Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 32
32
DV. FIMMTUDAGUR 26. ÁGOST1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
„Góöaveizlu giöra skal”
o
I Súlnasal Hótel Sögu var mikið um
að vera mánudagskvöldið síðasta.
Voru þar saman komin 160 manns úr
ýmsum áttum. Eitt áttu þó allir sam-
eiginlegt — að vera prúðbúnir. Enda
engin furöa. Forsætisráöherra bauð
þar til kvöldverðar í tilefni af heim-
sókn Ankers Jörgensens og konu
hans Ingrid — forsætisráðherra-
hjóna frá Danmörku.
Matseðillinn var heldur ekki af
lakara taginu. Boðið var upp á kjöt-
seyði, glóðaða skelfiskrétti, heilsteiktr
an lambahrygg og eftirrétturinn var
Grand Mamier rjómaís. Margt hefur
verið á dagskrá hjá dönsku gest-
unum í þessari Islandsheimsókn
þeirra.
Vmist hefur þar verið um að ræða
viðræður við valdhafa hér á landi,
eða skemmtiferðir út á land.
Var hjónunum meðal annars boðiö
til Akureyrar, Mývatns og Húsa-
víkur. Og einnig flugu þau til Vest-
mannaeyja.
Létt hefur verið yfir þessum ágætu
gestum islenzku þjóðarinnar og án
efa eru siikar heimsóknir til þess aö
treysta vináttubönd þjóða heimsins.
-GSG.
Þeir voru broshýrir Úlafur Jó-
hannesson utanríkisráóherra og
Hjörieifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra. Enda engin furða, eftir
mikil fundahöld að undanförnu.
Hár rœðast þeir við hr. Pótur
Sigurgeirsson biskup og Hörður
Bjarnason, fyrrverandi húsa-
meistari ríkisins.
Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti íslands, ræðir við Ingrid Jörgensen.
mmrnm
Við veizluborðið má meðal annars þekkja Pétur Thorsteinsson sendi-
herra, Magnús Torfa Ólafsson, blaðfulltrúa ríkisstjórnarinnar og Gylfa
Þ. Gislason, prófessor.
DV-myndir: Þó. G.
Davið Oddsson borgarstjóri og Ragnar Amalds fjármálaráðherra voru
lóttirí lundí veizlunni.