Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Qupperneq 36
44 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið YFIRMÖNNUM FRÁ SAS Yoko Ono: Atti hug og hjörtu áhorfenda GRAMMY-VERÐ- LAUNIN AFHENT Það var társtokkin Yoko Ono sem tók við Grammy-verðlaunum fyrir piötu hennar og hins myrta manns hennar, Johns Lcnnons, Double Fantasy. Risu áhorfendur úr sætum sínum og hylltu hana ákaflega er hún kom fram á sviðið ásamt sex ára syni þeirra Johns, Sean. Þetta er i 24. sinn sem Grammy-verðlaunaafhending fer fram og lá við að aðrir sigur- vegarar hyrfu i skuggann af Yoko. Meðal sigurvegara voru Quincy Jones, sem hefur fengið fleiri Grammy-verðlaun en nokkur annar, og Kim Carnes, en hás rödd hennar nýtur sin vel i hinu vinsæla lagi er leiddi hana til sigurs:’Bette Davis Eyes. Al Jarreau, Lena Horne, Dolly Parton, The Police, Manhattan Transfer og höfundur þemalags Hill Street Bluse, Mike Post, fengu öll tvennverðlaun fráNational Academy of Recording Arts & Science. Quincy Jones sigursœll Quincy Jones, sem fékk alls fimm Grammy-vcrðlaun, var m.a. kosinn framleiðandi ársins og bezti útsetjarinn. Plata hans, The Dude, var valin bezta blús- og rythmaplata ársins og upptökur hans á Velas og Ai No Corrida fengu verðlaun fyrir hljóðfæraskipan og söng. Jones deildi einnig verðlaunum með Lcnu Horne fyrir plötuna Lena Horne: The Lady and Her Music, en Lena fékk einnig verðlaun sem skemmtikráftur. Höfundar vinsæl- asta lagsins, Bette Davis Eyes, unnu einnig til verðlauna og hin skozka Sheena Easton, sem vann sér mikla hylli fyrir lagið úr James Bond myndinni For Your Eyes Only, og ballöðuna Morning Train, var kosin listamaður ársins. í klassiskri tónlist vann sinfóniuhljómsveit Chicago og kór hcnnar til verðlauna fyrir flutning sinn á 2. sinfóníu Mahlers undir stjórn sir Georg Solti. Fiðluleikarinn ltzhak Perlman vann til einna verðlauna og deildi tveimur með öðrum. — Á sama tíma bera fíokksbræöur hans fram til- lögu á þingi SAS í óhag Nýtt hneykslismál er í uppsiglingu í Svíþjóð og í þetta sinn stendur það í sambandi við skemmtiferð Ulfs Adelsohns, leiðtoga Hægfaraflokksins, með sex háttsettum yfirmönnum flugfélagsins SAS á kjötkveðjuhátið í Rió de Janero. Fór hún fram um sama leyti og nokkrir af flokksbræðrum Adelsohns báru fram tillögu á sænska þinginu sem getur þýtt 130—180 milljóna króna tap fyrir SAS. Hvatinn að tillögu hægfaramann- anna er hið mikla tap á rekstri innan- landsflugs í Danmörku. Þeim finnst ekki lengur ástæða til að styrkja það með ágóða af innanlandsflugi í Svíþjóð, en sá ágóði er sagður um 180 milljónir króna. Þess vegna vilja þeir fremur að sænskum aðilum verði falið að sjá um sænskt innanlandsflug í stað hins samnorræna flugfélags SAS. Adelsohn, sem áður gegndi embætti samgöngumálaráðherra, var spurður við heimkomu sína frá Ríó hver hefði greitt fyrir skemmtiferðina, en Adelsohn flaug á I. farrými og kostar farmiðinn fram og til baka um 60 þúsund krónur. Neitaði að sýna flugfarseðilinn — Ég greiddi sjálfur fyrir mig, og það hvern einasta eyri, sagði Adelsohn. — Það bauð mér enginn. Hann neitaði þó eindregið að sýna flugfarseðilinn sinn og sagði að það væri óforskammað að fara fram á slíkt. — Stjórnmálamenn hljóta að dga rétt á því að skreppa í frí eins og annað fólk, sagði hann. — Allt frá bernsku hefur mig dreymt um að komast á kjöt- kveðjuhátíð í Ríó. Og hún var alveg stórkostleg... Adelsohn vill ekki tjá sig um það hvort hann ræddi flugmál við yfirmenn SAS á leiðinni. — Hvað við ræddum kemur okkur einum við, segir hann. SAS-mennirnir hafa hins vegar látið þau boð út ganga að ferð þeirra til Ríó hafi verið hrein og klár viðskiptaferð. Afmæli Elísabetar Það þykir ekki lítill viðburður þegar fræg kvikmyndasljarna verður fimmtug. Liz Taylor, sem skammast sin ekkert fyrir aldurinn enda enn í fullu fjöri, hélt upp á afmælið með þvi að dansa diskó fram á morgun. Var veizlan haldin á fínasia næturklúbbnum í London og sögðu gestir að Liz hefði staðið sig jafnvel og tvítugt telputetur í dansinum. Sá af veizlugestum sem vakti mesta athygli var gamla ástin hennar og tvivegis fyrrverandi eiginmaður, Riehard Burton, en sagt er að nú dragi saman með þeim hjúum á ný. Enda var það hann sem stóð við hlið stjörnunnar er hún skar hina glæsilegu afmælis- tertu, prýdda fimmtíu kertum. Ulf Adelsohn: Vafasöm skemmtiferð til Rfó. BREGÐUR SÉR TIL RÍÓ MEÐ SÆNSKUR FLOKKSLEIÐTOGI Ekki ónýtt að giftast fursta Hæstiréttur i Los Ange/os dæmdi nýlega saudi-arabiskan fursta meðlagsskyldan með konu sinni sem sækir um skilnað frá hoflum. Henni var einnig dæmdur umráðaróttur yfir börnum þeirra fjórum. Olli dómurinn fursta- frúnni, Denu Al Fassi, svo mikilli kæti að hún dansaði um dómsalinn. Dena fer einnig fram á eignaskipti til helm- inga og takist henni aðfá það igegn nemur hluti hennar um þremum milljörðum Bandarikjadala. Eiginmaðurinn, Mohammed Al Fassi, býr nú i Ftórída ásamt tveimur öðrum eiginkonum og hafa lögfræðingar hans áfrýjað dómi þeim sem felldur var í Los Angeles. Etzti fíugmaður í heimi og vélin haru: Hann smiðaði hana „aðeins " 79 ára aðatdri Elzti fíugmaður í heimi: HANN ER NÍRÆÐUR OG HELDUR ENN ÁFRAM AÐ FLJÚGA Hann lætur ekki aldurinn halda aftur af sér, hann Harold Probyn. Hann hélt nýlega upp á níræðis- afmælið sitt með góðri flugferð í heimasmíðuðu flugvélinni sinni. Harold er nefnilega flugmaður og flýgur enn og er þar með elzti flug- maður í heimi. Hann býr í Kenya í S- Afríku. — Mér finnst svo afslappandi að fljúga og flugið heldur mér ungum í anda, segir Harold. — Ég vona bara að mér endist líf og heilsa til að fljúga þangað til ég verð 100 ára. Harold fæddist á Englandi 12. des- ember 1891. Hann lauk flugprófi í apríl 1916 — aðeins 13 árum eftir að Wright-bræðurnir fóru i sína fyrstu flugferð. — Ég varð fjórum sinnum fyrir því að flugvéi mín var skotin niður í fyrri heimsstyrjöldinni, segir Harold. — Ég slasaðist þó aldrei alvarlega og það kom aðeins einu sinni fyrir að ég varð að fá tveggja vikna sjúkraleyfi. „Algjört undur" Harold barðist lika með enska flughernum í heimsstyrjöldinni síðari en fluttist að stríðinu loknu til Kenya. Og þar flýgur hann heimagerðu vél- inni sinni sem hefur hvorki væng- speldi né hemla. Vélin er úr Volks- wagen bíl. Ég smíðaði hana þegar ég var 79 ára, segir Harold. — Það er í raun- inni afar auðvelt að fljúga henni. Það má segja að ég hafi flogið yfir alla Afriku og Evrópu og mér þykir jafn- gaman að fljúga núna og mér þótti fyrir 65 árum. — Hann er algjört undur, segir dr. George Robertson, læknir i Nairobi, sem rannsakar flughæfni Haroids á sex mánaða fresti. — Hann er við hestaheilsu og getur þess vegna haldið áfram að fljúga um ófyrir- sjáanlega framtíð. — Það er aðeins eitt ráð sem ég vil gefa þvi fólki sem langar til að halda lífi og hcilsu sem allra lengst, segir Harold. — Og það er að finna sér starf sem það hefur brennandi áhuga á og halda svo áfram að sinna þvi án þess að hugsa nokkuð um aldurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.