Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Blaðsíða 17
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir draum,” segir Ágústa frænka og reynir aö vara Sybyllu viö. „Hann er ekki fáránlegur,” er eina svariö. Sybylla neitar enn Sybylla biöur Harry um tveggja ára frest en á þeim tíma hyggst hún finna sjálfa sig. Örlögin haga því þannig að þessum tveim árum þarf hún aö eyða viö kennslustörf. Vinnan er erfið en Sybylla á af miklu aö taka og reynir aö gera þaö bezta úr erfið- um aöstæðum viö kennsluna. Heppnin er meö Sybyllu og vegna misskilnings snýr hún aftur heim á leiö frá kennslunni fyrr en til stóö. Harry er ekki seinn á vettvang en Sybylla er hrædd viö aö enda eins og móöir hennar, meö nýtt bam á hand- leggnum á hverju ári. Sybylla er nú ákveðin í aö gerast rithöfundur. Hún segir Harry hvernig komiö er og seg- ist þurfa aö vera ein viö iðju sína, ella myndi hún eyðileggja líf hans. Henni þykir of vænt um hann til að vilja fremja slíkt ódæöi. Ástralskar kvikmyndir eiga sér stöðugt fleiri aðdáendur. Þær eru ekki mjög margar áströlsku kvikmyndimar sem sýnd- ar hafa verið hérlendis en nú er ein þeirra væntan- leg til sýningar í Regn- boganum. Hún heitir My Brilliant Career og grein- ir frá lífi ungrar stúlku seint á síðustu öld. Kvik- myndin er byggð á samnefndri sjálfsævisögu Miles Franklin. Bókin var skrifuð árið 1897 og höfundurinn var þá aðeins 16 ára. Bókin olli miklu fjaðrafoki í heimalandi Franklin, Ástralíu, og það var ekki sízt fjölskyldu hennar sem þótti nokkuð langt gengið með útgáfu bókarinnar. Franklin setti blátt bann viö því að bókin yrði gefin út öðru sinni fyrr en eftir sinn dag og þaö var ekki fyrr en 1965 aö ný útgáfa kom fyrir almenningssjónir. Margaret Fink kvikmyndaframleiðandi var meöal þeirra sem hrifust af bókinni. Fink tókst að vekja áhuga kvikmynda- leikstjórans Gillian Armstrong á bókinni og konurnar tvær komu sér saman um aö vert væri aö gera kvik- mynd eftir henni. Eleanor Witcombe tók aö sér aö skrifa handritið. Heimur glæsileikans Þaö eru sem sagt konur sem hafa skrifað handritiö, leikstýrt og fram- leitt My Briiliant Career. I myndinni greinir frá ungri konu sem sættir sig ekki viö stöðu kvenna á 19. öldinni og gerir uppreisn. Nafniö á myndinni er kaldhæðiö. Aöalpersónan, Sybylla, er fátæk en dreymir um frábæran frama. I draumum sínum gleymir hún raun- veruleikanum; skrælþurru land- inu, sandstormunum, drykkjuskap fööur síns og móöur sinni sem á f ullt í fangi meö aö fæða og klæöa Sybyllu og systkini hennar. Og Sybylla skrif- ar: ,,Ég reyni ekki að afsaka þaö aö ég skuli vera síhugsandi um sjálfa mig, það geri ég — en ég hef alltaf haldið aö ég ætti heima í heimi list- anna, tónlistarinnar og bókmennt- anna og heimi glæsileikans.” Foreldrar Sybyllu hafa ekki efni á aö hafa hana heima öllu lengur og reyna að útvega henni vinnu viö þjónustustörf. En stúlkunni lízt ekki á slíka vinnu, — hún hefur þörf fyrir aö ræöa listir og bókmenntir og hún vill gjaman veröa píanóleikari. Móö- ir Sybyllu veit ekki sitt rjúkandi ráö og kallar hana „ljóta, ómögulega og guölausa”. En amma Sybyllu er ekki á flæöi- skeri stödd og gamla konan býöur henni aö dveljast á óöalssetri sínu. Nú fær Sybylla tækifæri til aö sinna áhugamálum sínum og umgangast betri borgara. Hvar sem hún kemur þykir hún óhk sinni ágætu f jölsky ldu. Sybyllu leiöist þetta aö vonum en hún er oröheppin og fljót að svara fyrir sig. Fjör Sybyllu hrífur Júlíus frænda hennar en amma gamla læt- ur sér fátt um finnast. Gamla konan ætlar sér nefnilega aö gifta Sybyllu og hefur í því sambandi augastað á Frank nokkrum. Hann er ríkur og úr „fínni” fjölskyldu. Þegar Frankber upp bónorðiö svarar Sybylla meö því aö velta honum ofaní kró fulla af sauöfé. Amma reiöist og krefur Sybyllu um skýringar og sú stutta svarar því til aö hún skuli aldrei gift- ast neinum sem hún elski ekki. DV. LAUGARDAGUR14. ÁGUST1982. itf n Brilliant Career, hvihmynd um líf ungrar stúlhu íÁstralíu fgrir hundrað árum Hjónabandið og virðingarstaðan Frænka Sybyllu reynir aö koma vitinu fyrir hana: „Þú verður aö skilja aö hjónabandið veitir okkur viröingarstööu.” Og Sybylla lætur ekki standa á svari: „Það er nú bara eitthvað sem karlmenn vilja að við trúum.” Á meðan á vistinni hjá ömmu stendur kynnist Sybylla Harry Beecham og gamalli frænku hans, Ágústu. Þau búa ekki fjarri ömmunni, á setrinu „Five Bob”. Harry er rólegur náungi og Sybyllu finnst það eins og áskorun. Hún vill hleypa lífi í þennan ágætismann og smám saman tekst henni þaö. Ágústa frænka fylgist spennt meö því hvernig ástin grípur unglingana og hún biöur Harry aö rasa ekki um ráö fram. Sybylla er enn staðráðin í því að binda sig ekki og reynir að láta Harry ekki komast aö því hvern- ig henni er innanbr jósts. Harry þarf aö bregöa sér burt af búinu nokkra daga og á meðan situr Sybylla heima og lætur sig dreyma. Hún vonast eftir heimsókn Harrys en þarf að bíöa lengi. Frank hefur nefnilega séð hvers kyns er og sagt Harry misjafnar sögur af Sybyllu. Hún á í erfiðri klípu. Henni er fjarri skapi aö ganga í hjónaband en þrátt fyrir þaö á Harry hug hennar svo til allan. Sybyllu þykir mikiö í húfi þeg- ar frami hennar er annars vegar. Þegar Harry ber loks upp bónorðið er henni ljóst að þó hún vilji deila líf- inu meö honum þá er hún ekki tilbúin til aö fóma sjálfri sér á altari hjóna- bandsins. „Einmanaleikinn er óhóflegt verö fyrir fáránlegan Frelsld ofar öllu Forcldrar Sybyllu reyna að ræða málin við hana. harla eölileg. En í gamla daga þegar æðsti draumur hverrar konu var góð- ur maður og fjöldi bama kann saga Sybyllu aö hafa virzt beinlínis hættu- leg fyrir þjóðfélagiö. Já, hugsið ykk- ur ef konur hefðu verið farnar að hugsa um eigin frama strax um síö- ustualdamót! Leikkonan Judy Davis fer meö hlutverk Sybyllu. Hún er afar f jömg og nærfærin í túlkun sinni og þaö r erfitt aö skilja hvers vegna alltai cr verið aö tala um ófríöleika Sybyllu í myndinni. Hún er ef til vill ekki bein- línis fíngerð og hún hefur mikiö og snarkrullað hár. Fyrir bragöiö er hún ólík hinum stúlkunum. En eftir því sem kjarkur hennar og þor eykst veröur hún stööugt laglegri. Ágústa frænka segir líka: „Viö hliöina á þér veröa þessar snyrtilegu ungfrúr eins og hópur af gæsum! — og það eru þær líka.” Ágústa var heldur ekki nein venjuleg stúlka á yngri árum og þaö er Patricia Kennedy sem leikur hana af mikilli hlýju. Gömul saga enern v/ð v/n sinn. Nýsjálenzki leikarinn Sam Neill leikur Harry Beecham. Honum tekst vel að túlka þennan ágætis mann, svo vel aö flestir hljóta aö finna til með aumingja Harry þegar Sybylla hryggbrýtur hann í annaö sinn. My Brilliant Career fjallar um atburöi sem geröust fyrir nærri hundrað ámm. Engu aö síður hefur sagan haldiö fullu gildi sínu. Boð- skapur hennar á enn þann dag í dag erindi til nútímakvenna. Auövitaö fáum viö ekki alltaf það sem viö k jós- um sjálf helzt af öllu. En ef vilja- styrkurinn er nægur er næsta ömggt aö unnt er aö snúa þróun einstakl- ingsins í þá átt sem óskað er. En sUkt og þvílíkt kostar jafnan fórnir sem ýmsir eru ragir viö aö færa. My Brilliant Career var gerö árið 1979 og hefur síðan veriö sýnd víða um heim. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma veröur hún sýnd hér í Reykjavík innan skamms. -SKJ Snemma morguns, þegar sólin er í þann veginn að koma upp, pakkar Sybylla handritinu sínu inn í pappír. Hún bíöur síöan eftir póstinum sem ætlar að færa heiminum ritverkið. My Brillant Career er indæl kvik- mynd og í henni er aö finna mörg stórskemmtileg atriði. Lýsing myndarinnar á aldarfarinu rétt fyrir síöustu aldamót er líka ákaflega sannfærandi. Hættuleg afstaða? My Brilliant Career er lýsing á því hvernig Sybylla breytist úr draum- lyndum krakka í hugrakka konu sem horfist í augu viö óvissa framtíö. Hún hefur valiö sér stefnu í lífinu og hyggst fylgja henni þó hún gangi í berhögg við venjur samtímans. Sybylla semur sig ekki að tíðarand- anum og hún neitar af þeim sökum að giftast manninum sem hún elskar ogsemelskar hana. Núá dögum þætti uppreisn Sybyllu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.