Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Page 37
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. MÁNUDAGUR 8. MARZ 1982. 45. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið HÉLDU FÉLAGSFUND SINN I FLUTNINGASKIPI Það hlýtur að heyra til undantekninga að félagasam- tök haldi fundi sína um borð í íslenzkum millilandaskipum. Þetta gerðu JC— félagar í Reykjavík á dögunum og fór fundurinn fram í ekjuskipi EiflH skipafélaga íslands, Álafossi, sem að vísu lá við Sundahöfn á meðan fundurinn fór fram. Hvað sem því líður þótti fund- urinn takast mjög vel í alla staði og þótti félögum þessi ný- breytni vera mjög til eftir- breytni. JC— félagar í Reykjavík halda félagsfundi sína öðru jöfnu mánaðarlega í húsakynn- um sínum að Dalshrauni, en að þessu sinni var sem sagt brugð- ið út af vananum og ákveðið að halda fundinn í einhverju fyrirtækja borgarinnar og kynnast starfsemi þess í leið- inni. Fyrir valinu varð Eim- skipafélag íslands, eins og að framan greinir, og var ákveðið að undirlagi Eimskipafélagsins að halda fundinn í skipinu fremur en í landi. Eftir fundarsetningu og al- menn fundarstörf gengu JC— m Hluti JC-fótaganna um borð i Áhh fossi. Á innfelldu myndinni má sfá hvar einn fóiagsmannanna. sem vk) því miður kunnum ekki að nafn- greina, faðmar skipstjórann að sór, en sá heitir Eriendur Jónsson. (D V-myndir: Einar Ólason.) félagarnir um skipið og kynntu sér starfsemina enda var verið að vinna á fullu í skip- inu þegar fundurinn átti sér stað. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem félagasamtök halda fund sinn í millilandaskipi og hvort slíkt á að teljast til eftirbrevtni skal ósagt látið, en hitt er víst að þetta er nokkuð nýstárlegt. -SER. i \m m1é m # # • # 1 ijf i fv'íá&C CZ jgg *• ^ Valli og víkingarnir með tveggja /aga plötu Það þykirekki lengur tíðind■ um sœta þó ný íslenzk hljóm- plata líti dagsins Ijós. Athygli tónlistargrúskara beinist þó væntanlega mjögþessa dagana að vœntanlegri plötu með hinni sérstæðu hljómsveit Valla og víkingunum. Mun platan koma út síðar I þessum mánuði. Mikil leynd er sögð hvíla yfir gerð plötunnar og allri út- gáfu hennar — og segir svo i nýlegu fréttabréfi Steina hf, sem gefa plötuna út, að leynd- in sé svo mikil að Valti og víkingarnir séu sjálfir ekki full- komlega vissir um að þeir séu I hljómsveitinni! Plata Valla og víkinganna verður tveggja laga og nefnast þau Úti alla nóttina og Til I allt. Fyrst verið er að tala um hrœringar I íslenzka hljóm- sveitarbransanum má geta þess i framhjáhlaupi að piltarnir í Mezzoforte eru staddir um þessar mundir I Luxemborg þar sem þeir koma m.a. fram í sjónvarpi og útvarpi. Flokkur- inn kemur einnig fram á ís- lenzkri iðnkynningu sem nú fer fram í Lux og er óhœtt að segja að þar séu mjög fram- bœrilegir fulltrúar íslenzkrar tónlistar. ÚR KAUPFÉLAGSHÓFI FÁSKRÚÐSFIRÐINGA Eins og sjó má vartti Kaupftíag Fiskrúðsfkðinga ríkuioga i afmæiishóf- inu. á dögunum upp á áttræðisafmælið sitt. Fór hátíðin fram á flestum ef ekki öllum stöðum landsins sem státa af kaupfélagi og þótti takast með ágætum. Fáskrúðsfirðingar voru ekki eftir- bátar annarra i nefndum hátíðar- höldum. Héldu þeir afmælishóf Sam- bandsins með viðhöfn í félagsheimil- inu á staðnum, sem nefnist þvi smekklega nafni Skrúður. Þar voru saman komnir flestir bæjarbúar og voru borð hlaðin dýrindis veigunt og öðru meðlæti. Sigmar bóndi Magnússon í Dölum eystra flutti aðalræðu dagsins og lagði út af sam- vinnuinntakinu. Aðrir tóku til máls og fjölluðu ákaft um ágæti kaup- félagsins á staðnum. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga verð- ur hálfrar aldrar gamalt á næsta ári, en það var stofnað 6. ágúst árið 1933. Voru stofnendur þess tuttugu og einum betur. Núverandi -kaupfélags- stjóri þess er Gísli Jónatansson. Meðfylgjandi myndir tók Ægir Kristinsson fréttaritari DV á Fáskrúðsfirði i afmælishófinu þar eystra. -SER. Vafalítið hefur það ekki farið framhjá mörgum að Sambandið hélt Sigmar bóndi Magnússon I Dökrnn fkrtti aðairæðu dagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.