er þensla ríkisbáknsins umfram burðarmátt at- vinnulífsins. Hin er vöxtur erlendra skulda umfram innlendar orkuframkvæmdir. Ef hægt er að stöðva þetta tvennt, svo og halda fullri atvinnu og koma á fullri verðtryggingu, er ekki svo nauið, hvort verðbólgan er þreföld eða fimmföld. Hún er og verður raunar eins hefðbundin og áramóta- greinar leiðtoga, er dylja það, sem þeir meina, og skilja okkur eftir engu nær um neitt, sem máli skiptir. Jónas Kristjánsson. DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1982. Enn sit ég við aö skrifa bréf, þótt ég ætti trúlega samkvæmt dagatalinu að vera að skrifa eitthvað allt annað, ef til vill jólabók, sem virðist enn i tísku, þrátt fyrir verkfall bókagerðarmanna sem er orðinn jafn árviss viðburður og kartöfluuppskerubrestur fyrir norðan og menn eru því farnir að tala um að hægt sé að stilla klukkuna sína eftir þeim. Við, sveitamenn, hugsum ekki mikið um verkföll en þeim mun meira um verðstöðvun sem mér virðist virka svip- að og bremsurnar í bíl sem ég átti fyrir mörgum árum en þær voru svo lélegar að þegar ég lenti í þvi að bíll ók inn í hliðina á mér einn sólríkan haustmorg- un í Aðalstræti, gat ég ekki stöðvað þennan ágæta bil minn fyrr en á móts við hús númer fjörtíu við Vesturgötu. Það þurfti nefnilega að pumpa brems- urnar, eins og það var kallað, og þegar það hafði verið gert nógu oft þá stöðv- aðist bíllinn. Mér virðast verðstöðvunarbremsurn- ar vera í svipuðu ásigkomulagi en hins vegar virðist vera einhver eilífðarsina- dráttur í bremsufæti ríkisstjórnarinnar og fótur haldinn slíkum kvilla er alls- endis ófær um svo mikið sem pumpa. Og nú er timi jólasveina upp runn- inn. Hér trúa allir á jólasveina að visu hvorki þá sem prýða glugga Ramma- gerðarinnar eða hina sem ofan komu af fjöllunum, heldur þá sem skammta Kjallarinn Halldór Gunnlaugsson Á/rt sórfræöings í ríkisútvarpinu 20.nóvember síðast- liðinn var viðtal við opinberan starfs- mann. Mér heyrðist að maðurinn væri afbrotafræðingur, og starfaði fyrir skilorðseftirlit ríkisins og væri á vegum dómsmálaráðuneytisins. í viðtalinu kom meðal annars fram, að afbrota- fræðingurinn leit á fangelsisdóma sem refsingu eða hefnd þjóðfélagsins, sem væri í því fólgin að útiloka þetta fólk frá þjóðfélaginu og öllum þess lysti- semdum. Hann fullyrti að fangelsisvist væri mönnum þungbærari nú á tímum held- ur en áður og þess vegna væru dómar eftir gömlum lögum, fyrir sömu brot, mun þyngri en áður. Það er að segja, að vægi dóma hafi raskazt, afbrotamönnum í óhag. Afbiölafræðingurinn sagði, að fang- elsisvist gerði glæpamenn ekki að betri mönnum og að hann sæi aðeins einn kost við að hafa þá í fangelsi. Hann væri sá, að innilokaðir fremdu þeir ekki glæpi gegn þjóðfélaginu eða ein- staklingum þess, svo að heiðarlegt og meinlaust fólk væri óhult og þyrfti ekki að umgangast þá. En viti menn. Þessi ríkisstarfsmaður hafði lausn á þessum erfiðu og kostn- aðarsömu fangelsismálum og hún var sú að hafa þessa menn á skipum. Samkvæmt þessu lítur afbrotafræð- ingurinn svo á að sjómenn séu ekki hluti af þjóðféiaginu, og veit þessi maður ekki, að skip eru bæði vinnu- staður og heimili, alla vega annað heimili þeirra, sem á þau eru skráðir samkvæmt lögum. Til þess að gera þessum unga kerfis- manni ekki rangt til þá er vel hugsan- legt, þó ekki komi það fram í viðtalinu, að hann hugsi sér að dómsmálaráðu- neytið fari út í útgerð á skipum, sem væru þá eingöngu mönnuð afbrota- mönnum. Ef þetta er hugmynd afbrotafræð- ingsins gæti hún meðal annars hafa orðið til vegna þess að hann hefur heyrt eins og flestir, að lögskráning væri ekk- ert vandamál. Því að hægt væri, jafn- vel með simtali við annan kerfismann' GAlflW* að fá framseld leyfi, bæði til skip- stjórnar og vélstjórnar, og er honum því nokkur vorkunn að þessari hug- mynd. Bezta lausnin Vegna þekkingar á skipum og útgerð tel ég mig hafa mun betri hugmynd um hvernig nýta beri glæpamenn til sjós, en með tilliti til fornrar hefðar og orku- kreppu vil ég láta þá róa. Nú vill svo vel til, að frændur vorir Norðmenn gáfu okkur íslendingum tvö skip, sem eru mjög hentug fyrir dóms- málaráðuneytið til útgerðar með hand- færumoglínu. Gengi útgerð þessara tveggja skipa sæmilega miðað við tilgang, væri ekk- ert hægara en að gera Litla-Hraun að róðraskipasmíðastöð þar til nóg væri smíðað, en þá væri þessum flota dreift í hentugar verstöðvar og Litla-Hraun lagt niður að mestu. Menn með jafnlanga dóma væru hafðir saman á skipi og ef nettóhagn- aður á skipi færi yfir einhver sanngjörn mörk, sem miðuð væru við fiskgengd á svæðinu, væri dómur áhafnarinnar styttur samkvæmt einhverju bónus- kerfi skilorðseftirlitsins. Yfir hörðustu vetrarmánuðina væri þessir menn látnir vinna í sérhönnuðum fiskverkunarhúsum. Um helmingur tekna færi á reikning fanganna og það sem eftir stæði til fangelsismála. Þetta fyrirkomulag á hefnd þjóðfé- lagsins hefur margra kosti. Stærsti kosturinn er að þeir sem þannig hafa greitt skuld sína við þjóðfélagið á þjóð- legum skipum á þjóðlegan hátt, geta borið höfuðið hátt. Og í stað þess að sagt sé um mann, að hann hafi verið tugthúslimur, væri jafnvel sagt í vinsamlegum tón: ,,Hann lentiágaleiðu”. Aðrir kostir við hegningarvinnu, sem sannanlega væri þjóðhagslega arðbær, eru þessir helztir: 1. Jákvæðari afstaða landsmanna á meðan afplánun stendur yfir, og hugs- anlega einnig að henni lokinni. 2. Skárri fjárhagur að lokinni af- plánun. 3. Jafnvægi í byggð landsins. 4. Sumar mæður gætu sagt við börn- in: „Pabbierásjónum”. Þoiinmæöi sjómanna Að loknum þessum vinsamlegu ábendingum til þeirra, sem hafa með afplánunarmál að gera, kem ég að kjarna málsins, sem er afstaöa lands- manna til sjómanna og öfugt. Ég álít afstöðu sjómanna hafa verið mjög ábyrga, þolinmóða og skilnings- ríka, það er skilningsríka á því þekk- ingarleysi, sem verið hefur ríkjandi á kjörum og stöðu sjómanna um langan aldur. Sjómenn hafa verið mjög vægir í kröfum sínum til sanngjarnra Iauna. Vegna ábyrgðar sinnar á þjóðarhag og vegna þess að hörð átök bitna helzt á þeim er sízt skyldi, og að helztu and- stæðingar sjómanna hafa ekki hikað við að beita því gegn þeim. Vægir sá sem vitið hefur meira. Þetta sést bezt þegar andstæðingar sjómanna setja eiginhagsmuni og völd ofar þjóðarhag í andstöðu sinni við sjómenn. Ein sú meginástæða sem ekki liggur í augum uppi, en ég tel hana hafa vegið þungt í því hvað sjómenn hafa verið vægir í kröfum sínum til sanngjarnra launa og kjara. Hún er sú að landsmenn flestir hafa ekki verið tilbúnir að afnema að fullu það raunverulega árhundraða gamla þrælahald til sjós, sem hélzt allt fram í byrjun togaraaldar. í stuttu máli er ein ástæðan sú, að ræktað var inn í þjóðina að það væri einskonar náttúrulögmál, að sjómenn væru og ættu að vera þrælar allra landsmanna, og þó alveg sérstaklega ríkisvalds og útgerðarmanna. En nú hafa allir sjómenn, og flestir þeirra fyr- ir löngu, gert sér stöðu sína ljósa og eru ónæmir, eins og reyndar flestir lands- menn, fyrir áróðri sem miðar að því að viðhalda þessari trú. Þess vegna álít ég að timinn sé kominn fyrir sjómenn að rétta hlut sinn, og það allverulega. Hiutur sjómanna Eðlilega verða viðbrögð við réttlætis- kröfum sjómanna víða neikvæð enda eru þeir fyrsti hlekkurinn i hagsmuna- keðjunni og ef meira fer til hans, verð- ur dáUtið minna til sumra annarra hlekkja. Þetta þýðir að hlutur sjómanna af þjóðartekjum verður að stækka og verður ekki tekinn öðruvísi en með minnkun gróða og tekna þeirra, sem mesta hafa í landi og jafnvel með minni umsvifum rikisins, en þó þannig að ekki bitni á þeim sem minnst mega sin. En því verður að linna að ríkisvaldið þykist aldrei sjá aðra leið til bættra kjara sjómanna en aö pina aðra lág- launamenn. Þessu er haldið blákalt fram á sama tíma og ausið er viðstöðu- laust úr ríkiskassanum og öðrum köss- um í stéttir og fyrirtæki, sem virðast hafa það helzt fyrir stafni að brenna verðmætum í djöfulmóð. Ég legg þunga áherzlu á þá staðreynd, að mið-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.