Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Síða 1
Srjálst, óháð dagblað
55. TBL. — 72. og 8. ARG. — MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982..
Tvær andstæðar fylkingar áttust við hjá Alþýðubandalaginu í Kópavogi:
Klofningur Alþýðubanda-
lagsins eftir prófkjör
—„Er ekki stríð í öllum flokkum?” sagði oddviti flokksins í morgun
Mikill kurr er nú innan Alþýðu-
bandalagsins i Kópavogi í framhaldi
af prófkjöri flokksins, sem fram fór
um helgina og aðdraganda þess. Er
óhætt að segja að flokkurinn skiptist
þar í tvær andstæðar fylkingar.
Alþýðubandalagið á nú 3 bæjar-
fulltrúa í Kópavogi, en Ijóst var fyrir-
fram að a.m.k. einn þeirra yrði að
víkja vegna prófkjörsreglna, sem
flokkurinn setti.
Þar var kveðið á um að merkja
skyldi við 3 karla og 3 konur, þannig
að a.m.k. ein kona hlaut að koma
upp á milli þeirra þriggja karla er nú
eiga sæti í bæjarstjórninni, Björns
Ólafssonar, Snorra Konráðssonar og
Ásmundar Ásmundssonar. Sam-
kvæmt heimildum DV stóð fylking
Björns Ólafssonar með Ólaf Jónsson
fv. bæjarfulltrúa og formann
uppstillingarnefndar í fararbroddi
gegn Ásmundi Ásmundssyni og
stuðningsmönnum hans.
Fyrirfram lá fyrir að þar sem tvær
fylkingar tækjust á, væru allar líkur
á því að sú fylking sem yrði ofan á,
raðaði sínu fólki í efstu sæti listans,
en hin yrði úti í kuldanum. Raunin
varð sú að Björn og hans fólk náði
53—54“7o atkvæðamagni og skipar
efstu sæti listans, en Ásmundur og
hans fólk er með rétt tæplega innan
við 40% fylgi og nær Ásmundur þar
með 5. sæti. Mjög ákveðin smölun
var fyrir prófkjörið og mönnum
lagðar línurnar hvern kjósa ætti.
„Það fer ekki á milli mála, að það
var hópur manna, sem hafnaði mér í
prófkjörinu. Það kom í ljós er lesin
voru upp atkvæði á fundi félagsins,”
sagði Ásmundur Ásmundsson bæjar-
fulltrúi. ,,Ég hafði haft af þessu
spurnir fyrir prófkjörið, en prófkjör
er prófkjör og það má búast við ýmsu
í þeim.”
Tekurðu sæti á lista Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi?
„Það er uppstillingarnefndar að
fjalla um þetta prófkjör. Ég tek ekki
afstöðu til þess fyrr en hún hefur
skilað sínu starfi.”
,,Er þetta ekki eins og gerist alls
staðar, er ekki stríð í öllum flokk-
um?” sagði Björn Ólafsson í
morgun. ,,Það er alltaf slagur um að
komast í þau sæti, sem eru örugg. En
það er ekki svo einfalt að hér sé um
tvohópa að ræða.”
Áttu von á því að einhverjir neiti
að taka sæti á listanum?
,,Það getur alltaf skeð. En félagið
tók þá ákvörðun að velja yrði bæði
konur og karla og því hlaut a.m.k.
einn bæjarfulltrúinn að detta. Vegna
þess var baráttan e.t.v. hatramm-
ari.”
-JH.
Ekiðátvöhross
Harður árekstur varð rétt norðan
við Húsavík í gærkvöld, er fólksbifreið
af gerðinni Toyota ók á tvö hross.
Drápust þau nær samstundis. Verið var
að reka hrossin en slæmt skyggni var
og dimmviðri. Mun ökumaður bilsins
ekki hafa séð hrossin. Bíllinn er stór-
skemmdur og farþegar fengu lítilshátt-
ar meiðsli.
-ELA.
Rúmur helmingur þeirra, sem
afstöðu taka, er fylgjandi því að
kapalsjónvarp verði leyft. DV spurði
fólk í skoðanakönnun, hvort það væri
fylgjandi eða andvígt því að kapalsjón-
varp væri leyft. 46.5% þeirra sem
spurðir voru vilja leyfa kapalsjónvarp,
en 36.7% eru því andvígir. 10.8%
spurðra voru óákveðnir og 6% vildu
ekki svara.
Séu aðeins teknir þeir sem afstöðu
taka eru 55.9% fylgjandi kapalsjón-
varpi, en 44.1% eru því andvígir. í
skoðanakönnuninni kemur í Ijós að
karlar eru frekar í því að leyfa kapal-
sjónvarp en konur og fleiri eru því
fylgjandi á Reykjavikursvæðinu en
annars staðar á landinu. -JH.
— sjánánarábls.4
Kemur fyrir
ríkisstjórn
á morgun
— segir Hjörleifur um
hækkun hita og
rafmagns
„Erindi frá Reykjavíkurborg liggja
nú þegar fyrir hér í iðnaðarráðuneytinu
og ég hef skoðað þau nokkuð. Við
eigum von á upplýsingum um afstöðu
viðskiptaráðuneytisins og málið
kemur líklega fyrir ríkisstjórnina á
morgun,” sagði Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra í samtali við DV í
morgun. Hann var inntur álits á
ákvörðunum borgaryfirvalda varðandi
13% hækkun á gjaldskrá Hitaveitunn-
arog 22% hækkun hjá Rafmagnsveit-
unni.
Svo sem skýrt hefur verið frá,
samþykkti borgarráð þessar hækkanir
á þriðjudaginn var og borgarstjórn
staðfesti þær á fimmtudaginn. Telja
borgaryfirvöld að hækkanirnar séu
heimilar að fengnu venjulegu samþykki
iðnaðarráðuneytisins, þar sem
verðstöðvunarlög séu nú úr gildi fallin.
Þurfi því ekki ríkisstjórnarsamþykkt.
Iðnaðarráðherra kvað viðskipta-
ráðuneytið kynna afstöðu sína til
síðastnefnda þáttarins jafnvel í dag,
þar væri um að ræða túlkun á
verðstöðvunarákvæðum. Á morgun
myndi hann síðan leggja málið fyrir
rikisstjórnarfund.
„Almennt er ég hlynntur þvi að
svigrúm sveitarfélaganna í gjaldskrár-
málum verði aukið, þó með tilteknu
aðhaldi. Þetta var einn liðurinn í yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar nú síðast, en
eftir er að móta hann nákvæmlega.
Erindi borgaryfirvalda ýta á eftir því,
að það verði gert,” sagði ráðherrann.
-HERB.
„Þoir hafa spurt mig hvort þotta sé veitt i Mosel, sagoi vatgeir Sigurðsson stöðina i Luxemborg. Lúðan er þáttur f mikiiii íslandskynningu þar i borg,
veitíngamaður i Luxemborg. Það sem Valgeir áttí að hafa vaitt i Mosei var sem byrjaði fyrir helgina og stendur fram eftír þessum ménuði. Óhsett er að
120 kg lúða úr Breiðafirðinum, sem hann sýndi fyrir framan jámbrautar segja að mikið só um dýrðir og nafn ísiands vei kynnt
JH/DV-mynd Jóhannes Reykdal.