Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Enn blómstrar verzlun með böm frá þróunarlöndum Eftir alla umfjöllunina í fyrra um hinn mikla barnaútflutning frá Suð- ur- Ameríku, barna sem bókstaflega voru seld til ættleiðingar hjá barn- lausum foreldrum í Vestur-Evrópu og í Bandaríkjunum, hafa menn beint sjónum sinum að Sri Lanka. Þar hefur blómstrað að undan- förnu verzlun á þessum sama varn- ingi. Ungbörn eru seld þaðan úr landi á allt að fimmtíu þúsund krónur „stykkið1” — „Framleiðendurnir”, eða öðru nafni mæðurnar, fá í sinn hlut um 750 krónur. Hörgullá vesturhluta en offramleiðsla íþriðja heiminum Eins og í ljós kom um barna- verzlunina frá Suður- og Mið- Ameríku eru kaupendurnir aðallega Vestur-Evrópumenn og þá fyrst og fremst barnlaust fólk sem vex í aug- um hinn langi listi er bíður eftir börn- um til ættleiðingar eftir hinni löglegu hefðbundnu leið „kerfisins” hjá því opinbera. Fyrir þá sök hafa þessi viðskipti snúizt meir til Sri Lanka að þar eru ættleiðingarlög rýmri en víða þekk- ist. Sri Lanka er þróunarríki, þar sem fjöldi fólks hefur naumast málungi matar en er um leið mannfjölgunar- vandi á höndum. Barnakaupmenn finna þar hin hagstæðustu markaðs- skilyrði fyrir þessa verzlun. Athygli stjórnvaida vaknar Athygli stjórnvalda á Sri Lanka hefur nú vaknað á þéssari verzlun sem eins og áður segir hefur blómstr- að við nefið á þeim afskiptalitið hing- að til. Eru nú uppi ráðagerðir um að taka ættleiðingarlög landsins til endurskoðunar til þess að stemma stigu við þessum fráhrindandi við- skiptum. Enda skila útflutnings- tekjurnar sér ekki nema að sáralitlu leyti í þjóðarbú Sri Lanka. Asoka Karunaratne, félagsmála- ráðherra Sri Lanka, sagði þingmönnum á dögunum, þegar þetta mál bar á góma, að dæmi væru þess að börnin seldust á allt að 50.000 krónur erlendis meðan mæðurnar fengju eitthvað í kringum 750 krónur. — Nú hefur stjórnin í undir- búningi að leggja fyrir þingið frum- varp til laga að lokinni endurskoðun gildandi laga um ættleiðingar barna á Sri Lanka og þá einkanlega um úr landi. Ráðherrann upplýsti þingheim um að þessi verzlun væri orðin svo stór í sniðum að atvinnumenn á þessu sviði hefðu sett á stofn „smábarnabú”, þar sem börnin eru geymd áður en þau eru seld fósturforeldrum erlendis. — „Þetta er orðin stór kaupsýsla, þar sem margir hafa stór- auðgazt á skömmum tíma,” sagði hann. Útibú í nokkrum löndum Það var fyrir stuttu að lögreglan gerði húsleit í einu slíku „búi” í Killupitiya-héraði Kólombó og fann þrjú ungbörn, öll innan við þriggja mánaða, sem hvert um sig hafði verið keypt á 550 krónur af móður sinni. Tvær manneskjur eru í haldi til yfir- heyrslu vegna þessa máls. Eitt af helgarblöðum Sri Lanka hafði eftir forstöðumanni skilorðs- eftirlits Hamborgar, Hans Peter Opitz, að ákveðin hollenzk fyrirtæki hefðu opnað útibú í vestur-þýzkum borgum til þess að svara eftirspurn eftir ungbörnum frá þriðja heims- Þessi börn keypti iögmaður einn i Kóiombiu f fyrra fyrir 600 dollara og þá góö iaun fyrir umboðsmennsku sina. Stóra systir getur orðið ósköp þreytt á að passa litla bróður.... löndum. Þessi stofnun uppgötvaði ekki alls fyrir löngu þrjátíu Sri Lanka-börn undir tveggja ára aldri sem geymd voru á „heimilum” í Hamborg og biðu þess að verða seld. — Þetta blað fullyrti að yfir eitt þúsund barnlausir foreldrar þráðu að komast yfir þessi börn, sem venju- legast væru seld hæstbjóðanda. Guðmundur Pétursson Vakta sjúkrahúsin Embættismenn í Kólombó segja að ættleiðingarstofnanir hafi erindreka á sinum snærum á Sri Lanka og skipuleggi þeir „skoðunarferðir” um eyjuna fyrir foreldra í leit. Aðrir for- eldrar skipta við Sri Lanka-erindreka beint í gegnum póst. Leel Gunasekera, forstjóri skil- orðseftirlits á Sri Lanka og um leið Þessi börn fundust i umsjá milligönguaðila f Kóiombiu og höfðu liðið skort en voru fljót að braggast i höndum betra fólks. barnaverndarnefndar, segir að erind- rekar á þessu sviði hafi sín sambönd við sjúkrahúsin, þar sem þeim sé gert viðvart um barnsfæðingar í tilvikum sem móðirin vill helzt láta bamið fá. sér. Rúm ættieiðingar/ög Yfirvöld fá litið við þessu spornað ennþá, þar sem þessir kaupmenn framvísa í flestum tilvikum tilskild- um lögboðnum leyfum og pappírum frá dómstólum í Sri Lanka. Ættleið- ingarlögin eru svo rýmileg. Foreldrar geta gefið börn sín hverjum sem vera skal. Eina skilyrðið af laganna hálfu er að fósturforeldrarnir geti séð fyrir barninu. Skýringuna á grósku þessarar kaupsýslu er eins og fyrri daginn að finna I seinlæti kerfisins opinbera. Fólk sem vill fara löglegar leiðir, sem enginn óþokki liggur á, gefst upp á bíða eftir seinagangnum og snýr sér til barnaerindrekanna. 900sendút ífyrra í fyrra munu um níu hundruð börn hafa verið send frá Sri Lanka til ætt- leiðingar og fósturs erlendis. Samt bíða enn um fjögur hundruð um- sóknir þar til viðbótar frá síðasta ári eftir afgreiðslu. — Meðal valdhafa eru skoðanir skiptar um hvort banna eigi alveg ættleiðingar barna úr landi vegna hættunnar á að einhverjir aðil- ár misnoti sér neyð fæðingarforeldra og væntanlegra fósturforeldra til gróðabralls. Uppi eru tillögur um að einfalda ættleiðingarkerfi þess opin- bera og um leið gera það að skilyrði að opinberar stofnanir afgreiði einar þessi mál. Framtíð barnanna Hins vegar eru þeir sem telja að bann við ættleiðingu brjóti á rétti foreldra til þess að sjá börnum sínum borgið á þann hátt, sem þeir sjá beztan. Heyrist í því sambandi bent á hve dapurlegt hlutskipti bíði barna fátækra foreldra á Sri Lanka, en alls- nægtirnar I faðmi ríkra fósturfor- eldra erlendis. Brezka blaðið „Sun” hefur núna um árabil rekið herferð gegn þessari barnaverzlun og leiðarhöfundur þess segir: „Enginn vill skiljast við börn sín. Það er einungis sárasta fátækt sem knýr fólk til þess.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.