Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ & VtSIR. MANUDAGUR 8. MARZ 1982.
— Já, það er rétt að þeir Zillig og;
Stetter fundu hér fimm nýjar teg-
undir örvera sem tilheyra hópnum
archaebakterium, sagði dr. Guðni
Aifreðsson, dósent við Líffræði-
stofnun íslands, er DV hafði
samband við hann vegna greinar um
fund þennan i þýzka tímaritinu
Scala.
Eins og fram kom i frétt DV umj
fundinn eru aðaleinkenni þessara ör-
vera mikið hita- og sýruþol. Þæri
vaxa i brennisteinsrikum hverum ogj
sækja orku sina i brennistein. Geta
þær vaxið við allt að 97° hita. |
Þessar tegundir sem þeir Zillig og
Stetter tala um hafa aðeins fundizt
hér, segir Guðni. — Þeirra hefur
verið leitað bæði í Japan og á Ítalíu
við svipaðar aðstæður, en þær hafa
ekki fundizt þar. Þær virðast þvi enn
sem komið er einkennandi fyrir ör-
verugróður í ízlenzkum hverum.
— Svona rannsóknir eru hluti af
hitalíffræði, en þessar hitaþolnu ör-
verur eru harðgerðastar allral
örvera. Slikar rannsóknir fengu byr
undir báða vængi á sjöunda ára-
tugnum er visindamaður að nafni
Brock hóf nákvæmar rannsóknir á
hverasvæðum í Yellowstone i Banda-
ríkjunum. Á næstu árum birti hann
svo fjölda greina um efnið og kom
m.a. i ljós að þær örverur er þarna
fundust voru ýmsum eiginleikum
gæddar sem áður voru óþekktir.
Hvað gerðist á
„öld örveranna?
— Bandaríkjamaðurinn Woese og
fleiri komu m.a. með þá tilgátu að
þessar hitaþolnu örverur mynduðu
þriðja meginhóp lífvera, ásamt met-
anmyndandi bakteríum og mjög sait->
þurfandi bakteríum. Vildu þeir
meina að sumar þeirra, og þá sér-
staklega þær hitaþolnu og metan-
myndandi, væru e.t.v. líkar fyrstu
lífverum jarðarinnar. Það er lítið
vitað um það milljarða ára tímabil í
jarðsögunni er allra frumstæðustu
lífverurnar voru að þróast, en þetta
tímabil er oft kallað „öld” örver-
anna. En nú binda menn sem sagt
vonir við að archaebakteríur þessar
örsmáu lífverur sem mælast allt niður
í þúsundasta hluta úr millimetra, geti
að einhverju leyti sagt okkur hvað
gerðist á þeim milljörðum ára sem
liðu í sögu jarðarinnar áður en loft-
háðar (anda að sér súrefni) lífverur
tóku að þróast.
— Áður var talið að unnt væri að
skipta öllum lífverum í dýra- og
plönturíki. Venjulega var talað um,
vaknar sú spurning hvernig einstakir
frumuhlutir hafa orðið til. Aðferð
sem byggist á raðgreiningu ýmissa
stórsameinda í bakteríufrumunum,
t.d. kjarnsýra og eggjahvítuefna, hef-
ur hjálpað mjög til við skyldleika-
rannsóknir þeirra. Á þessu grundvall-
ast einnig nýjustu hugmyndir um
þróun bakteria.
Geta þýtt aukin
afköst {iðnaði
— Iðnaðurinn á líka sinna hags-
muna að gæta í sambandi við þessar
lífverur vegna ýmissa efnakljúfa sem
þær hafa í sér, en þeir eru mun hita-
þolnari en í öðrum bakteríum sem
lifa við lægra hitastig. Þar hafa menn
mikinn áhuga á að einangra þessa
efnakljúfa (ensím) eða koma upp-
lýsingum um erfðaeiginleika sem
stjórna myndun þeirra inn i aðrar ör-
verur sem eru auðveldari í ræktun og
meira magn myndast af á skemmri
tíma.
— Ef þetta er hægt er kannski unnt
að nota þessa efnakljúfa við fram-
leiðslu í iðnaði, en þar ganga efna-
breytingar því hraðar sem hitastigið
er hærra. Efnakljúfar sem standast
hærra hitastig þýða mun meiri
afköst. T.d. eru fitusundrandi efna-
kljúfar mjög mikilvægir við gerð
þvottaefnis. Ýmis efnafyrirtæki hafa
þvi gjarnan styrkt rannsóknir á þessu
sviði.
Hyggja sjálfir
á rannsóknir
— Þeir vísindamenn sem hingað til
hafa rannsakað lífverur íslenzkra
hverasvæða hafa flestir verið útlend-
ingar. En við hjá Líffræðistofnun
Háskólans höfum nú mikinn hug á
að standa að slíkum rannsóknum
sjálfir. Enda er líka mjög mikilvægt
að sem nákvæmastar rannsóknir fari
fram áður en frekari röskun veröur á
islenzkum hverum. Við Jakob K.
Kristjánsson höfum sótt um styrk til
slíkra rannsókna og hyggjumst byrja
í sumar ef styrkur fæst. Okkur langar
til að koma okkur upp svonefndu sí-
ræktunarkrefi, þ.e.a.s. ræktunar-
kerfi sem getur valið úr ákveðnar há-
hitabakteriur með sérstaka eigin-
leika. Að vísu er ekki unnt að vinna
alla þætti rannsóknanna hér vegna
skorts á tækjabúnaði, eins og t.d..
efnagreiningu á vegg og himnu
bakteríanna, en í þeim efnum
hyggjum við á samvinnu við þá er-
lenda vísindamenn sem þegar stunda
slíkar rannsóknir. Við höfum .t.d.
leitað hófanna hjá Stetter og tók
hann vel í þessa hugmynd okkar um
samvinnu.
-JÞ.
Fimm nýjar örverategundir f innast á íslandi:
ÞÆR KREFJAST EKKI
MIKILS AF LÍFINU
—aðeins hita allt að suðumarki og gnægð brennisteins
frumverur annars vegar sem heil-
kjörnunga og hins vegar sem dreif-
kjörnunga. En rannsóknir síðustu
4—5 ára hafa leitt í ljós að archae-
bakteríur virðast vera alveg nýr
hópur og að ýmsu leyti frábrugðinn
öðrum þótt hann eigi lika margt sam-
eiginlegt með bæði heilkjörnungum
og dreifkjörnungum.
Ýmis lyf verka
alls ekki á þær
— Munurinn liggur t.d. í byggingu
bakteríuveggjarins og þá einkum
efnasamsetningu hans. Svokölluð
veggsýra finnst t.d. ekki í veggjum
archaebaktería.
Einnig er þol þeirra gagnvart
ýmsum lyfjum og efnum athyglisvert.
Ýmis lyf sem verka yfirleitt á bakt-
eríur verka alls ekki á þær. Ég vil þó
taka það fram að þessar bakteríur eru
ekki sýkjandi. En á siðustu árum
hefur verið lögð mikil áherzla á að
finna nákvæmlega hvernig sýklalyf
verka, þe.e.a.s hvaða frumuhlutar
það eru sem lyfiö hefur áhrif á. Og þá
Dr. Guðni Alfreðsson, dóscnt: Mikilvægt að Islendingar standi sjálfir að rannsóknum.
Nýtt kjörorð fataf ramleiðenda:
Veljum íslenzkt vörunnar vegna
— en ekki íatvinnubótaskyni
„Það er engin uppgjöf í okkur, þvert
á móti”, sagði Haukur Þorgilsson,
framkvæmdastjóri Hlínar hf., þegar
fyrirtækið kynnti nýverið fatnað sinn
fyrir sumarið.
Hlín hf. er systurfyrirtæki Hildu hf.
og stofnað upp úr Kápudeild Max. Er
það nú eina fyrirtækið á tslandi sem
framleiðir kápur.
Auðvitað hefur blásið á móti
skilyrði eru ekki upp á það bezta í
íslenzkum iönaði. En það þýðir ekki
annað en hressa upp á sálina að vera
bjartsýnn, endurbæta hönnun og.
markaðsstarf og snúa vörn í sókn,”
sagði Haukur.
Hlín hefur fjóra hönnuði á sínum
snærum og býður fjölbreytt úrval af
kápum, jökkum og drögtum fyrir sum-
arið. Efnin eru létt, litirnir bjartir.
varan vönduð og á hagstæðu verði, að
sögn framleiðendanna.
Enda hafa forsvarsmenn Hlínar og
Hildu nú breytt um slagorð. Nú skal
ekki lengur styðja islenzkan iðnað til
að forðast atvinnuleysi heldur „Velja
íslenzkt” vegna þess að fatnaðurinn er
vandaðri, þjónustan betri og verðið
hagstæðara.
-JB.
Stuttir jakkar, siðir jakkar, frakkar, regnkápur, uilarkápur og draktir. Aiit þetta er að finna i nýju sumarlinunni frá Hlin.
DV-mynd: Friðþjðfur.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur við útskriftarbúnað þriggja mælaáSuð-
Vesturiandi.
Viðvörunarkerfiö í Mývatnssveit endurbætt:
Skjálftamæl-
um fjölgað
Nýlega veitti Alþingi
Almannavörnum ríkisins sérstaka
fjárveitingu til aðstyrkja viðvörunar-
kerfið í Mývatnssveit. Að sögn
Guöjóns Petersen, framkvæmda-
stjóra Almannavarna, var rætt viö
visindastófnanir um tvær mögulegar
leiöir i þessu skyni. önnur var að
tölvuvæða hallamælakerfið en hin að
auka við skálftamælingarnar og
koma upp sjálfvirkum viövörunar-
búnaði i tengslum við þær og var
ákveðið að velja siöari kostinn.
Páll Einarsson, sem hefur umsjón
með smíði skjálftamælanna hjá
Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands, sagði að stofnunin heföi ekki
mannskap til aö halda stöðuga
skjálftavakt i Mývatnssveit og þvi
hefði verið farið út í að endurbæta
tækjakostinn. Auk þess væri það
kerfi þriggja mæla sem fyrir væri
orðið mjög viðkvæmt og ef einn
mæianna bilaði væri ekki hægt að
staðsetja skjálfta með neinni ná-
kvæmni.
Páll sagði að nú væru tveir mælar í
smiðum hjá stofnuninni sem setja
ætti upp í Mývatnssveit. Þar væri um
að ræða mæía svipaða þeim sem fyrir
væru. Þeir væru í raun viðbót við
það mælakerfi sem starfrækt hefur
verið á þessu svæði frá árinu 1970.
Gert er ráð fyrir að mælarnir verði
tilbúnir innan 2—3 mánaða.
ÓEF