Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1982, Qupperneq 17
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
draum,” segir Ágústa frænka og
reynir aö vara Sybyllu viö. „Hann er
ekki fáránlegur,” er eina svariö.
Sybylla neitar enn
Sybylla biöur Harry um tveggja
ára frest en á þeim tíma hyggst hún
finna sjálfa sig. Örlögin haga því
þannig að þessum tveim árum þarf
hún aö eyða viö kennslustörf. Vinnan
er erfið en Sybylla á af miklu aö taka
og reynir aö gera þaö bezta úr erfið-
um aöstæðum viö kennsluna.
Heppnin er meö Sybyllu og vegna
misskilnings snýr hún aftur heim á
leiö frá kennslunni fyrr en til stóö.
Harry er ekki seinn á vettvang en
Sybylla er hrædd viö aö enda eins og
móöir hennar, meö nýtt bam á hand-
leggnum á hverju ári. Sybylla er nú
ákveðin í aö gerast rithöfundur. Hún
segir Harry hvernig komiö er og seg-
ist þurfa aö vera ein viö iðju sína,
ella myndi hún eyðileggja líf hans.
Henni þykir of vænt um hann til að
vilja fremja slíkt ódæöi.
Ástralskar kvikmyndir
eiga sér stöðugt fleiri
aðdáendur. Þær eru ekki
mjög margar áströlsku
kvikmyndimar sem sýnd-
ar hafa verið hérlendis en
nú er ein þeirra væntan-
leg til sýningar í Regn-
boganum. Hún heitir My
Brilliant Career og grein-
ir frá lífi ungrar stúlku
seint á síðustu öld. Kvik-
myndin er byggð á
samnefndri sjálfsævisögu
Miles Franklin. Bókin var
skrifuð árið 1897 og
höfundurinn var þá aðeins
16 ára. Bókin olli miklu
fjaðrafoki í heimalandi
Franklin, Ástralíu, og það
var ekki sízt fjölskyldu
hennar sem þótti nokkuð
langt gengið með útgáfu
bókarinnar.
Franklin setti blátt bann viö því að
bókin yrði gefin út öðru sinni fyrr en
eftir sinn dag og þaö var ekki fyrr en
1965 aö ný útgáfa kom fyrir
almenningssjónir. Margaret Fink
kvikmyndaframleiðandi var meöal
þeirra sem hrifust af bókinni. Fink
tókst að vekja áhuga kvikmynda-
leikstjórans Gillian Armstrong á
bókinni og konurnar tvær komu sér
saman um aö vert væri aö gera kvik-
mynd eftir henni. Eleanor Witcombe
tók aö sér aö skrifa handritið.
Heimur
glæsileikans
Þaö eru sem sagt konur sem hafa
skrifað handritiö, leikstýrt og fram-
leitt My Briiliant Career. I myndinni
greinir frá ungri konu sem sættir sig
ekki viö stöðu kvenna á 19. öldinni og
gerir uppreisn.
Nafniö á myndinni er kaldhæðiö.
Aöalpersónan, Sybylla, er fátæk en
dreymir um frábæran frama. I
draumum sínum gleymir hún raun-
veruleikanum; skrælþurru land-
inu, sandstormunum, drykkjuskap
fööur síns og móöur sinni sem á f ullt í
fangi meö aö fæða og klæöa Sybyllu
og systkini hennar. Og Sybylla skrif-
ar: ,,Ég reyni ekki að afsaka þaö aö
ég skuli vera síhugsandi um sjálfa
mig, það geri ég — en ég hef alltaf
haldið aö ég ætti heima í heimi list-
anna, tónlistarinnar og bókmennt-
anna og heimi glæsileikans.”
Foreldrar Sybyllu hafa ekki efni á
aö hafa hana heima öllu lengur og
reyna að útvega henni vinnu viö
þjónustustörf. En stúlkunni lízt ekki
á slíka vinnu, — hún hefur þörf fyrir
aö ræöa listir og bókmenntir og hún
vill gjaman veröa píanóleikari. Móö-
ir Sybyllu veit ekki sitt rjúkandi ráö
og kallar hana „ljóta, ómögulega og
guölausa”.
En amma Sybyllu er ekki á flæöi-
skeri stödd og gamla konan býöur
henni aö dveljast á óöalssetri sínu.
Nú fær Sybylla tækifæri til aö sinna
áhugamálum sínum og umgangast
betri borgara. Hvar sem hún kemur
þykir hún óhk sinni ágætu f jölsky ldu.
Sybyllu leiöist þetta aö vonum en hún
er oröheppin og fljót að svara fyrir
sig. Fjör Sybyllu hrífur Júlíus
frænda hennar en amma gamla læt-
ur sér fátt um finnast. Gamla konan
ætlar sér nefnilega aö gifta Sybyllu
og hefur í því sambandi augastað á
Frank nokkrum. Hann er ríkur og úr
„fínni” fjölskyldu. Þegar Frankber
upp bónorðiö svarar Sybylla meö því
aö velta honum ofaní kró fulla af
sauöfé. Amma reiöist og krefur
Sybyllu um skýringar og sú stutta
svarar því til aö hún skuli aldrei gift-
ast neinum sem hún elski ekki.
DV. LAUGARDAGUR14. ÁGUST1982.
itf n Brilliant
Career,
hvihmynd
um líf
ungrar stúlhu
íÁstralíu
fgrir
hundrað árum
Hjónabandið og
virðingarstaðan
Frænka Sybyllu reynir aö koma
vitinu fyrir hana: „Þú verður aö
skilja aö hjónabandið veitir okkur
viröingarstööu.” Og Sybylla lætur
ekki standa á svari: „Það er nú bara
eitthvað sem karlmenn vilja að við
trúum.”
Á meðan á vistinni hjá ömmu
stendur kynnist Sybylla Harry
Beecham og gamalli frænku hans,
Ágústu. Þau búa ekki fjarri
ömmunni, á setrinu „Five Bob”.
Harry er rólegur náungi og Sybyllu
finnst það eins og áskorun. Hún vill
hleypa lífi í þennan ágætismann og
smám saman tekst henni þaö.
Ágústa frænka fylgist spennt meö
því hvernig ástin grípur unglingana
og hún biöur Harry aö rasa ekki um
ráö fram. Sybylla er enn staðráðin í
því að binda sig ekki og reynir að
láta Harry ekki komast aö því hvern-
ig henni er innanbr jósts.
Harry þarf aö bregöa sér burt af
búinu nokkra daga og á meðan situr
Sybylla heima og lætur sig dreyma.
Hún vonast eftir heimsókn Harrys en
þarf að bíöa lengi. Frank hefur
nefnilega séð hvers kyns er og sagt
Harry misjafnar sögur af Sybyllu.
Hún á í erfiðri klípu. Henni er fjarri
skapi aö ganga í hjónaband en þrátt
fyrir þaö á Harry hug hennar svo til
allan. Sybyllu þykir mikiö í húfi þeg-
ar frami hennar er annars vegar.
Þegar Harry ber loks upp bónorðið
er henni ljóst að þó hún vilji deila líf-
inu meö honum þá er hún ekki tilbúin
til aö fóma sjálfri sér á altari hjóna-
bandsins. „Einmanaleikinn er
óhóflegt verö fyrir fáránlegan
Frelsld
ofar
öllu
Forcldrar Sybyllu reyna
að ræða málin við hana.
harla eölileg. En í gamla daga þegar
æðsti draumur hverrar konu var góð-
ur maður og fjöldi bama kann saga
Sybyllu aö hafa virzt beinlínis hættu-
leg fyrir þjóðfélagiö. Já, hugsið ykk-
ur ef konur hefðu verið farnar að
hugsa um eigin frama strax um síö-
ustualdamót!
Leikkonan Judy Davis fer meö
hlutverk Sybyllu. Hún er afar f jömg
og nærfærin í túlkun sinni og þaö r
erfitt aö skilja hvers vegna alltai cr
verið aö tala um ófríöleika Sybyllu í
myndinni. Hún er ef til vill ekki bein-
línis fíngerð og hún hefur mikiö og
snarkrullað hár. Fyrir bragöiö er
hún ólík hinum stúlkunum. En eftir
því sem kjarkur hennar og þor eykst
veröur hún stööugt laglegri. Ágústa
frænka segir líka: „Viö hliöina á þér
veröa þessar snyrtilegu ungfrúr eins
og hópur af gæsum! — og það eru
þær líka.” Ágústa var heldur ekki
nein venjuleg stúlka á yngri árum og
þaö er Patricia Kennedy sem leikur
hana af mikilli hlýju.
Gömul saga
enern
v/ð v/n sinn.
Nýsjálenzki leikarinn Sam Neill
leikur Harry Beecham. Honum tekst
vel að túlka þennan ágætis mann,
svo vel aö flestir hljóta aö finna til
með aumingja Harry þegar Sybylla
hryggbrýtur hann í annaö sinn.
My Brilliant Career fjallar um
atburöi sem geröust fyrir nærri
hundrað ámm. Engu aö síður hefur
sagan haldiö fullu gildi sínu. Boð-
skapur hennar á enn þann dag í dag
erindi til nútímakvenna. Auövitaö
fáum viö ekki alltaf það sem viö k jós-
um sjálf helzt af öllu. En ef vilja-
styrkurinn er nægur er næsta ömggt
aö unnt er aö snúa þróun einstakl-
ingsins í þá átt sem óskað er. En sUkt
og þvílíkt kostar jafnan fórnir sem
ýmsir eru ragir viö aö færa.
My Brilliant Career var gerö árið
1979 og hefur síðan veriö sýnd víða
um heim. Eftir öllum sólarmerkjum
að dæma veröur hún sýnd hér í
Reykjavík innan skamms.
-SKJ
Snemma morguns, þegar sólin er í
þann veginn að koma upp, pakkar
Sybylla handritinu sínu inn í pappír.
Hún bíöur síöan eftir póstinum sem
ætlar að færa heiminum ritverkið.
My Brillant Career er indæl kvik-
mynd og í henni er aö finna mörg
stórskemmtileg atriði. Lýsing
myndarinnar á aldarfarinu rétt fyrir
síöustu aldamót er líka ákaflega
sannfærandi.
Hættuleg
afstaða?
My Brilliant Career er lýsing á því
hvernig Sybylla breytist úr draum-
lyndum krakka í hugrakka konu sem
horfist í augu viö óvissa framtíö. Hún
hefur valiö sér stefnu í lífinu og
hyggst fylgja henni þó hún gangi í
berhögg við venjur samtímans.
Sybylla semur sig ekki að tíðarand-
anum og hún neitar af þeim sökum
að giftast manninum sem hún elskar
ogsemelskar hana.
Núá dögum þætti uppreisn Sybyllu