Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 7
DV. FIMMTUDAGUR 26. ÁGOST1982.
Neytendur Neytendur Neytendur
Ölystug kartafla, hýði dökkt og kartaflan bragðdauf. Enda hafa margir neytendur kvartað yfir nýju islensku
kartöflunum.
Kartöf lurnar lækka:
Neytendur kvarta yfír
slæmum kartöfíum
— annað fyrirkomulag við dreifingu æskilegra
segir yf irmatsmaður
Margir neytendur hafa komið að
máli viðokkurogkvartaðyfirnýju ís-
lensku kartöflunum, sem komu á
markaðinn um miðjan ágúst.
Kartöflurnar eru óásjálegar, hýðið
dökkt og þykkt, og kartöflumar bragð-
daufar. Nokkrir viömælenda okkar
hafa hreinlega hent kartöflunum án
þess að bragða á þeim og sagt að útlitið
eitt á kartöflunum sé nægileg ástæða
til aö leggja þær sér ekki til munns.
Kartöflumar eru ljótar ósoönar og
ekki batna þær við suðu. Von er að fólk
sé vonsvikið því að alltaf hefur það
verið tilhlökkunarefni að fá nýjar ís-
lenskar kartöflur siösumars.
Kartöflurnar lækka
Þessi kartöflusending var heldur
ekki gefin, 2 1/2 kg poki kostaði kr.
44.25 og5 kg. pokikr. 87.30. Síðastliðinn
mánudag (23.8.)lækkuðu kartöflurnar í
verði og kosta, þó aöeins þessa viku, 2
1/2 kg 24.70 og 5 kg kr. 48.60. A mánu-
dag munu kartöflumar lækka enn
meira í verði, en ekki vitað hve mikið
að sögn starfsmanns hjá Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins.
En hvers vegna er þessi uppskera
svo slæm sem raun ber vitni? Við höfð-
umsambandvið Eðwald B.Malmquist,
yfirmatsmann garöávaxta, og hafði
hann m.a. þetta að segja:
„Það er rétt að við höfum fengið
kvartanir yfir þessari kartöflusend-
ingu, sem kom til Reykjavíkur 12.—14.
ágúst sl. Það hefur margoft sýnt sig aö
fyrsta sumaruppskeran er mjög við-
kvæm. Vélaupptakan, núningurinn við
fragtlosun og pökkun geta farið illa
með svo viðkvæma vöru sem þessar
kartöflurem.”
Teknarof
fljótt upp
Yfirmatsmaðurinn var spurður
hvort hann teldi að kartöflurnar hefðu
verið teknar upp of fljótt og svaraði
hann því játandi.
„Það hefur oft verið rætt að heppi-
legra væri með fyrstu uppskeruna á
haustin að setja kartöflumar beint í
kassa og dreifa þeim í kössunum í
verslanir, vegna þess hve varan þolir
illa allt hnjask. En þessu fyrirkomu-
lagi fylgir nokkur grunnkostnaður,
fjárfesting í sérstökum kössum.”
Sem hver á að greiða ?
„Framleiðendur yrðu sjálfsagt að
standa undir þeim kostnaði,” sagði
Eðwald B. Malmquist, en þar sem
þetta fyrirkomulag hefði aðeins verið á
umræöustigi væri margt óráðið enn í
þessu máli. En vonandi verður eitt-
hvað betra fyrirkomulag haft á með-
ferð og dreifingu á viðkvæmum
kartöflum í framtíðinni og strax næsta
haust áður en fyrsta uppskera berst til
neytenda. -ÞG.
„Bakpokar eru heppttegustu skóla-
töskuraar,” stendur i grein um
hrygginn i blaðinu Httse. Pokarair
leggjast að bakinu og hendurnar eru
frjálsar. DV-mynd-RTh.
SKOLATASK
AN ÞARF AÐ
VERA LÉTT
— hifigum að hrygg bamsins
Nú fer sumarfríunum að ljúka og
skólamir að hefja göngu sína. Skóla-
töskumar eru teknar fram eða
fyrsta skólataskan er keypt. Það er
mikilvægt fyrir heilsu bamsins að
það gangi ekki með of mikiö í tösk-
unni, sem getur leitt af sér bakverk.
Beztu skólatöskumar eru bakpok-
ar. Þeir liggja þétt að líkamanum og
hendurnar era frjálsar. Taskan
veröur að vera viö hæfi barnsins,
ekki of stór. Endingargott efni
verður að vera í töskunni og ólarnar
eiga að vera breiðar svo að þær særi
ekkiaxlirnar.
Minnstu skólabömin geta auðveld-
lega borið 2—3 kíló en það er of mikiö
daglega. Það er líkt og ef fullorðinn
gengi með 7—8 kíló af bókum hvern
dag. Foreldrar verða að hafa eftirlit
með þessu, börnum hættir til aö
ganga á milli heimilis og skóla með
sömu bækumar svo vikum skiptir,
án þess að hafa þörf fyrir þær.
Margt fleira en bækur þyngja
skólatöskuna. Það er mikilvægt aö
kenna barninu að skilja óþarfa hluti
eftir heima. Það er jafn mMvægt'Og
aö kenna baminu að bursta tennum-
ar daglega.
Hinar góðu venjur, sem geta
vemdað hrygg bamsins, lærast þeg-
ar á skólaaldri. Góðu venjumar
koma ekki af sjálfu sér, þær þarf að
læra. öðru máli gegnir um slæmar
venjur og það sem þeim fylgir er
slæmur hryggur. Það næstum segir
sig sjálft. Þýtt úr Helse RR
Verkamenn
og vörubflstjóri
óskast strax. LOFTORKA
Uppl. í síma 50877.
***£&££&*
athucid,
erum fiutt a*ö
Aðalkennari
er Þorgerður Gunnarsdóttir (Hogga)
nýútskrifa&ur danskennari frá
Rockford College í Bandaríkjunum.
5 vikna námskeið hefst miðvikudaginn 1. sept.
Innritun og upplýsingar í síma 76350 kl. 10—12 f.h. og 17—19 e.h.
Afhending skírteina aö Skúlatúni 4, fjóröu hæö, þriðjudaginn 31. ágúst kl. 17—20 e.h.
Líkamsþjálfun
Ballettskola
Eddn Seheving
SKÚLATÚNI 4 — SÍMAR 25620 og 76350
AFSLATTAR
KORT
hafa verið send út til félagsmanna
KRON.
Kortin eru 7 taisins og gilda frá
25. ágúst til 16. desember.
Hægt er að ganga i félagið i öllum
verslunum KRON og á skrifstofu
félagsins, Laugavegi 91, þar sem
kortin eru afhent.
Nýir félagsmenn fá afsláttarkort.
KAUPFELAG REYKJAVIKUR 0G NAGRENNIS