Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Side 3
DV. LAUGARDAGUR14. AGUST1982.
3
allt bæjarlífiö. Við fáum svo inni í Fé-
lagsheimilinu fyrir ýmsa starfsemi
okkar, til dæmis þegar ráðstefnur
eru haldnar hér á vegum aðila er
gista hóteliö.”
Geta rennt sér
heim aðdyrum
— Hvaö með reksturinn yfir vetr-
artímann?
„Hann er eðlilega mun daufari en
yfir sumartímann. En til að vega upp
á móti þessum mismun höfum við
reynt að brydda upp á nokkrum
nýjungum í starfseminni. Og flestar
þeirra hafa gefiö góða raun.
Þannig stofnuðum við til svo-
nefndrar heilsuviku á síðasta vetri.
Hún vakti geysilega athygli lands-
manna og var h'ka mjög vel sótt.
Vonandi skilar það sér í aðsókninni
næsta vetur því að sjálfsögðu veröur
framhald á þessu hjá okkur. Einn
vinsælasti þátturinn í starfsemi okk-
ar yfir vetrartímann er hins vegar
skíöaferðirnar hingaö. Hótelgestir
njóta nefnilega þeirra sérstöku fríð-
inda að geta rennt sér svo að segja
hingað heim að dyrum að aflokinni
skíðaferð. Skíðasvæöi Húsavíkur er
alveg við bæjardyrnar hjá okkur.
Einungis þriggja minútna gangur er
í næstu skíðalyftu.
Auðvelt að
halda utan um
hópinn
A síöasta vetri buöum við lika upp
á leikferðir. Þetta voru þá svokallað-
ir helgarpakkar. Við eigum mjög
gott leikfélag héma sem setur upp á
hverjum vetri eina eða fleiri leiksýn-
ingar og hafa langflestar þeirra hlot-
iö mikið lof gagnrýnenda. Það má
segja að þessar leikhúsferðir hafi
lukkazt þokkalega. Sunnlendingar
voru heldur tregir til að skella sér
norður fyrir heiðar. Það var því eðli-
lega fólk hér af Norðurlandi sem
nýtti sér þessar ferðir.
Einnig má geta þess að ýmis fyrir-
tæki og félagasamtök sækja í æ rík-
ari mæli hingað til Húsavíkur til að
halda ráðstefnur sínar og fundi. Það
eru mörg dæmi þess að sömu aöilar
komi hingað aftur og aftur enda hafa
flestir þessir aðilar rómað mjög þá
aöstööu sem hér býðst til ráðstefnu-
halds. Það er auðvelt aö þeirra mati
að halda utan um hópinn þar eð bær-
inn er lítill. Hér er líka að jafnaði
minna um að vera en fyrir sunnan
þannig að það er lítið sem leiðir hug-
ann að öðru en sjálfri fundasetunni.
Við teljum Hótel Húsavík því að
þessu leyti mjög heppilegan stað
fyrir hvers konar ráðstefnuhald.”
Kemst ekki hjá því
að njóta lífsins
— Hvemig finnst þér að umgang-
ast fólk á faraldsfæti allan árins
hring?
„Mér þykir þaö sériega gaman,
annars væri ég náttúrlega ekki i
þessu starfi. Það er lika fólkiö sem
við viljum fá hingaö til okkar og því
fleira fólk sem kemur hingað til mín
því ánægöari verð ég. Sumarið er
vissulega skemmtilegast tíminn að
þessu leyti. Þá hefur maður varla við
að taka á móti nýjum gest-
um hvaðanæva úr heiminum. Og
þetta fólk kemur jafnan hingað til að
njóta tilverunnar sem mest það má
og þá kemst maöur ekki hjá því að
njóta lífsins með því. Þetta erkostur-
inn við það að hafa mikið af fólki í
kringum sig. Og ég held að fólk sé al-
mennt ánægt með dvölina hjá okkur
því margir sem hér gista, koma aft-
urnæsta áráeftir.”
— Fólk verður ekkert hissa að sjá
hér svona stórt og veglegt hótel í
jafnlitlu bæjarfélagi og Húsavík er?
„Jú, vissulega verða margir
hvumsa. Það finnst mörgum mjög
skrítið að finna hér á hjara veraldar
hótel sem nýtur sín vel í samanburði
við það sem almennt gerist á mestu
feröamannastööum heimsins. En
þetta eykur vonandi á ánægju fólks-
ins að dvelja hér meðal okkar bæjar-
búa.”
Ekkert fararsnið
á mér og
minni fjölskyldu
— Að lokum, Auður. Þú hefur búið
hér á Húsavík á sjötta ár. Ertu farin
aö líta á þig sem hvem annan Hús-
víking?
„Ég vil nú ekkert fullyrða í því
sambandi. En það er alla vega ekkert
fararsniö á mér og minni fjölskyldu.
Við unum okkur mjög vel, höfum
fjárfest í ágætis húsi hér á staðnum
sem óneitanlega tengir okkur staön-
ummikið.
Mér finnst Húsavík vera mjög
þægilegur staður. Fólkið er samstillt
og hlýlegt í viðmóti og það tekur ekki
langan tíma að kynnast því vel.
Svo má ekki gleyma því að ég er
svo heppin að vera í starfi sem ég nýt
mín í til fullnustu. Þar held ég að
gæfan get ekki verið manni hliðholl-
ari.”
— Og með þessum orðum Auöar
Gunnarsdóttur, hótelstjóra Húsvík-
inga, kveðjum við „The Town of The
MidnightSun”.
-SER.
Auður Gunnarsdóttir
hótelst/óri fyrir utan
vinnustað sinn á Húsavík.
DV-myndir Bjarnieifur
Bjarniaifsson.
Borgm, sem kemur a óvart.
Amsterdam býður upp á allt það
sem hugur ferðamannsins
girnist, svo sem listasöfn, hljóm-
leika, frábæra veitingastaði,
góðar verzlanir, litskrúðugt
skemmtana- og mannlíf.
4ra daga ferðir, 5 daga ferðir og
vikuferðir.
Flug og bíll frá kr. 3.900,-
Flug og gisting frá kr. 4.500, -
Notfœrið ykkur þessi einstœðu
tilboð sem gilda aðeins út
þennan mánuð.
Ferðaskrifstofan Laugavegi 66,
101 Reykjavík, Sími: 28633
AMSTERDAM