Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Kærði óhæfilega frelsisskerðingu vorið 1976: Dæmdar 600 krona bætur eftir sex ára vafstur en lögmaður kæranda fékk 3.900 krónur í málf lutningslaun Fyrir nokkrum dögum féll dómur í Hæstarétti í máli manns sem kærði óhæfilega frelsisskeröingu af hálfu lögreglunnar í Reykjavík vorið 1976. Staðfestur var dómur í héraði um að -frelsisskerðing mannsins hefði verið lengri en efni stóðu til og honum dæmdar 600 krónur í bætur úr ríkissjóði að viðbættum vöxtum í áföngum. Málflytjanda mannsins voru hins vegar dæmdar 900 krónur fyrir málflutning í héraði og 3.000 krónur fyrir málflutning i Hæsta- rétti, til greiðslu úr rikissjóði. Frá þessu máli var greint í Dag- blaðinu 30. nóvember 1979 en þá hafði dómur fallið í héraði um mitt það ár. Átti það upptök sín í flóknu deilumáli um foreldrarétt yfir dreng. Faðir hans, Halldór Þ. Briem, var handtekinn á tröppum húss í Hlíðunum þar sem hann átti orða- skipti við konu er þar hafði drenginn í gæzlu. Vildi Halldór hitta son sinn en konan kallaði til lögreglu sem fjar- lægöi hann. Þessu næst var Halldóri stungið í fangelsi og settur í einangrun, sem stóð á annan klukkutíma, og bannað að hafa símasamband viö aðila utan fangelsisins. Alls var hann að minnsta kosti í sjö tima í höndum lögreglu. í lok skýrslu sem tekin var af Halldóri lofaði hann að ónáða gæzlukonu sonarins ekki framar. Halldór taldi meðferð lögreglunn- ar á sér óréttmæta og höfðaði mál á hendur fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til greiðslu skaðabóta fyrir óhæfilega hörku og langa frelsis- skerðingu. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að einangrun hefði veriö ástæöulaus og að ósannað væri að þörf hefði verið fyrir jafnlanga frels- isskerðingu og raun bar vitni. Voru Halldóri dæmdar gkr. 60.000 í bæt- ur, ásamt tilteknum vöxtum í áföng- um frá 1. apríl 1976 til greiðsludags en tekið fram að við ákvörðun bóta hefði verið tekið tillit til aðdraganda handtökunnar. Halldór hafði fengið gjafsókn í málinu og sagði í dómsorði í héraðsdómi að allur kostnaður skyldi greiðast úr ríkis- sjóði, þar á meðal þóknun til mál- flutningsmanns Halldórs, 90.000 gkr. Fjármálaráðherra áfrýjaði til Hæstaréttar og Halldór gagnáfrýj- aði. Dómur þar féll 23. febrúar síðastliðinn. Dómkröfum Halldórs um 4.000 króna bætur og tiltekna vexti var hafnað en dómur i héraði staðfestur, um 600 króna bætur með 13% ársvöxtum frá 1.4 1976 til 21.11 1977, síðan 16% til 21.2 1978 og 19% ársvöxtum frá þeim degi til greiðslu- dags. Gjafsóknarkostnaður er felldur á ríkissjóð og þar með þóknun mál- flutningsmanns Halldórs, 3.000 krónur. Fjórir af fimm hæstaréttardómur- um sem um málið fjölluðu felldu döminn en einn dómari skilaði sérat- kvæði og vildi hafna bótakröfu Hall- dórs, en var sammála meirihutanum um niðurfellingu málskostnaðar og greiðslu til málflytjanda Halldórs úr ríkissjóði. HERB Af ársþingi iðnrekenda: Ríkið á að skapa skilyrðin og láta okkur svo í f riði — sagði Davíð Scheving Thorsteinsson Fjölmennt var á ársþingi iðnrekenda sem haldið var að Hótel Loftleiðum. Aðalinntak þingsins var auk al- mennra þingstarfa að fjalla um nýút- komna skýrslu starfsskilyrðanefndar. í henni er fjallað um mismunun á starfs- skilyrðum hinna þriggja meginfram- leiðsluatvinnuvega, það er sjávarút- vegs, landbúnaðar og iðnaðar. Iðnrekendur hafa fagnað þessari skýrslu mjög og telja hana staðfestingu á því sem þeir haFi haldið fram undan- farin ár, að iðnaður á íslandi sé og hafi verið olnbogabarn í íslenzku atvinnulifi og ávallt settur neðst á listann af stjórn- völdum. Davíð Scheving Thorsteinsson, sem í gær lét af störfum sem formaður Félags islenzkra iðnrekenda, taldi skýrslu þessa mikinn sigur. Nú væri að- eins eftir að fá kerfið til að viðurkenna hana. j ræðu sinni rakti hann nokkuð hver hefðu verið helztu baráttumál og áherzluatriði hjá iðnrekendum þessi átta ár sem hann hefði gegnt for- mennsku. Ár eftir ár hefði málflutning- urinn í raun gengið út á það sama, án þess að nein alvarleg umræða hefði komið i staðinn um hvert stefndi og hvað þyrfti að gera. Ár eftir ár hefði sömu áskorun verið beint til stjórn- valda um að snúa við blaðinu og beina kröftum sinum að þvi að bæta lifskjör í landinu, án þess að nokkuð hefði verið aðhafzt. , Orðrétt sagði Davíð m.a.: „Það er ýmislegt sem gert hefur það að verkum að undanfarinn áratug hefur verið hægt að dylja það hvert stefnir í at- vinnu- og búsetumálum okkar. Það má meðal annars nefna: Stækkun land- helginnar, gífurlegar erlendar lántökur — að verulegum hluta til neyzlu en ekki til arðbærrar fjárfestingar. Sem dæmi má nefna að við jukum erlendar skuldir okkar um 10 millj. nýrra króna á hverjum einasta degi allt siðastliðið ár, á laugardögum, sunnudögum, jól- um, páskum, já, jafnvel 1. maí. Brott- flutningur rúmlega 5000 manns á síðastliðnum 10 árum, sem hefðu MIKIÐ URVAL AF KVENSKÓM Teg.326 Utur: brons Stmrð 3—7 Varð kr. 446 Teg. 876 Stmrð: 36-41 Utur: brona. hvftt Verð kr. 320 Teg. 827 Lftur: dðkkblátt m/sUfrí Stærð: 3—7 Verð kr. 490 Teg.3626 Utur: dökkblátt Stærð: 36-40 Verð kr. 635 Mikið úrval af skóm á alla fjölskylduna KÓpQYOQS HomroHborg 3 - Simi 41 754lEffiP nn Skó- yerslun margir hverjir líklega átt i erfiðleikum með að fá vinnu við sitt hæFi hérlendis. Dulbúið atvinnuleysi sem ég fyrir fáum árum benti á að gæti numið e.t.v. á bil- inu 5—20 þúsund manns. Raunveru- leikinn er sá að við höfum þegar upp- skorið árangurinn af stækkun land- helginnar. Við getum ekki aukið erlendar eyðsluskuldir með sama hraða og hingað til, án þess að draga niður lífskjör afkomendanna. Við verðum að auka framleiðsluna því á henni lifum við.” Og Davið hélt áfram: ,,Af langri reynslu minni get ég sagt: Ég hef enga trú á skrifborðsiðnþróun. Ég hef heldur ekki trú á gæluverkefnum stjórnmálamanna og ég hef ekki trú á sértækum aðgerðum, styrkjum, niður- greiðslum, útflutningsuppbótum og ekki því að ríkisvaldið sé með neFið niðri i öllu. Ríkisvaldinu berað_skapa almenn starfsskilyrði sem hvetja fyrir- tæki og einstaklinga til aukinnar fram- leiðslu, framleiðni og nýjunga og síðan að láta atvinnulífið í friði.” í lokaorðum sínum sagði hann: „Það sem við þurfum fyrst og fremst á að halda er það umhverfi, sá jarðvegur, sem frjálst atvinnulíf getur dafnað í... Nýstofnuðu fyrirtæki má líkja við við- kvæma jurt — umhverfi atvinnulífs á íslandi í dag má líkja við urð og það þýðir ekki að reyna að sá fyrir við- kvæmum jurtum i urð.” -JB Fávísi Svarthöfða eða skemmdarstarfsemi? I Dagblaðinu og Vísi sl. þriðjudag skrifar hinn „óþekkti” Svarthöfði neðanmálsgrein um Bókamarkaðinn í Ársölum og bóksölu almennt. Þar sem þessi grein er auðsjáanlega skrifuð af „einhverjum” sem ekkert veit um bóksölu á íslandi eða „ein- hverjum” sem vill skaða íslenzka bóksölu þá tel ég mig knúinn til að leiðrétta það rugl sem fram kemur í þessari grein. Það hefur reyndar staðið þeim nær, sem eru í forystu þeirra samtaka er bóksalar eru aðilar að, að svara þessari grein en þeir eru kannske uppteknir við annað. Svarthöfði segir m.a. „Hvergi mun fyrirfinnast annað eins fyrirbæri og þessi ágæti bókamarkaður”, og síð- ar. . . „um Bókamarkaðinn gegnir þó sérstöku máli vegna þess að sifellt er verið að þrengja kosti bókaunn- enda með takmörkun á bóksölu, sem er illskiljanleg”, tilv. líkur. Því er til að svara að fjórar bóka- verzlanir hér í borginni leggja sér- staka áherzlu á sölu eldri bóka, Bók- hlaðan, (Markaðshúsið), Bókabúð Máls og menningar, Bókav. Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúð Æskunn- ar. Markaðshús Bókhlöðunnar t.d. hefur standandi bókamarkað allt árið með um 4000 titla, í mjög aðgengi- legu umhverfi á Laugavegi 39 (bakhús). Verð bóka í þessum verzlunum er hliðstætt við Bókamarkaðinn og er því sá áróður „að hvergi sé lægra verð en þar” verulega ýktur. Svarthöfði fullyrðir að áður fyrr haFi verið hægt að fá bækur í verzlunum alit að þrjú ár aftur í tím- ann en að það sé úr sögunni. Ég fullyrði hér ognúaðaldrei hefur verið meiri möguleiki til þess að tryggja sér bækur fyrri ára í verzlunum en nú og ítreka ég þær verzlanir sem hér eru að framan greindar. OgennveðurSvarthöfðielginn. . . „mætti vel hugsa sér að láta hann standa allt árið” þ.e.a.s. Bókamark- aðinn í Ársölum. Það er Bókamark- aður starfandi allt árið í Markaðshúsi Bókhlöðunnar og ég býð hér með Svarthöfða í heimsókn. Þar sem hann kýs að halda sig i fel- um þá getur hann komið og litið yFir án þess aðgefa sig fram á staðnum. Margt annað er í þessari klausu Svarthöfða sem er búið til á ritvél en á ekkert skylt við raunveruleikann. Það er svo annað mál að bóksala hér á Íslandi þyrfti að fá umræðu í fjölmiðlum og skýra þá frá staðreyndum um íslenzka bókaút- gáfu og bóksölu. Ekki með uppslátt- arfréttum sem byggðar eru á fölskum forsendum, unnar á bókavertíðinni í desember, þegar enginn getur fjallað um þessi mál af neinu vid vegna anna. Útgáfa og sala bóka er ekki það sama og að flytja inn og selja hveiti og sykur, þess vegna verður að tala um þá hluti á annan hátt. Hver veit nema forustumenn í bók- tölumálum taki sig nú á og kynni fyrir landsmönnum þróun íslenzkrar bóksölu og hvernig staða hennar er í dag. Eyjólfur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bókhlöðunnar. óji£i'iWtia')»IV(5AfJUlJdGK'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.