Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1982, Side 40
xi Fá nú að skreppa
ilotiðhafalanga m m m m
— heim um helgar
Að undanförnu höfum við af og til
fengið fregnir af því að menn sem
dæmdir hafa verið til margra ára
fangelsisvistar, og eru langt frá því
búnir að taka út sinn dóm, hafi sézt
spóka sig úti á götu í Reykjavík og þá
ekki einu sinni í fylgd lögregluþjóns.
Hefur það að vonum vakið athygli
margra en þetta á sér sína skýringu
eins og fram kom þegar við spurðum
Þorstein Jónsson hjá dómsmálayáðu-
neytinu að því hvernig á þessu stæði.
„Þetta eru menn sem hafa setið
lengi inni en fá nú að fara út og heim-
sækja ættingja sína hluta úr degi með
nokkurra mánaða millibili. Þetta er
tilraun sem verið er að gera og hefur
hún tekist mjög vel með þá örfáu sem
hafa fengið þetla frí,” sagði
Þorsteinn.
Svona frí hefur lengi verið helzta
baráttumál meðal fanga og Fanga-
hjálparinnar Verndar. Einnig hafa
margir fangaverðir talið það æskilegt
að langtímafangar fengju stutt frí af
og til í innilokuninni. Það gerði þeim
dvölina þar öllu bærilegri, og hjálp-
aði þeim við að aðlagast nýju
urrthverfi þegar þeir komu út aftur
eftir margra ár innilokun.
Kvenfangar hafa fengið svona frí
alit að einu sinni í mánuði til að sjá
börn sín og ættingja, og nú eftir
áramótin hafa nokkrir karlfangar
fengið að skreppa heim til sín hluta
úr degi.
„Það eru þrír langtímafangar sem
hafa fengið þetta frí nú frá ára-
mótum,” sagði Björn Einarsson,
starfsmaður Verndar, í viðtali við
DV. „Þeir hafa fengið að vera úti í
fimm tíma í einu, en verða síðan að
faraafturaustur.
Mál hvers og eins fanga er afgreitt
sér enda er ekkert fast form komið
enn á þetta. Við vonum bara að svo
verði og að þessir menn geti þá
gengið að því sem vísu að þeir fái að
skreppa út til að sjá ættingja og vini
af og til í langri innilokun,” sagði
Björn.
-klp-
Björgunarsveit í hrakningum á Fimmvörðuhálsi:
„VORUM BÚNIR UNDIR
FROST EN EKKIREGN”
—segir formaður björgunarsveitarinnar sem láútiflS klukkutíma
Nokkrir félqgar úr Björgunarsveit-
inni Stakk í Keftavík og úr Hjálpar-
sveit skáta í I^arðvíkum lentu í
hrakningum á Fimmvörðuhálsi sl.
föstudag.
„Við lentum í vitlausu veðri, slag-
veðursrigningu og 8—9 vindstigum,”
sagði Þorsteinn Marteinsson, for-
maður Stakks, í samtali við DV.
„Við vorum búnir undir frost og
kulda og áttum sízt von á rigningu
þannig að vbsþúðin fór illa með
okkur.
Við lögðum af staS'kh 8 á föstu-
dagsmorguninn og vorurh. komnir
hálfa leið að skálanum á Fimmvörðu-
hálsi er veðrið tók að versna. KJ. 2
um daginn ákváðum við að hreif!
um okkur þar sem nokkrir okkar
voru orðnir mjög hraktir. Sex þeirra
sem brattastir voru fóru aftur til baka
að sækja aðstoð en fimm urðu eftir
UDPÍ.
Á milli kl. 4 og 5 um morguninn
barst okkur aðstoð frá Flugbjörg-
unarsveitinni á Skógum og vorum við
þá búnir að liggja fyrir um 14—15
tíma. Tvo þurfti að flytja niður á vél-
sleQa en þeim varð ekki meint af
þessu frekar en öðrum,” sagði
Þorsteinn Marteinsson.
Þorsteinn sagði að farið hefði verið
með tvo til læknisins á Hvolsvelli
strax og niður var komið. Hann hefði
talið sig sjá einkenni lungnabólgu hjá
einum þeirra. En sem betur fór hefði
það ekki reynzt rétt og væri honum
nú batnað.
-ÓEF.
Gastum og gangandi gafst tœkifærí til að hfýða é létta sveiflu undir forystu bandaríska
fassistans Joe Nawman i Broadway í kvöid. Newman erhéré landi é vogum Jazzvakningar
og é hljómleikunum í kvökl ieikur hann meO Tríól Krístféns Magnússonar og Big Band '81. Þé
eru fyrirhugaóir síðar i vikunni tónieikar moð landa hans, gítarieikaranum Paul Weeden. Einnig
mun Newman verOe með nokkra kennskrtima þé viku er hann dvalst hóriandis. Myndin er tekln
é œfíngu í gmrkvðkL
l-KÞ/O V-mynd GVA)
Hjörleifur uni fundinn með dr. Miiller:
„RÁÐUNEYTIÐ ER SAMNINGSAÐILINN”
„Ég er ekki viss um að þeir hjá
Alusuisse geri sér fulla grein fyrir
skipulaginu hjá okkur. Þótt dr.
Muller aðalforstjóri hafi í skeytinu til
min tjáð sig reiðuhúinn til þess að
koma á fund ráðherranefndarinnar.
hlaut ég að svara með boði til fundar
i iðnaðarráðuneytinu. Það er samn-
ingsaðilinn,” sagði Hjörleifur
Outtormsson iðnaðarráðherra, þegar
DV ræddi við hann um hinn fyrir-
hugaða fund um ísal-málin 25. þessa
mánaðar.
„Ráðherranefndin, sem fjallað
hefur um þessi mál sérstaklega innan
ríkisstjórnarinnar að undanförnu, er
samráðsnefnd en ekki samninga-
nefnd. Hins vegar getur farið svo aö
dr. MUller gefist tækifæri til þess að
ræða við samstarfsmenn mína í ráð-
herranefndinni að fundinum í ráðu-
neytinu loknum,” sagði Hjörleifur.
-HERB.
frfálst, úháð dagblað
MANUDAGUR 8, MARZ 1982.
Brenndist
erbensín-
tankur sprakk
Tuttugu og tveggja ára maður
brenndist i andliti og líkama er bensín-
tankur úr bíl sem hann var að gera við
sprakk. Slysið átti sér stað á bílaverk-
stæði að Smiðjuvegi 52 um kl. hálf-
fjögur í gærdag. Maðurinn hafði tekið
bensíntankinn úr bílnum og var að log-
sjóða hann er allt í einu kviknaði i
tanknum og hann sprakk. Maðurinn
var fluttur á slysadeild Borgarspítalans
en ekki var vitað hversu alvarlega hann
er brenndur.
-ELA.
Margirteknir
vegna gruns
um ölvun
við akstur
Óvenjumargir voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur í Reykjavík um
helgina. Var um miðjan dag í gær búið
að færa á milli 25 og 30 manns í
blóðrannsókn og muna lögreglumenn
ekki eftir því að svo margir hafi verið
teknir á einni venjulegri helgi hér í
Reykjavík. Karlmenn voru þar í
meirihluta en konur virðast eitthvað
vera að færa sig upp á skaftið í því að
aka undir áhrifum áfengis því þær voru
óvenjumargar í þessum hópi.
-klp-
Þrjár bílveltur
— grunurumölvun
Mikið annríki var hjá lögreglunni á
Selfossi um helgina en þar mun ölvun
hafa verið í meira lagi. Þrjár bílveltur
voru skammt frá Selfossi, í
Kömbunum, á Hellisheiði og í
Flóanum. Allar munu hafa verið af-
leiðingar ölvunar við akstur. Þá var
harður árekstur á Selfossi þar sem
ökumaður var grunaður um ölvun við
akstur. Mesta mildi þótti að ekki varð
slys í neinu tilfellanna. Allir bílarnir
voru þó mikið skemmdir.
-ELA.
Þótt þrír og þrír þýði sex
gafst það illa hjá Alþýðu-
bandalagsf ólki í Kópavogi.
c ískalt
Seven up.
hressir betur.