Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 36
44
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
YFIRMÖNNUM FRÁ SAS
Yoko Ono: Atti hug og hjörtu áhorfenda
GRAMMY-VERÐ-
LAUNIN AFHENT
Það var társtokkin Yoko Ono sem
tók við Grammy-verðlaunum fyrir
piötu hennar og hins myrta manns
hennar, Johns Lcnnons, Double
Fantasy. Risu áhorfendur úr sætum
sínum og hylltu hana ákaflega er hún
kom fram á sviðið ásamt sex ára syni
þeirra Johns, Sean. Þetta er i 24. sinn
sem Grammy-verðlaunaafhending
fer fram og lá við að aðrir sigur-
vegarar hyrfu i skuggann af Yoko.
Meðal sigurvegara voru Quincy
Jones, sem hefur fengið fleiri
Grammy-verðlaun en nokkur annar,
og Kim Carnes, en hás rödd hennar
nýtur sin vel i hinu vinsæla lagi er
leiddi hana til sigurs:’Bette Davis
Eyes.
Al Jarreau, Lena Horne, Dolly
Parton, The Police, Manhattan
Transfer og höfundur þemalags Hill
Street Bluse, Mike Post, fengu öll
tvennverðlaun fráNational Academy
of Recording Arts & Science.
Quincy Jones sigursœll
Quincy Jones, sem fékk alls fimm
Grammy-vcrðlaun, var m.a. kosinn
framleiðandi ársins og bezti
útsetjarinn. Plata hans, The Dude,
var valin bezta blús- og rythmaplata
ársins og upptökur hans á Velas og
Ai No Corrida fengu verðlaun fyrir
hljóðfæraskipan og söng.
Jones deildi einnig verðlaunum
með Lcnu Horne fyrir plötuna Lena
Horne: The Lady and Her Music, en
Lena fékk einnig verðlaun sem
skemmtikráftur. Höfundar vinsæl-
asta lagsins, Bette Davis Eyes, unnu
einnig til verðlauna og hin skozka
Sheena Easton, sem vann sér mikla
hylli fyrir lagið úr James Bond
myndinni For Your Eyes Only, og
ballöðuna Morning Train, var kosin
listamaður ársins.
í klassiskri tónlist vann
sinfóniuhljómsveit Chicago og kór
hcnnar til verðlauna fyrir flutning
sinn á 2. sinfóníu Mahlers undir
stjórn sir Georg Solti. Fiðluleikarinn
ltzhak Perlman vann til einna
verðlauna og deildi tveimur með
öðrum.
— Á sama tíma bera fíokksbræöur hans fram til-
lögu á þingi SAS í óhag
Nýtt hneykslismál er í uppsiglingu í
Svíþjóð og í þetta sinn stendur það í
sambandi við skemmtiferð Ulfs
Adelsohns, leiðtoga Hægfaraflokksins,
með sex háttsettum yfirmönnum
flugfélagsins SAS á kjötkveðjuhátið í
Rió de Janero. Fór hún fram um sama
leyti og nokkrir af flokksbræðrum
Adelsohns báru fram tillögu á sænska
þinginu sem getur þýtt 130—180
milljóna króna tap fyrir SAS.
Hvatinn að tillögu hægfaramann-
anna er hið mikla tap á rekstri innan-
landsflugs í Danmörku. Þeim finnst
ekki lengur ástæða til að styrkja það
með ágóða af innanlandsflugi í
Svíþjóð, en sá ágóði er sagður um 180
milljónir króna. Þess vegna vilja þeir
fremur að sænskum aðilum verði falið
að sjá um sænskt innanlandsflug í stað
hins samnorræna flugfélags SAS.
Adelsohn, sem áður gegndi embætti
samgöngumálaráðherra, var spurður
við heimkomu sína frá Ríó hver hefði
greitt fyrir skemmtiferðina, en
Adelsohn flaug á I. farrými og kostar
farmiðinn fram og til baka um 60
þúsund krónur.
Neitaði að sýna
flugfarseðilinn
— Ég greiddi sjálfur fyrir mig, og
það hvern einasta eyri, sagði Adelsohn.
— Það bauð mér enginn.
Hann neitaði þó eindregið að sýna
flugfarseðilinn sinn og sagði að það
væri óforskammað að fara fram á
slíkt.
— Stjórnmálamenn hljóta að dga
rétt á því að skreppa í frí eins og annað
fólk, sagði hann. — Allt frá bernsku
hefur mig dreymt um að komast á kjöt-
kveðjuhátíð í Ríó. Og hún var alveg
stórkostleg...
Adelsohn vill ekki tjá sig um það
hvort hann ræddi flugmál við yfirmenn
SAS á leiðinni.
— Hvað við ræddum kemur okkur
einum við, segir hann.
SAS-mennirnir hafa hins vegar látið
þau boð út ganga að ferð þeirra til Ríó
hafi verið hrein og klár viðskiptaferð.
Afmæli
Elísabetar
Það þykir ekki lítill viðburður þegar
fræg kvikmyndasljarna verður
fimmtug.
Liz Taylor, sem skammast sin ekkert
fyrir aldurinn enda enn í fullu fjöri,
hélt upp á afmælið með þvi að dansa
diskó fram á morgun. Var veizlan
haldin á fínasia næturklúbbnum í
London og sögðu gestir að Liz hefði
staðið sig jafnvel og tvítugt telputetur í
dansinum.
Sá af veizlugestum sem vakti mesta
athygli var gamla ástin hennar og
tvivegis fyrrverandi eiginmaður,
Riehard Burton, en sagt er að nú dragi
saman með þeim hjúum á ný. Enda var
það hann sem stóð við hlið stjörnunnar
er hún skar hina glæsilegu afmælis-
tertu, prýdda fimmtíu kertum.
Ulf Adelsohn: Vafasöm skemmtiferð til
Rfó.
BREGÐUR SÉR TIL RÍÓ MEÐ
SÆNSKUR FLOKKSLEIÐTOGI
Ekki ónýtt að giftast fursta
Hæstiréttur i Los Ange/os dæmdi nýlega saudi-arabiskan fursta meðlagsskyldan með konu sinni sem sækir
um skilnað frá hoflum. Henni var einnig dæmdur umráðaróttur yfir börnum þeirra fjórum. Olli dómurinn fursta-
frúnni, Denu Al Fassi, svo mikilli kæti að hún dansaði um dómsalinn. Dena fer einnig fram á eignaskipti til helm-
inga og takist henni aðfá það igegn nemur hluti hennar um þremum milljörðum Bandarikjadala. Eiginmaðurinn,
Mohammed Al Fassi, býr nú i Ftórída ásamt tveimur öðrum eiginkonum og hafa lögfræðingar hans áfrýjað dómi
þeim sem felldur var í Los Angeles.
Etzti fíugmaður í heimi og vélin haru: Hann smiðaði hana „aðeins " 79 ára
aðatdri
Elzti fíugmaður í heimi:
HANN ER NÍRÆÐUR
OG HELDUR ENN
ÁFRAM AÐ FLJÚGA
Hann lætur ekki aldurinn halda
aftur af sér, hann Harold Probyn.
Hann hélt nýlega upp á níræðis-
afmælið sitt með góðri flugferð í
heimasmíðuðu flugvélinni sinni.
Harold er nefnilega flugmaður og
flýgur enn og er þar með elzti flug-
maður í heimi. Hann býr í Kenya í S-
Afríku.
— Mér finnst svo afslappandi að
fljúga og flugið heldur mér ungum í
anda, segir Harold. — Ég vona bara
að mér endist líf og heilsa til að fljúga
þangað til ég verð 100 ára.
Harold fæddist á Englandi 12. des-
ember 1891. Hann lauk flugprófi í
apríl 1916 — aðeins 13 árum eftir að
Wright-bræðurnir fóru i sína fyrstu
flugferð.
— Ég varð fjórum sinnum fyrir því
að flugvéi mín var skotin niður í fyrri
heimsstyrjöldinni, segir Harold. —
Ég slasaðist þó aldrei alvarlega og
það kom aðeins einu sinni fyrir að ég
varð að fá tveggja vikna sjúkraleyfi.
„Algjört undur"
Harold barðist lika með enska
flughernum í heimsstyrjöldinni síðari
en fluttist að stríðinu loknu til Kenya.
Og þar flýgur hann heimagerðu vél-
inni sinni sem hefur hvorki væng-
speldi né hemla. Vélin er úr Volks-
wagen bíl.
Ég smíðaði hana þegar ég var 79
ára, segir Harold. — Það er í raun-
inni afar auðvelt að fljúga henni. Það
má segja að ég hafi flogið yfir alla
Afriku og Evrópu og mér þykir jafn-
gaman að fljúga núna og mér þótti
fyrir 65 árum.
— Hann er algjört undur, segir dr.
George Robertson, læknir i Nairobi,
sem rannsakar flughæfni Haroids á
sex mánaða fresti. — Hann er við
hestaheilsu og getur þess vegna
haldið áfram að fljúga um ófyrir-
sjáanlega framtíð.
— Það er aðeins eitt ráð sem ég vil
gefa þvi fólki sem langar til að halda
lífi og hcilsu sem allra lengst, segir
Harold. — Og það er að finna sér
starf sem það hefur brennandi áhuga
á og halda svo áfram að sinna þvi án
þess að hugsa nokkuð um aldurinn.