Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 5
DV. FIMMTUDAGUR 26. ÁGtJST 1982. 5 BORGARRAÐIALDREI VER» SÝND ÖNNUR EINS ÓVIRDING — segir Sigurjón Pétursson um af greiðslu borgarstjóra á samningi við verksmiðjumar við Seljaveg fundi,” sagði Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, þegar hann var inntur álits á þeirri ákvörðun borgarstjóra að undirrita samning viö Kolsýruhleðsluna og Eimi við Seljaveg tveim dögum áður en samningurinn átti að koma til umf jöll- unarí borgarráði. Ibúar viö Seljaveg hafa um margra ára skeið mótmælt starfsemi þessara efnaverksmiðja og óskað eftir því við borgaryfirvöld að þau yrðu flutt. Lóða- samningur fyrirtækjanna rennur út innan skamms en þau sóttu um að fá að halda áfram starfsemi á þessum stað næstu 30 árin. Þegar málið kom fyrir borgarráð á síðasta ári var ákveðið að Kolsýruhleðslunni yrði gef- inn kostur á að framlengja samninginn til 10 ára en ekki var tekin afstaöa til Eimis. Ennfremur var ákveðið að hafnar yrðu viðræður um flutning fyrirtækjanna. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í samtali við DV aö samþykkt borgar- ráðs í fyrra hefði verið ívilnun sem ekki hefði verið hægt að afturkalla bótalaust. „Eftiraðþessiraðilarhöfðu „Borgarráði hefur aldrei verið sýnd önnur eins óvirðing af embættismanni á þeim tima sem ég hef setið þar Sigurjón Pétursson: Ég efast ekki um lagalegan rétt borgarst jóra en þetta er siðleysi. Bing&Grandahl: OPNA LISTSÝN- INGU Á KJARVALS- STÖÐUM í DAG Listsýning dönsku postulínsverk- smiðjunnar Bing & Grondahl á Kjar- valsstöðum hefst í dag klukkan 14. Sendiherra Dana á tslandi J.A.W. Paludan opnar sýninguna að við- stöddum forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur. Meðal muna á sýningunni eru af- steypur af styttum eftir Bertel Thor- valdssen og flísar unnar eftir fyrir- myndum Rúnu,sem fullu nafni heitir Sigrún Guðjónsdóttir. Á listsýning- unni getur að líta sýnishorn frá fyrstu árum Bing & Grondahl verk- smiðjanna, jafnt sem nýja gripi. Margir listmunir sem Bing & Gren- dahl hefur nýlega hafið framleiðslu á eru ákaflega frumlegir og ættu að falla að smekk nútímamanna. Listsýning Bing & Grondahl stend- ur til mánudagskvöldsins 30. ágúst og er opin frá kl. 14 til 22 daglega. -SKJ. undirritað samninginn tel ég það embættisskyldu mína að framfylgja ákvörðun borgarráðs og undirrita hann líka, enda engin tillaga komið fram í borgarráði um annað. Það sem hefur vakað fyrir ákveönum aöilum innan borgarráðs núna er að kanna hvort unnt væri að afturkalla leyfi fýrirtækisins um áframhaldandi starf- semi þarna til 10 ára. En ég taldi nauðsynlegt að uppfylla skyldur borgarinnar og undirrita samninginn og það gerði ég,” sagði Davíð Oddsson. Davíö undirritaði samninginn á sunnudaginn, eða tveim dögum áöur en umræða átti að fara fram um hann í borgarráði. „Eg tel að borgarstjóri hafi undirritaö samninginn vegna þess að hann hafi talið aö ekki hafi veriö meirihluti í borgarráði fyrir stað- festingu hans,” sagöi Sigurjón Péturs- son. ,,Ég er ekki að efast um lagalegan rétt hans en þetta er siðleysi. ” Miklar umræður urðu um þetta mál á borgarráðsfundi á þriðjudaginn og var Albert Guðmundsson andvígur því hvemig málið var leyst. Segir í bókun sem hann lét gera á fundinum að skoð- un hans sé sú að umrætt borgarhverfi eigi að skipuleggjast sem íbúðahverfi og hverfa eigi hið fyrsta frá skipulagi um iðnaðarhverfi á þessumstað. ÓEF. 2z^°Pian •K'SÁr*™"'"""""'"'’"” pian - g:öríA yjorið svo vel!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.