Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR14. AGUST1982. 3 allt bæjarlífiö. Við fáum svo inni í Fé- lagsheimilinu fyrir ýmsa starfsemi okkar, til dæmis þegar ráðstefnur eru haldnar hér á vegum aðila er gista hóteliö.” Geta rennt sér heim aðdyrum — Hvaö með reksturinn yfir vetr- artímann? „Hann er eðlilega mun daufari en yfir sumartímann. En til að vega upp á móti þessum mismun höfum við reynt að brydda upp á nokkrum nýjungum í starfseminni. Og flestar þeirra hafa gefiö góða raun. Þannig stofnuðum við til svo- nefndrar heilsuviku á síðasta vetri. Hún vakti geysilega athygli lands- manna og var h'ka mjög vel sótt. Vonandi skilar það sér í aðsókninni næsta vetur því að sjálfsögðu veröur framhald á þessu hjá okkur. Einn vinsælasti þátturinn í starfsemi okk- ar yfir vetrartímann er hins vegar skíöaferðirnar hingaö. Hótelgestir njóta nefnilega þeirra sérstöku fríð- inda að geta rennt sér svo að segja hingað heim að dyrum að aflokinni skíðaferð. Skíðasvæöi Húsavíkur er alveg við bæjardyrnar hjá okkur. Einungis þriggja minútna gangur er í næstu skíðalyftu. Auðvelt að halda utan um hópinn A síöasta vetri buöum við lika upp á leikferðir. Þetta voru þá svokallað- ir helgarpakkar. Við eigum mjög gott leikfélag héma sem setur upp á hverjum vetri eina eða fleiri leiksýn- ingar og hafa langflestar þeirra hlot- iö mikið lof gagnrýnenda. Það má segja að þessar leikhúsferðir hafi lukkazt þokkalega. Sunnlendingar voru heldur tregir til að skella sér norður fyrir heiðar. Það var því eðli- lega fólk hér af Norðurlandi sem nýtti sér þessar ferðir. Einnig má geta þess að ýmis fyrir- tæki og félagasamtök sækja í æ rík- ari mæli hingað til Húsavíkur til að halda ráðstefnur sínar og fundi. Það eru mörg dæmi þess að sömu aöilar komi hingað aftur og aftur enda hafa flestir þessir aðilar rómað mjög þá aöstööu sem hér býðst til ráðstefnu- halds. Það er auðvelt aö þeirra mati að halda utan um hópinn þar eð bær- inn er lítill. Hér er líka að jafnaði minna um að vera en fyrir sunnan þannig að það er lítið sem leiðir hug- ann að öðru en sjálfri fundasetunni. Við teljum Hótel Húsavík því að þessu leyti mjög heppilegan stað fyrir hvers konar ráðstefnuhald.” Kemst ekki hjá því að njóta lífsins — Hvemig finnst þér að umgang- ast fólk á faraldsfæti allan árins hring? „Mér þykir þaö sériega gaman, annars væri ég náttúrlega ekki i þessu starfi. Það er lika fólkiö sem við viljum fá hingaö til okkar og því fleira fólk sem kemur hingað til mín því ánægöari verð ég. Sumarið er vissulega skemmtilegast tíminn að þessu leyti. Þá hefur maður varla við að taka á móti nýjum gest- um hvaðanæva úr heiminum. Og þetta fólk kemur jafnan hingað til að njóta tilverunnar sem mest það má og þá kemst maöur ekki hjá því að njóta lífsins með því. Þetta erkostur- inn við það að hafa mikið af fólki í kringum sig. Og ég held að fólk sé al- mennt ánægt með dvölina hjá okkur því margir sem hér gista, koma aft- urnæsta áráeftir.” — Fólk verður ekkert hissa að sjá hér svona stórt og veglegt hótel í jafnlitlu bæjarfélagi og Húsavík er? „Jú, vissulega verða margir hvumsa. Það finnst mörgum mjög skrítið að finna hér á hjara veraldar hótel sem nýtur sín vel í samanburði við það sem almennt gerist á mestu feröamannastööum heimsins. En þetta eykur vonandi á ánægju fólks- ins að dvelja hér meðal okkar bæjar- búa.” Ekkert fararsnið á mér og minni fjölskyldu — Að lokum, Auður. Þú hefur búið hér á Húsavík á sjötta ár. Ertu farin aö líta á þig sem hvem annan Hús- víking? „Ég vil nú ekkert fullyrða í því sambandi. En það er alla vega ekkert fararsniö á mér og minni fjölskyldu. Við unum okkur mjög vel, höfum fjárfest í ágætis húsi hér á staðnum sem óneitanlega tengir okkur staön- ummikið. Mér finnst Húsavík vera mjög þægilegur staður. Fólkið er samstillt og hlýlegt í viðmóti og það tekur ekki langan tíma að kynnast því vel. Svo má ekki gleyma því að ég er svo heppin að vera í starfi sem ég nýt mín í til fullnustu. Þar held ég að gæfan get ekki verið manni hliðholl- ari.” — Og með þessum orðum Auöar Gunnarsdóttur, hótelstjóra Húsvík- inga, kveðjum við „The Town of The MidnightSun”. -SER. Auður Gunnarsdóttir hótelst/óri fyrir utan vinnustað sinn á Húsavík. DV-myndir Bjarnieifur Bjarniaifsson. Borgm, sem kemur a óvart. Amsterdam býður upp á allt það sem hugur ferðamannsins girnist, svo sem listasöfn, hljóm- leika, frábæra veitingastaði, góðar verzlanir, litskrúðugt skemmtana- og mannlíf. 4ra daga ferðir, 5 daga ferðir og vikuferðir. Flug og bíll frá kr. 3.900,- Flug og gisting frá kr. 4.500, - Notfœrið ykkur þessi einstœðu tilboð sem gilda aðeins út þennan mánuð. Ferðaskrifstofan Laugavegi 66, 101 Reykjavík, Sími: 28633 AMSTERDAM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.