Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Uppgjör og framta/saðstoð Upplýsingar og tímapantanir í síma 82027rkvöld- og helgarsími 72525. BÓKHALDSÞJÓNUSTAN EgillG. Jónsson, Ármú/a 11. Ríkisféhirðir vill ráða gjaldkera frá næstu mánaðamótum. Starfsreynsla æskileg. Reglusemi áskilin. Umsóknir sendist til ríkisféhirðis, Arnarhvoli, Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 100., 102. og 104. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1981 á eigninni Álfaskeið 4, Hafnarfirði, þingl. eign Árna Aðalsteinssonar og Hlöðvers Aöaisteinssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 12. marz 1982 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1103., 106. og 1 lO.tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Dalshraun 14, Hafnarfirði, þingl. eign Karls Jónassonar og Vörumerkingar hf., fer fram eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs og Iðnaðar- banka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 11. marz 1982 kl. 14.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 84., 89. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Lindarflöt 41, Garðakaupstað, þingl. eign Guðmundar Guð- mundssonar, fer fram eftir kröfu Iðnaðararbanka íslands hf. og Búnaðar- banka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 11. marz 1982 kl. 15.00. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 103., 106. og 110. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á eigninni Gimli v/Álftanesveg, Garðakaupstað, þingl. eign Guðmundar Einarssonar, fer fram eftir kröfu Innheimtu ríkissjóðs og Garðakaupstað- ar á eigninni sjálfri fimmtudaginn 11. marz 1982 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 81., 83., og 87. tölublaði Lögbirtingablaðsins 19811 eigninni Álfaskeið 125,3. h. t.h., þingl. eign Guðrúnar Sigurðardóttur, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 11. marz 1982 kl. 16.00. Bæjarfógetinn f Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið i Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Kirkjubraut 32 f Njarðvfk, þingl. eign Ólafs Haraldssonar fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Kjartans Revnis Ólafssonar hrl. fimmtudaginn 11. marz 1982 kl. 15. Bæjarfógetinn f Njarðvfk. Nauðungaruppboð annað og sfðasta á fasteigninni Heiðarvegur 19, kjallari, f Keflavfk, þingl. eign Ililmars Arasonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. og innheimtumanns rfkissjóðs miðvikudaginn 10. marz kl. 10.30. Bæjarfógetinn f Keflavfk. Menning Menning Menning i AÐ KUNNA Sm FAG SVOINDÆLT STRANDHÖGG? Tónleikar Hóskóiakórsins í Fólagsstofnun stúdenta 28. febrúar. Stjórnandi: Hjólmar H. Ragnarsson. Efnisskró: Islenskir tvböngvar; Islensk þjóð- lög f úts. Hjólmars H. Ragnarssonar; Heyr, himna smiður, eftir Þorkel Sigurbjömsson; Gamalt vers eftir Hj. H. R., Tvö kódög f minningu Benjamins Brittens eftir Atla Heimi Sveinsson; Á þessarí rfmlausu skeggöld eftir Jón Ásgeirsson; Fimm mansöngvar úr Kantötu IV eftir Jónas Tómasson; Tveir madrfgalar eftir Atfa Heimi Sveinsson; Carda Exotica eftir Hjólmar H. Ragnarsson. Geri aðrir betur Sé litið yfir afrekaskrá Háskóla- kórsins kemur i ljós að hann hefur ekki sungið útlent lag í meira en ár, ef undan eru talin stúdentaminni sem löngu hafa öðlast þjóðlagastatus og þegnrétt í íslenskum tónþókmennt- um. Meira að segja hefur Háskólakór- inn frumflutt drjúgan hluta af þessari íslensku músik sem hann hefur haft á söngskránni. Mesta afrekið í þeim efnum var á tónleikum í fyrra, þegar öll dagskráin var frumflutt og auka- lagið líka. Er nokkur furða þótt manni verði að orði. . . og geri aðrir kórar betur. Nú skal haldið í vesturvfking Söngskrá þessara tónleika mótað- ist af því að nú skal haldið í víking. Vesturvíking nefndu menn það í fornum sögum herja á írlandið græna. En hugtakið á að sjálfsögðu við þá ribbalda sem réðust af Skandinaviuskaga á friðsama íra en ekki náskylda menn utan af íslandi. En því líki ég söngför Háskólakórsins við víking að ég ætla að söngur kórs- ins og geta eigi eftir að koma álíka flatt upp á frændur vora, þar í græna, og hark víkinga gerði forð- um. Sumt af söngskránni hefur stað- ið áður á skrá kórsins. Tilefnið réð þvi að ekki var allt spánnýtt á söng- skránni í þetta skiptið. Um sum verk hefur áður verið fjallað og tini ég því helst það til sem nýtt var á þessum tónleikum. Ferskur andi og lista- handbragð Útsetningar Hjálmars H. Ragnars- sonar á íslenskum þjóðlögum stóðu merkilega nærri tvísöngslögunum, skráðum af Bjarna Þorsteinssyni, sem á undan fóru. En Hjálmar gæðir þau líka ferskum anda með skemmti- legum stílbrögðum, nútímalegum en samt í fullu samræmi við anda lag- anna. í fyrra söng kórinn The Sick Rose en nú bættist við hitt lagið úr samstæðunni, Death, be not proud. Atli Heimir hefur með þessum kór- lögum sínum ritað fegurstu eftirmæli um mæringinn Britten. Lögin eru mjög í anda Brittens svo að hlustandinn er ekki i vafa um hvern er ort en heldur ekki í vafa um hver yrkir því handbragðið leynir sér ekki. Galdurinn er bara sá að... Og svo voru það Dunganon- kvæðin. Þessi skáldskapur, sem flest- um hefur þótt bull, í hæsta lagi hugguleg vitleysa, öðlast allt í einu fyllsta gildi afbragðs söngtexta. Hjálmar H. Ragnarsson hefur sem sé sett fram sönnun þess að sé hrynjand- in óbrengluð fyrir hendi fái menn notið ljóða á ólíklegustu tungum. Galdurinn er bara sá að klæða ljóðin í lifandi búning og það tekst Hjálm- ari fulikomlega með sinni skemmti- legu en erfiðu músik. Og það er kannski mergurinn málsins. Háskóla- kórinn hefur náð ótrúlega góðu valdi á hinum erfiðustu verkefnum. Slikt hefst ekki nema með þrotlausri vinnu undir handleiðslu stjóra með verksvit og svo þessu broti af öllu saman sem stundum er kallað músíkalítet. Að lokum leyfi ég mér að halda fram að aldrei hafi írar þurft að þola jafnþægilegt strand- högg sem þessa heimsókn Háskóla- kórsins. EM Tekiö með tilhlaupi Edda Erlendsdóttir getur, hér heima á Íslandi að minnsti kosti, kall- ast sérfræðingur í franskri píanó- músík og hún hefur verið drjúg við að leika hana. Hún tók eiginlega til- hlaup að þessum tónleikum með há- skólatónleikunum um daginn, sem ég varð því miður að láta fram hjá mér fara. En þetta atriði, að leika sömu verkin nokkrum sinnum á stuttum tíma, er einna vænlegast til að ná góðum árangri, hér hjá okkur. Því miður eru tækifærin of fá en hverf- andi er sú hætta að leikurinn fari að verða alþjóðlega átómatískur á ekki stærri markaði en ísland er. Frábær leikur, listileg uppröðun En snúum okkur frá vandamálum einleikara almennt og að tónleikum Eddu. Tónleikar hennar voru frá- bærir. í fyrsta iagi er Edda góður píanisti með fljúgandi tækni. Í öðru lagi er ekki hægt annað en að vera henni hjartanlega sammála um stíl- inn, að minnsta kosti hvað varðar verkin á þessum tónleikum. Og vel á minnst, efnisskrá. — Hún var listi- lega saman sett, bæði hvað snertir val og röðun. Þetta heitir að kunna sitt fag. Aðeins í einu tiliiti var ég ekki fyllilega ánægður með tónleika Eddu. Fínustu og mýkstu atriðin urðu fullhörkuleg fyrir minn smekk. En þess verður líka að gæta að í leik „Háskólakorinn hefur náö ótrulega gagnrýni sinni. góðu valdi á hinum erfiðustu verkefnum,” segir Eyjólfur Melsted í sinum glímdi Edda viö strigamollu Kjarvalssalar og ég þekki engan tón- listarmann sem farið hefur með sigur af hólmi í þeirri viðureign. Óánægja mín ætti því fremur að beinast að salarkynnum en flytjandanum því að leikur Eddu var sem fyrr segir frá- „Edda Erlendsdóttir getur, hér heima á íslandi að minnsta kosti, kallazt sérfræðingur i franskri pfanó- músik og hún hefur verið drjúg við að leika hana.” Tónleikar Eddu Eríendsdóttur á Kjarvab- stööum 28. febrúar. Efnisskrá: Emmanuel Chabrier Paysage og lmprovisat<on, Gabríel Fauré: Noctume nr. 6 op. 63; Claude Debussy: Etyflur nr. 1, nr. 8 og nr. 11; OHver Messiaen: Le Baiser de l'Enfant-Jésus; Maurice Ravel: Jeux d'Eau og Ondine. Oft slæðast frönsku tónskáldin, sem báru uppi tónlistarblóma lands sins á öldinni sem leið og fram á þessa öld, inn á efnisskrár píanista okkar. Það er hins vegar harla fátitt, ef ekki einsdæmi, að píanisti setji saman efnisskrá með verkum þeirra eingöngu. Gjarnan er tónskáldum þessa tíma blandað saman við aðra listamenn, sem þau umgengust, og þá sérstaklega málarana, impressionist- ana. í sjálfu sér er afar erfitt að heim- færa músíkina beint upp á impressionismann eins og hann birt- ist í myndlistinni. Músíkin er og verð- ur ætíð í eðli sínu abstrakt en hitt er vel þekkt að málarar, sem aðrir lista- menn, hafa sótt sér örvun til tónlist- arinnar. Þannig má ef til vill tengja vissa músíkstefnu við myndlistar- stefnu. Allar tengingar af þessu tagi hafa samt harla fátæklegt gildi annað en sögulegt. Tónlist Eyjólfur Melsted SKYLDU ÍRAR NOKKURN TÍMA HAFA ÞURFT AÐ ÞOLA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.