Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 32
40 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Andlát Baldur Kristinsson, vélvirki Glæsibæ, andaðist i Borgarspítalanum fimmtu- daginn 4. marz. Guðrún Margrét Ingimundardóttir Humphreys verður jarðsungin frá Aðventista-sjöundadagskirkjunni, í dag, 8. marz, kl. 15.00. Guðríður Björnsdóttir, Háaleitisbraut 81, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 10. marz kl. 13.30. Útför föður okkar og tengdaföður Guðmundar Guðmundssonar, Núps- túni, Hrunamannahreppi, fer Iram frá Hrepphólakirkju, i dag kl. 14. Steinþór Oddsson, lézt 26. febrúar að Elliheimilinu Grund. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 8. marz kl. 13.30. Sveinn Stefánsson, Unufelli 48, Reykjavík, lézt 3. marzsl. Jón Valdimar Lövdal lézt af slysförum mánudaginn 1. marz. Tónlist Tónleikar í IMorræna húsinu Tvennir tónleikar verða í Norræna húsinu á næstunni. Hinir fyrri Verða þriðjudaginn 9. marz kl. 20.30 en þá leikur Cluster Ensemble frá Finnlandi nútíma- verk eftir Usko Meriláinen, Miklós Maros, Kalevi Aho, Erik Bergman auk baroktónlistar eftir Jean Baptiste Loeillet. Cluster Ensemble skipa fjórir hljóðfæraleikarar, Mikael Helasvuo, flauta, Pakka Svaijoki, saxofónn, Jukka Savijoki, gítar og Pauli Hámáláinen, slag- hljóðfæri. Síðari tónleikarnir verða föstudaginn 12. marz kl. 20.30. Þá veröa flutt sænsk og íslenzk nútíma- tónverk og eru flytjendurnir sænskir. Þau eru Kerstin Stáhl, messósópran, Kjell-Inge Svensson, klarinett, Mats Persson pianó og Jörgen Johans- son, básúnav' Ferðalög Ferðaf élag íslands Miðvikudaginn 10. marz veröur myndakvöld FÍ að Hótel Heklu. Efni: Björn Guðmundsson sýnir myndir frá gönguleiðum í Jökulfjörðum o. fl. Grétar Eiríksson sýnir myndir frá slóðum Félagfélagsins. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Veitingar í hléi. Fundir Kvenfólag Bústaðasóknar heldur gestafund i kvöld kl. 8.30 í safnaðarheimilinu. Venjuleg fundarstörf og skcmmtiatriöi. Ákvöröun tekin um leikhúsferð. Mætið vel og stundvíslega. 6. fólagsfundur JC f Breið- hofti veröur haldinn á Hótel Heklu i kvöld, kaffifundur. Fundurinn hefst kl. 20.15. Gestur okk- ar að þessu sinni verður Eggert J. Levy, landsforseti JCÍ. Afmæli 60 ára er i dag, 8. marz, Emma Guðna- dóttir, húsfreyja að Löngumýri á Skeiðum. Hún dvelur nú á Hótel Sögu, á bændaviku. Tilkynningar Frá Vtsnavinum Vísnavinir halda vísnakvöld í Þjóðleik- húskjallaranum mánudaginn 8. marz kl. 20.15. Meðal þeirra sem þar koma fram eru: Helga Möller ásamt Eyjólfi Kristjánssyni, Einar Einarsson gítar- leikari, Þórarinn Eldjárn les úr eigin verkum og Biásarakvintettinn kemur í heimsókn. Vísnakvöldin hafa verið vel sótt í vetur og yFirleitt hvert sæti skipaö. Fyrirlestur á vegum Landfræðifélagsins í kvöld, 8. marz, flytur Guttormur Sigbjarnarson erindi á vegum Landfræðifélagsins sem hann nefnir ..Alpajöklar og öldubrjótar”. Erindið fjallar um þá kenningu að verulegur hluti strandsvæða landsins hafi aðeins verið þakinn alpajöklum á jökulskeiðum kvartertímans, minni jökulþykkt en áður var talið og Islausum svæðum, þar sem harögerar plöntur hafi getað lifað af. Fyrirlesturinn veröur í stofu 201 Árnagarði og hefst kl. 20.30. BÍLARYOVÖRNHf Skeifunni 17 a 81390 Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu ~ Blaðbera vantar í Ytri-Njarðvík. Vinsamlega hafið samband við umboðsmann DV, Fanneyju Bjarnadóttur, Lágmóum 5 í síma 3366, mmiABiaMsm Ytri-Njarðvík. Um helgina Um helgina _.j_ _ i » " . .. .. Ætli væru þá margir reyk- ingamenn á meðal vor? Sjónvarpsdagskráin á föstudag var það sem hélt dagskrá ríkis- fjölmiðlanna uppi þessa helgi. Þar er fyrst að nefna reykingaþátt Fréttaspegils í umsjá Sigrúnar Stefánsdóttur. Sá var aldeilis áhrifa- mikill. Að hugsa sér að hvert manns- barn á íslandi skuli hafa reykt að meðaltali 1760 sigarettur á síðasta ári og að sígarettuneyzla landsmanna hafi aukizt um rúm sjö prósent það ár. Þetta er ótrúlegt á tímum aukinnar þekkingar, þegar hvert mannsbarn veit hversu óhollar tóbaksreykingar eru. Eða vita ekki allir að reykingar stytta mannsævina um átta ár? Ef ekki, þá er tími til kominn að menn fari að gera sér grein fyrir því. Ég segi fyrir mig, að ef ég reykti hefði ég reykt mína síðustu sígarettu umrætt kvöld. Að horfa upp á þetta vesalings fólk veslast upp langt um aldur fram, einungis vegna ofnotkunar tóbaks, er holl og góð lexía hverjum þeim sem reykir. Þvi legg ég til að reykingaþátturinn verði sýndur daglega í sjónvarpinu og í öllum kapalkerfum í mánuð eða tvo. Ætli væru þá margir reykingamenn á meðal vor að þeim tíma liðnum? Ég vil leyfa mér að draga það í efa. Þá væru áreiðanlega allir dagar reyklausir en ekki bara 9. marz. Dreptu því i sígarettunni eða vindlinum og ég óska þér alls hins bezta í reyklausri framtíð. Svo var það franska kvikmyndin umhannjoél litla. Ég held, að þetta sé einhver bezta mynd, sem sjónvarpið hefur sýnt í langan tima. Ekki einungis var um góðan leik og leikstjórn að ræða, heldur var efni myndarinnar hollt hverjum manni á að horfa. Þar sagði frá fjölskyldu einni í fínni kantinum, a.m.k. að áliti flestra fjölskyldumeðlima, en böggull fylgdi skammrifi því i fjölskyldunni var lítill vangefinn drengur. Fjölskyldan eyddi sumarleyfinu saman á gömlu ættaróðali. Það var ættmóðirin, ekkja, tvö börn hennar, sonur, smáborgari fram í fingur- góma, og dóttir, látlaus kona, sem lifði fyrir börnin sín, svo og tengda- börn og barnabörn.Það var dóttirin sem átti hann Joél litla, mongólítann. Flestir fjölskyldumeðlimir litu hann hornauga og reyndu hvað þeir gátu að fá móður hans til að setja hann á hæli en móðurástin var sterk og hún lét sig ekki. Fólkinu fannst Joél svo mikill blettur á fjölskyldunni að ef gest bar að garði var drengurinn lokaður inni, svo enginn sæfhann. Öll samúð áhorfandans beindist þó að litla drengnum og móður hans og þegar örlög Joéls litla voru ráðin var ekki laust við að sumum vöknaði um auga. Þetta var býsna góð mynd og vel gerð í alla staði. Leikur litla Joéls var frábær og sýnir, að þessum undir- málsmönnum er hreint ekki alls varnað þegar allt kemur til alls. Myndin sýndi og sannaði að þeir sem „ekki eru normal” eiga líka sinn tilverurétt, rétt eins og við hin sem eigum að heita „med fulle fem”, eins og danskurinn segir. Góð dæmisaga og holl til eftirbreytni. Kristín Þorsteinsdóttir. Ferðafélag íslands Aðalfundur Ferðafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 16. marz að Hótel Heklu. Nánar auglýst síöar. Námskeið hjá Rannsóknar- stofnun vitundarinnar Geir Viðar Vilhjálmsson sálfræðingur er leiðbein- andi á námskeiöum nú í marz, á vegum Rannsóknar- stofnunar vitundarinnar. Þar verður fjallað um leiðir til þess aö efla skynjun á sálarlifinu, losun spennu í mannlegum samskiptum og samskipti sálar- lifs viö líkama og samfélag. Fólk sem hefur sótt námskeiöin áöur hefur tæki- færi á þátttöku í sérstöku námskeiöi og einnig er fyr- irhugaður hópur fyrir hjón og sambýlisfólks. Þeir sem áhuga hefðu á því aö skrá sig á þessu námskeiö þurfa að hafa samband við Geir Viðar á Hótel Loftleiðum en þar verða námskeiðin haldin. Tfmaritið Bjarmi 76. árgangur 1. tbl., janúar-febrúar, er komið út. Meðal efnis i blaðinu er, fréttir frá Konsó. Viðtal við Jens Petter Jorgensen bibliuskólakennara um tauga- veiklun, sagt frá KFUM og K i tilefni af 70 ára af- mælis félaganna. Og 30 ára afmæli á Akureyri. Margt fleira efni: er í blaöinu. Afmælisrit Sigurðar Þórarinssonar Munið að áskriftarfrestur rennur út 15. marz. Sögu- félag, Fischersundi. Opiö 14—18. Sími 14620. J)V-mynd Elnar Óla. Handmenntaskóli íslands er nú fluttur í nýtt húsnæði að Vdiu'.undi 3, annarri hæö. Aukning nemenda hefur orðið það niikil j siö- ustu mánuöum að stækkun á húsnæði var orðin mjög brýn. Nú stunda alls 297 manns nám í skólanum þar af 70% utan Reykjavíkur. Aðalkennsla skólans er eins og áður teiknun og málun og hefur önn nr. 2 nú verið hleypt af stokkun- um, en hún felst mikifl tili líkamsteikningu og höfuð og andlitsteikningu. Auk þess eru ýmis sérnámskeið, til dæmis skraut- skrift og skiltagerö. Annað stærsta námskeið skól- ans er teikning, föndur og brúðuleikhúsgerö fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára. X0 Bridge Bridgesamband íslands Fyrsla íslandsmót spilara 25 ára og yngri var haldið í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti dagana 26.—28. febrúar. Alls mættu 14 sveitir til leiks, þar af 6 sveitir frá framhaldsskólum en mótið. var jafnframt framhaldsskólamót. Mótið var einföld umferð, þar sem allir spiluðusaman lOleiki. Úrslit mótsins urðu þau að í 1. sæti var sveit Hannesar Lentz með 184 stig. í öðru sæti var sveit Aðalsteins Jörgensen með 182 stig og í 3. sæti var sveit Hróðmars Sigurbjörnssonar með 159 stig. Sveit Dagbjarts Pálssonar var einnig með 159 stig en Hróðmar hafði' betra vinningshlutfall. Fyrstu íslandsmeistarar í yngri flokki eru auk Hannesar Lentz: Helgi Lárusson, Sturla Geirsson, Runólfur Pálsson og Sigurður Vilhjálmsson. Af framhaldsskólunum var sveit ^lenntaskólans á Egilsstöðum með 142 stig, en þetta er í fyrsta sinn sem sá skóli sendir sveit á framhaldsskólamót. Næst kom sveit Menntaskólans á Akureyri með 118 stig og í 3. sæti var sveit Menntaskólans á Laugarvatni með 115 stig. Framhaldsskólameistarar 1982 eru: Jónas Ólafsson, Magnús Ásgrimsson, Sigurþór Sigurðsson og Þorsteinn Bergsson. Að lokum vill Bridgesamband ísland'; færa skólayfirvöldum Fjöl- brautar í Breiðholti sérstakar þakkir fyrir að veita afnot af húsnæði skólans. Bridgefélag Breiðholts Síðastliðinn þriðjudag var áætlað að byrja Bötler-tvímenning, en vegna slæmrar mætingar varð að hafa eins kvölds-tvímenning og var spilað í einum tólf para riðli. Úrslit urðu þessi: Siír: 1. HeimirTryggvas.—Árni Már 140 2. Guðmundur Grétarss.—Stefán Jónss. 138 3. Þórarinn Árnas.—Gunnlaugur Guöjónss. 134 i. Helgi Skúlas.—Tryggvi Tryggvas. 115 Meðalskor 110. Næstkomandi þriðjudag verður von- mdi hægt að byrja Bötler-tvímenn- nginn og eru félagar og aðrir beðnir rm að mæta vel og stundvíslega. Spilað :r uppi í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut >4 og verður byrjað kl. 7.30. Um síðustu helgi fékk félagið heimsókn frá, Húsavík og sigruðu heimamenn naum- lega með 62 stigum gegn 58 í sveita- keppninni. Spilað var á sex borðum og urðu úrslit þessi, norðanmenn taldir á undan: Siír: 1. borð sv. Mariu Guðmundsd.— sv. Þórs Tryggvasonar 20—0 2. borð sv. Björns Dúasonar — sv. Þórarins Árnasonar 3—17 3. borð sv. Sveins Þórarinssonar— sv. Baldurs Bjartmars 12—8 4. borð sv. Berþóru Bjarnad.— sv. Helga Skúlasonar 10—10 5. borð sv. Gauks Hiartars.— sv. Siefúsar Skúlas. 9—11 6. borð sv. Jóns Sigurðss.— sv. Jóns Sigurðssonar 4—10 Einnig var spilaður tvímenningur og sigruðu norðanmenn í honum. Bridgefélag Reykjavíkur Bridgehátíð 1982 Fösludagur 12. marz kl. 15.00. Afmælismót Bridgefélags Reykja- vikur sett. Að því loknu hefst spila- mennska og verður spilað til kl. 24 með matarhléi kl. 19.00—19.30. Laugardagur 13. marzkl. 10.00. Afmælismóti B.R. haldið áfram og er áformað að Ijúka því um kl. 18. Afmælishóf Bridgefélags Reykjavíkur Kl. 20.30. 1. Sigmundur Stefánsson, form. félagsins, setur hófið, en siðan hefst borðhald. 2. Einsöngur: Kristinn Bergþórsson syngur við undirleik Sigfúsar Hall- dórssonar. 3. Annáll síðustu ára: Jakob R. Möller rekur helztu þætti í sögu félagsins síðustu ár. 4. Verðlaunaafhending: Form. afhendir verðlaun fyrir afmælismól félagsins. 5. Dans: Hljómsveit Hreiðars Ól. Guðjónssonar leikur fyrir dansi til kl. 3. Veizlustjóri er Gylfi Baldursson. Sunnudagur 14. marz kl. 14.00. Stormót Flugleiða hefst. Spilaðar verða þrjár umferðir. Spilaðir eru 20 spila leikir með hálfleik. í hálfleik í annarri umferð verður gert hlé til kl. 20. Mánudagur 15. marz. Kl. 16.00 Stofmót Flugleiða fjórða um- ferð. Kl. 20.00 Stórmót Flugleiða fimmta umferð. Kl. 22.45 Verðlaunaafhending fyrir Stormót Flugleiða, hátíðinni slitið. Mótsstjóri er Guðmundur Eiríksson og keppnisstjóri Agnar Jörgenson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.