Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1982, Blaðsíða 4
,4
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR15. MAl 1982.
Vaxandi straumur bandaríshra ferðamanna til landsins:
Dýrustu og lengstu
ferðimar vinsælastar
- segir Sigfús Erlingsson svæðisstjóri Flugleiða vestanhafs
Þótt hinn fjölmiölaglaöi Freddy
Laker hafi aö lokum falliö á eigin
bragöi og faríö á hausinn meö braki
og brestum hefur litið sem ekkert
dregiö úr grimmilegri samkeppni á
flugleiöinni yfir Noröur-
Atlantshafiö. Sætaframboð er mun
meira en nemur eftirspum og flug-
félög hafa uppi alls kyns gylliboö í
þeim tilgangi aö laöa til sín farþega.
Hver er staöa Flugleiöa á þessari
leiö og hvernig er útlitið?
„Frá áramótum og fram til 4. apríl
höfum viö fengið 165 þús. símtöl til
skrifstofunnar hér i New York. Þaö
er 40% aukning frá árínu áður og nú
hringja hingaö um þrjú' þúsund
manns á dag meö fyrirspurnir,”
sagöi Sigfús Erlingsson, svæöisstjóri
Flugleiða í Vesturheimi, er ferða-
síöan hitti hann aö máli ekki alls fyr-
ir löngu. Sigfús hefur starfaö í New
York í fimm ár og eins og gefur aö
skilja fyigzt grannt meö þeim miklu
hræringum sem hafa átt sér stað í
flugmálum og þá ekki sízt fargjalda-
málum síöustu árin. En hvaö þýöir
þessi mikla aukning á fyrirspurnum
umsíma?
„Sú mikla aukning, ásamt ýmsu
ööru, bendir til þess aö við séum á
réttri leið. Eg get nefnt, að tekju-
aukning fyrstu tvo mánuði ársins
nemur 50% miðaö viö áriö áður,”
segir Sigfús. Og hann heldur áfram:
„Þetta hefur gengiö nokkuö vel eft-
ir að viö komumst úr þessarí vondu
sveiflu sem varö árið 1980. Eftir
fyrsta ársf jóröung ársins 1981 hefur
þetta verið upp á við. Gjörbreyting
varö á uppbyggingu reksturs Flug-
leiöa hér í Bandarikjunum í árslok
1980. Það ár var starfsfólki fækkaö
um helming, en engu aö síöur uröu
tekjurnar í fyrra svipaöar og áriö
þar á undan. Bókanir nú eru mun betri
en undanfarin ár. Fjármagns-
streymi inn bendir einnig til góðs út-
lits og því engin ástæöa til svart-
sýni.”
Gottorðspor
og góð þjónusta
En hvaö skyldi valda því aö
Bandaríkjamenn kjósa aö feröast
meö Flugleiðum í þetta ríkum mæli
heldur en einhverju ööru flugfélagi
sem flýgur á meginland Evrópu? tJr
nógu er að velja. Sigfús nefnir
nokkrar ástæöur sem vega þungt:
„Icelandair er vel þekkt merki í
flugheiminum og viö njótum þess
talsvert. Gott orðspor er mikils
viröi. Bandarísk félög til dæmis
breyta oft áætlun meö stuttum fyrir-
vara og fella niöur flug ef hleöslunýt-
ing er slæm. Viö höfum haldiö okkar
áætlun mun betur en önnur flugfélög
í svipaöri aöstöðu, það er aö segja
minni einkafélög á þessari áætlunar-
leiö. Þá er þjónusta okkar yfirleitt
góö og til dæmis mjög góð um borð í
vélunum. Ef til erfiðleika kemur,
setjum svo að slæmt veöur setji strik
í reikninginn og brengli áætlun, þá
sinnum viö okkar farþegum betur en
þeir sem bjóöa lægri fargjöld eða
svipuð. Þá er þaö okkur styrkur aö
viö höfum gert samkomulag viö
Luxair í Luxemborg um flug áfram
meö okkar farþega, svo sem til
Parísar, Frankfurt og Aþenu á sann-
gjömuverði.”
— En hvernig standa Flugleiðir aö
vígi í f argj aldamálum miöaö viö önn-
urfélög?
„Viö erum svona nálægt miðju.
Okkar fargjöld eru svipuð og í flest-
um tilfellum aöeins hærri en lægri
endinn hjá samkeppnisaðilum, en
hins vegar erum viö lægri en þeir
sem eru í hærri endanum. Apex far-
gjald okkar til Luxemborgar er
hærra en óbundið fargjald Capitol til
Brussel. Þaö félag er meö verulegt
sætamagn. Capitol og Metro
International, sem er dótturfélag
Flying Tiger, nota DC-10 og Boeing
747 breiðþotu og þessi félög ásamt
Sabena bjóöa um 10 þúsund sæti á
viku til Brussel. Þau eiga auövitað í
gífurlegri samkeppni.”
Þarfaðhalda
áætlun betur
Ekki veröur frekar fariö út í sam-
keppni erlendra aöila sín á milli í
þessu viötali. Þess í staö er reynt aö
finna snöggan blett og Sigfús spurö-
ur hvort ekki sé ástæöa til að halda
fastar utan um auglýstan brottfarar-
og komutíma New York véla Flug-
leiöa. En Sigfús haggast hvergi,
heldur sinni norðlenzku ró og segir:
„Þaö sem viö þurfum aö bæta er
tímaáætlunin. Seinkanir voru of
miklar í vetur og viö þurfum aö bæta
Ferðamál
Sæmundur
Guðvinsson
okkur verulega í þeim efnum. En viö
erum prýöilega settir meö flugvéla-
kost eins og er, meö tvær þotur og
áætlun ekki mjög þröng. Hins vegar
krefst háannatíminn mikillar ár-
vekni, en þaö er engin ástæða til
svartsýni. Oviöráöanlegar orsakir
geta auövitað haft áhrif, til dæmis
verkföll og nægir að nefna verkfall
flugumferöarst jóra hér í fyrra. ”
— Verður sætaframboö Flugleiöa í
ár milli Bandaríkjanna og Evrópu
aukiö verulega?
„Sætaframboð eykst um 37-38% á
þessu ári frá því í fyrra. Fyrst og
fremst vegna þess að ferðum er
fjölgaö. En þaö er foröazt aö auka
grunnkostnaöinn um leiö. Aukningin
er fyrst og fremst mánuöina marz,
apríl og maí og síöan í september og
október, en ekki miklu bætt viö yfir
hásumariö. Meö þessu næst betri
heildarnýting út úr þeirri starfsemi
sem hér er. Þaö má búast viö aö eitt-
hvaö fleiri feröist héöan til Evrópu
en i fyrra, enda dollarinn nú mjög
sterkur gjaldmiöill. Þá má geta
þess, aö fargjöld til Bretlands hafa
hækkaö meira en til meginlandsins.
Ödýr fargjöld til London eru oft
hærri núna heldur en til meginlands-
ins. Annars er miklu meiri sveigjan-
leiki i þessum bransa en var. Við nýt-
um til hins bezta þaö sem við höfum
og aölögum okkur að þeim breyting-
umsemveröa.”
— Með hvaöa hætti fer ykkar far-
miöasala einkum framhér vestra?
„Um 88% af okkar sölu er í gegnum
feröaskrifstofur. Viö eyöum veruleg-
um tíma, f jármunum og vinnu í aö
upplýsa starfsfólk þeirra um áætlan-
ir okkar, fargjöld og fleira. Þá er
stööugt auglýst í feröamálatímarit-
um og blöðum. Einnig eru upplýsing-
ar sendar í pósti og yfirleitt reynt aö
fylgjast vel með öllum tækifærum
sem gefast til aö vekja athygli á
félaginu. Ég minntist áöan á þann
fjölda símtala sem við fáum. Flug-
leiöir eru með skrifstofur í Chicago
og Washington auk New York, en öll-
um símtölum er beint hingaö og þaö
er mikið verk að veita öllum þessum
fjölda sem hringir upplýsingar og
taka við pöntunum.
— Hvaö vinna margir viö síma-
vörzlu?
„Þegar mest er þá þurfum viö aö
hafa um 45 manns viö pöntunarsím-
ana. Þetta er lausráöiö fólk aö mestu
og margt í hlutastarfi. Fjöldinn get-
ur því farið allt upp í 100 manns, en
fastráöiö starfsfólk Flugleiða í
Bandaríkjunum í fullu starfi er 56
eða 57 talsins.
Viö önnumst afgreiðslu fyrir tvö
önnur flugfélög á Kennedyflugvelli,
Pakistan Intemational og Arvista
sem er nýtt leiguflugfélag og flýgur
einkum til Grikklands. Stundum höf-
um viö fólk sem áður vann hjá Laker
í hlutastarfi viö þessa afgreiðslu.”
Aukinn áhugi
á íslandi
— En hvað um Island, Sigfús?
Hafa Bandaríkjamenn áhuga á ferð-
umþangað?
, ^íöastliöin þrjú ár hafa Flugleiðir
varið talsverðu fé til aö auglýsa Is-
land og þá aö hluta í samvinnu viö
Feröamálaráöið heima. Þetta hefur
boriö góöan árangur og farþegum til
Islands fjölgaö um 17-18% í fyrra og
bókanir mun betri nú en undanfarin
ár. Það er athyglisvert, að dýrasti
pakkinn, 16 daga Islandsferö á 1.200
dollara og flugfargjald að auki,
viröist njóta mestra vinsælda. Við
höfum gefiö út bækling um Islands-
ferðir i samvinnu viö Feröamálaráö
og dreift honum í 120 þúsund eintök-
um.
Viss árangur hefur oröið af starfi
norrænu ferðaskrifstofunnar hér í
New York og þáttur Islands í rekstri
skrifstofunnar til sóma. Þá er stefna
Ferðamálaráðs orðin fastmótaöri og
þetta stefnir því allt í rétta átt.
Nú er svo komið aö 60-65% af far-
þegum Flugleiða yfir Noröur-
Atlantshaf milli Bandaríkjanna og
Luxemborgar eru upprunnin hér
vestra. Rekstraröryggi ykist ef þetta
væri jafnara og ekki væru miklar
sveiflur í þessu. Þarna spila margir
þættir inn í, en þaö væri æskilegt ef
hægt væri aö fjölga farþegum frá
Evrópu. Mánuðina desember —
febrúar hefur hlutur farþega héöan
vaxið úr því aö vera minnihluti og
uppí aö vera 65% af heildarfjölda.”
— Þú ert bjartsýnn á framtíöina?
„öll framþróun er því marki
brennd aö hún veröur ekki til af
engu. Þetta kostar allt mikla vinnu
og mikið fé og þaö er mjög mikið eft-
ir aö gera. Það er sorglegt til þess aö
hugsa, að vinnudeilur eða annaö slíkt
getur eyöilagt þetta á skömmum
tíma. Einn iítiil starfshópur getur
eyöilagt gífurlega mikið ef svo ber
undir. Viö sáum hvaö gerðist áriö
1980, ” sagði Sigfús Eriingsson.
-SG
A
SAMHJALPARSAMKOMA
VEREXJR I FILADELflU, HATUNI2,
SUNNUDAGSKVÖLD KL. 20.00
Fjölbreytt dagskrá að vanda.
Fíladelfíukórinn syngur undir stjórn Árna
Arinbjarnarsonar. Vinirnir í Hlaðgerðarkoti
syngja og vitna. Og að síðustu verður kynnt
nýja hljómplata SAMHJÁLPAR, sem Garðar,
Anne og Ágústa syngja. Munu þau syngja lög
af plötunni, og Magnús Kjartansson og hljómsveit
leika undir. Stjórnandi samkomunnar
r r
verður Oli Agústsson
tómhjálp