Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 15
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
15
nng
Menning
Menning
Menning
Menning
Þá hefur Einar Hákonarson,
skólastjóri Myndlista- og handíða-
skóla íslands, sett upp sýningu að
Kjarvalsstöðum. Hér eru alls 56 mál-
verk þar sem aðalyrkisefnið er
maðurinn og hans næstu umhverfi.
Sýningunni lýkur 13.3.
Ný sýn
Einar Hákonarson er þegar orðinn
númer í íslenskri listasögu. Það var
hann sem dreif upp íslenska grafík á
sínum tíma — einnig var það þessi
sænskmenntaði málari sem leiddi inn
nýja og ferska sýn á fígúruna og
samspil hennar við umhverfið.
Myndverk listamannsins hafa
jafnan einkennst af sterkri línu-
áherslu, faglegri teikningu og flatar-
verkun. í sinum fyrri verkum braut
hann gjarnan upp myndflötinn á af-
markaða reiti, einskonar „myndir f
myndinni”, þar sem myndefnið er
endurbygging á samtímis ólíkum
Frjálst er I fjallasal, nr. 42.
Ljósmyndir. GBK.
Blítt og létt
sjónarhornum og þar af leiðandi
tímum.
Myndbreyting
Á síðastliðnum árum hafa orðið
verulegar breytingar í myndverki
listamannsins og kemur það glöggt
fram á þessari sýningu að Kjarvals-
stöðum. Myndsenan er ekki lengur
brotin upp í ólík afmörkuð mynd-
ferli, heldur er hún orðin vettvangur
fyrir hefðbundna samfellda frásögn.
Fígúran hefur fengið meiri efnis-
kennd, ákveðna þykkt, sálfræðilegt
inntak og manneskjulegri blæ. Við
þessar myndbreytingar hefur hin
sterka flatarverkun hopað fyrir
dýnamiskri pensilskrift, sem þó er
ávallt umleikin, beisluð, línu sem
afmarkar formið. Myndverkin byggj-
Myndlist
Gunnar BL Kvaran
ast þvi fyrst og fremst á þessari linu,
teikningu sem rissar upp okkar hvers-
dagslega líf og einfaldar mann-
eskjuna í hennar frumdrætti.
KyrrO — óró
í raun notar listamaðurinn teikn-
inguna til að tjá okkur tvær mynd-
gerðir. Annars vegar kyrrar uppstill-
ingar, þar sem línan er uppistaða og
afmarkandi fyrir blæbrigðaríka lita-
meðferð, og hins vegar eru það
ærslafullar senur, þar sem lista-
maðurinn vill „teikna upp’’ ákveðið
andrúmsloft sem fyrir bragðið
nálgast óneitanlega hreinræktaðan
karikatúr — eins og sjá má í verkinu
„Umræður utan dagskrár”, sem
minnir á litaðan karikatúr i risaform-
ati. Listamanninum tekst mun betur
upp í „Partý” að þýða með línunni
ábúðarmiklar persónur þar sem
einstaklingurinn er minna skilgreind-
ur, einskonar hæverskt form sem
ganga hver inn í annað, unnin i djörf-
um en þó blæbrigðaríkum lit. Með
því að leggja áherslu á heildarhrynj-
andi línunnar framkallast vel hjá
áhorfendum stemmning veislunnar.
Það er greinilegt að Einar
Hákonarson hefur skapað sér
persónulegan stíl sem nýtur sín einna
best í kyrrlátum stemmningsmyndum
þar sem mótífið nálgast að hafa
óhlutlæga sögn. Þvi í þeim myndum
sem bjóða upp á ærslafulla tjáningu
er sem skorti meiri kraft, meiri líkam-
lega og andlega hlutdeild listamanns-
ins í myndverkinu.
K/assík
Þó svo heildarsvipur sýningarinnar
sé líflegur og allt að því skemmti-
legur eru verkin æði misjöfn. Mynd-
irnar eru yfir höfuð lítið unnar og
spurningin aðeins: „ganga þær upp
eða ekki” í fyrstu lotu. Sumar gera
það, aðrar ekki.
Þá notfærir listamaðurinn sér þá
hefðbundnu tækni að skipta
andlitum og formum í afmarkaða
litafleti, og þá gjarnan í mjúkum lit-
brigðum. Gefur þessi tækni oft á
tíðum átakslausan en flottan svip.
Það er því greinilegt að myndverk
listamannsins er að breytast og ef til
vill verður fróðlegt að sjá hvernig
liturinn mun hafa áhrif á linuna i
komandi verkum.
-GBK.
VOLVO
'Ryðvörn er innifalin í verði.
343 DL
345 DL
Hjá öðrum eru gæði nýjungr
hjáVbhrahefð!
Á meðan aðrir bjóða „litla bíla" á
u.þ.b. 150.000 krónur bjóðum
við Volvo 340 í þremur mis-
munandi útfærslum. Petta eru
dæmigerðirVolvoar, þarsem
gæðin sitja í fyrirrúmi, en verðið
er lægra en flestir gera sér í
hugarlund. haðerekkiáhverjum
degi, að þú getur fest kaup á
nyjum Volvo fyrir lægra verð
en almennt gerist og gengur á
bílamarkaðnum.
Volvo 340 bílarnireru allirfram-
Volvo B14. hað er snörp vél og
lipur, 70 hestöfl DIN. B14 er
hljóðlát og viðbragsðgóð
1,41 vél.
Hinn kosturinn heitir Volvo B19.
Það er kraftmeiri vél, sem margir
sækjast eftir. B19 er 95 hesöfl
DIN og 2 lítra.
Volvo 340 bílarnir eru allir bein-
skiptir, - með 4ra gíra Volvo gír-
kassa. Þá má einnig fá bílana
sjálfskipta. Bæði beinskiptu og
sjálfskiptu gírkassarnireru við
afturöxul, en það ereinmitt
lykillinn að fráþærum þyngdar-
hlutföllum Volvo 340.
eiddir samkvæmt gæða og
öryggiskröfum Volvo - munur-
inn liggur i hurðum, innrétt-
ingum, hestöflum og gírkassa.
Þú getur valið á milli 2ja vélar-
stærða í Volvo 343 og 345.
Annars vegar er um að ræða