Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sósíaldemókratar Schmidts töpuðu — Báðir stjórnarflokk- amirmisstu fylgi ífylkis- kosningunum ígær Sósíaldemókratar Helmuts Schmidts kanslara töpuðu miklu fylgi í fylkis- kosningum í Schleswig-Holstein í gær. Bráðabirgðatölur sýna að flokkurinn tapaði 6%. Hann fékk 34,55% en haf ði síðast 40,51%. Frjálsir demókratar, samherjar þeirra í Bonnstjórninni, töpuðu einnig atkvæðum (úr 7,28% fylgi niður í 6,84). Kristilegir demókratar juku fylgi sitt úr 49,18% í 50,11%. Talsmaður sósíaldemókrata í fylkinu vildi kenna niðurstöðuna dræmri kjör- sókn eða 5% minni en í kosningunum fyrir fjórum árum. Af 1,9 milljón kjós- enda kusu 73,89%. Margir vilja spá því að úrslitin í Schleswig-Holstein muni hafa áhrif á kjósendur í öðrum fylkjum í norður- hluta landsins, en þar eru fyrirhugaðar kosningar, t.d. í Neðra Saxlandi og Hamborg á næstu þrem mánuðum. Kristilegir demókratar hafa þegar meirihluta i Neðra Saxlandi en vinni þeir Hamborg (í júní) eru möguleikar á að þeir nái 2/3 meirihluta i „bundes- rat” (efri deild sambandsþingsins). 1 þeirri aðstöðu gætu þeir stöðvað laga- frumvörp ríkisstjórnarinnar. í kosningunum í gær töpuðu sósíal- demókratar þeim hreina meirihluta sem þeir höfðu í Kiel þegar fylgi þeirra féll Sósíaldemókratar kenndu dræmri kjör- sókn um fylgistap sitt i kosningunum í gær. úr 50,34% í 41,38%. Ný sarntök sem buðu frarn og berjast fyrir takmörkun á fjölda útlendinga starfandi í V- Þýzkalandi hlutu 3,77% atkvæða í Kiel. Schmidt kanslari hefur látið í Ijós áhyggjur af vaxandi fjandskap i garð hinna erlendu farandverkamanna i V- Þýzkalandi en þeir eru orðnir um 4,65 ntilljónir (V-Þjóðverjar eru alls 55,5 milljónir). Græningjarnir, flokkur umhverfis- verndarsinna, fengu um 5% atkvæða i kosningunum i gær. SPRENGING í OLÍUSKIPI Um 45 þúsund smálesta bandarískt olíuskip sökk í gær um 750 mílum austur af Bermúda eftir heljarspreng- ingu sem varð um borð í því. Níu er saknað af tuttugu og fimm manna áhöfn skipsins. Sextán menn af olíuskipinu Golden Dolphin komust í björgunarbátana eftir sprenginguna og var þeim síðar bjargað í sænskt skip, Norrland. Norr- land leitaði mannanna niu seni saknað var en án árangurs. Golden Dolphin var á leið með tóma farmgeyma til Port Said frá New Or- leans til þess að sækja oliufarm. Haft er eftir skipstjóranum að sennilegast hafi mennirnir níu farizt við sprenging- una en þeir höfðu verið að vinna niðri í tönkum þegar hún varð. Ekki er vitað um orsakir sprengingarinnar. KÍNVERJAR HELM- INGA OPINBER UMSVIF BÁKNSINS Rúmlega 200.000 opinberir starfs- menn i Kina eiga nú von á uppsögn á starfi vegna fyrirhugaðra ráðstafana Kínverja til að draga úr opinberum um- svifum. Tillagan um þessar breytingar er eignuð Zhao Ziyang forsætisráðherra og gerir hún ráð fyrir að fjöldi ráðu- neyta og annarra miðstjórnarskrifstofa verði skorinn niður um helming. Einnig stendur til að fækka starfsmönnum miðstjórnar um 1/3 og aðstoðarfor- sætisráðherrum, ráðherrum og aðstoð- arráðherrum fækkar um 1000. Zhao leggur til að ráðuneytum, nefndum á vegum ríkisins og stjórnar- skrifstofum verði fækkað um nálega helming, eða úr 92 í 52. Kínverska fréttastofan Xinhua hefur eftir Zaho að eftir breytinguna haldi aðeins 27 af 117 ráðherrum og að- stoðarráðherrum embættum sinum og þeir sem fá að halda embættunum verði yngri mennirnir. Fréttastofan nefnir engar tölur í sambandi við niðurskurð á aðstoðar- forsætisráðherrum en sá orðrómur er nú á kreiki í Peking að aðeins 3 af núverandi 11 aðstoðarforsætisráð- herrum fái að halda embætti. Zhao forsætisráðherra lagði á það áherzlu við flutning tillögunnar að hér væri um að ræða „byltingarkennda” atlögu gegn ofþenslu opinberra umsvifa en ekki mætti misskilja hana svo að henni sé beitt gegn þeim ein- staklingum sem verða fyrir barðinu á henni. Zhao Zlyang: Trúir á róttækar aðgerðlr. SPRENGiUTILRÆÐI 0G SKOTHRÍD A KJÖRDAGINN Kosningarnar í Guatemala fóru fram í gær, eins og ráðgert hafði verið, en vinstrisinna skæruliðar reyndu að spilla þeim með skærum og sprengjutil- ræðunt og útsendingum frá leyniút- varpsstöðvum. Átta minni háttar sprengjur sprungu í höfuðborginni en ollu litlu tjóni og engum meiðslum. Brú var sprengd í loft upp í norðvesturhluta landsins til þess að torvelda fólki að komast á kjör- stað en íbúum þar var hótað lífláti ef það kysi. í höfuðborginni mátti annað veifið heyra skothvelli í gær en að öðru leyti segja yfirvöld að flest hafi verið með kyrrum kjörum i landinu. Skotið var á heimili eins frambjóðanda hægri manna úr bifreið á ferð en engan sak- aði. Af kjörsókn eða talningu hafði ekk- ert frétzt enn í morgun. DREVmiR ÞIG Um: * GRÓOURHÚ/ */Ó L/KVLI * VFIRBVGGÐn VERÖnO * EDfl JflFflVEL * GflRD/TOFU ? VIO EIGUm RÉTTII EFOIO TIL RO LRTR ORRuminn rktr/t. TVÖFRLT 'plojdglas RKRVLGLER HEFUR ÓTRÚLEGR mÖGULEIKR /KOOIO mvnORLI/TR OKKRR okron /ídumúlo 31, 105, rvk. /ími: 33706 ®, plexíglas •Inkoumbod

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.