Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 17
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. MANUDAGUR 8. MARZ 1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Verð:
Ford Escort GL 5 dyra
Kr. 139.000
Ford Escort GL Station
Kr. 140.000
Ford Escort XR3
Kr. 165.000
NÝR 0G GIÖRSREYTTWt
F0RD ESC0RT
,,Ég skora á útvarpsráð að taka aftur
upp sýningar á Dallas,” segir 4108—
6416 sem gjarnan vill fá meira af léttu
afþreyingarefni.
Villfá Dallas
aftur
— ognýjajétta
sjónvarpsþætti
4108—6416 hringdi:
Ég skora á útvarpsráðað taka aftur
upp sýningar á Dallas. Hvernig væri
síðan að fá nýja létta þætti, eins og t.d.
Love — Boat, Odd Couple og eitthvað
hresst í þeim dúr.
Þessi Nprðurlandakomplex útvarps-
ráðs er óþolandi sbr. kaup á 365
sænskum þáttum, eða hvað það var.
Hvernig væri að spara útgjöld vegna
drepleiðinlegs efnis? Hvernig væri síð-
an að spara með því að leggja niður
starf þulanna? Það hlýtur að vera hægt
að finna einhverja aðra lausn á þessum
kynningum.
Dagskráin birtist i öllum blöðum, er
lesin í útvarpi og að lokum birtist hún í
sjónvarpinu. Síðan sitja þessar konur á
fullu kaupi 6 kvöld vikunnar til jæss
eins aö segja örfá orð við og við. Af
hverju ekki verja launum þeirra i al-
mennilegt sjónvarpsefni?
Vegna ummæla formanns Frama, félags leigubif reiðastjóra:
ÓMAKLEG ÁRÁS Á HREINSUN-
ARDEILD GATNAMÁLASTJÓRA
í lesendadálki Dagblaðsins & Vísis,
2. marz s 1., heldur formaður Frama,
félags leigubifreiðastjóra, því fram, að
undirritaður hafi tjáð honum, að
starfsmenn hreinsunardeildar væru á
vakt allan sólarhringinn við hálkueyð-
ingar og snjóhreinsun á gatnakerfinu.
Þar sem hér er ranglega eftir hermt vil
ég taka eftirfarandi fram:
Á sl. hausti samþykkti fram-
kvæmdaráð að komið yrði á föstum
tvöföldum vöktum virka daga vikunn-
ar í þessu skyni. Morgunvaktin er frá'
kl. 04.00—13.30 og kvöldvaktin frá
13.30—23.00.
Fastur tækjafjöldi og mannafli á
hvorri vakt er 4 bílar með saltdreifibún-
aði og 1 til vara, vaktstjórabill,
ámoksturstæki og sex menn. Mann-
skapurinn hefur talstöðvarsamband sin
á milli og við bækistöð.
Lið þetta er mjög áberandi í umferð-
inni (m.a. með blikkandi gul ljós),
þannig að leigubifreiðastjórar ættu að
hafa orðið varir við að það er ekki að
störfum frá kl. 11.00 á kvöldin til kl.
4.00 á morgnana, ef þeir eru eins mikið
á ferðinni og formaðurinn segir. Um
helgar eru ekki fastar vaktir, heldur er
bakvaktaskylda og liðið kallað út eftir
þörfum hverju sinni á þeim tima.
Tekið skal fram að þessi vaktþjón-
usta er ekki bara vegna strætis-
vagnakerfisins, heldur fyrir alla öku-
menn, þar sem ekki bara strætisvagna-
leiðir og helztu hryggjarliðir gatnakerf-
isins eru hálkueyddir, heldur um 75%
gatnakerfisins. Þetta fyrirkomulag
hefir gefizt mjög vel og starfsmennirnir
fengið verðskuldað hrós fyrir frammi-
stöðuna.
Á ég ekki von á því, að það séu
margir leigubifreiðastjórar á bak við
þessi skrif formannsins. Skýringar á of
lítilli leigubílaþjónustu, sem al-
menningur kvartar yfir, verður að leita
annars staðar en hjá lélegum vinnu-
brögðum hreinsunardeildarinnar. Árás
—skýríngará
oflítm
þjónustu
verðurað
leita annars
staðar
formanns Frama, á hreinsunardeild
gatnamálastjóra, er ómakieg með öllu.
Gatnamálastjóri segir 110
hreinsunardeildar sinnar vera mjög
áberandi (m.a. með blikkandi gul Ijós) I
umferðinni, svo það ætti ekki að geta
farið fram hjá leigubílstjórum — ef
þeir eru þó eins mikið á ferðinni og
formaður Frama segir þá vera.
&&&& Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
Lágmarks loftmótstaða:
Nýi Escortinn er með straumlínulagaða yfir-
byggingu, sem minnkar loftmótstöðuna og þar
með benzíneyðsluna. Þar að auki leggst loft-
streymið þannig, að afturrúðan helst hrein.
Frábærir aksturseiginleikar:
Framhjóladrif, mikil sporvídd og sjálfstæð
Ijöðrun á hverju hjóli gefa bílnum einstakt
veggrip og rásfestu.
Nákvæmt tannstangarstýri og aflhemlar með
álagsjafnara auka öryggi í akstri.
Góð nýting
á farþega- og farangursiými:
Þverliggjandi vél og sjálfstæð fjöðmn á hverju
hjóli gefa möguleika á 5 nímgóðum sætum o<
stærri farangursgeymslu. Aftursæti má leggja
fram og auka farangursrými til muna.
Ford Escort - Bíllinn sem var kosinn bíil ársins í Evrópu og Bandaríkjunum á síðasta ári.
Ford Escort er fáanlegur
station-útgáfu.
Ford Escort - Þýzkur gæðabfll.
dyra auk
Stjórntæki í sérflokki.
Escortinn er einstaklega auðveldur í akstri.
Stýri, hemlar og vél svara viðbrögðum öku-
mannsins á augabragði. Allir rofar em vel stað-
settir, mælar em vel merktir og endurkasta ekki
ljósi. Sæti em stillanleg og veita góðan
stuðning.
Nýjar spameytnari
en kraftmiklar vélan
Escortinn kemur með alveg nýjum 1300 og
1600 vélum, sem sameina mikið afl og
ótrúlega litla benzíneyðslu. Vélarnar em með
rafeinaakveikju, sem sparar mikið viðhald.
1300 69hö/DIN”) eyðsla 6.0 l.pr.100 km.
1600 96hö/DlN”) eyðsla 6.9 l.pr.100 km.
”) miðað við 90 km./klst.
DV102