Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 26. AGUST1982.
DV. FIMMTUDAGUR 26. ÁGUST1982.
19
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrött
Tveir þýðingarmiklir
leikir í 1. deildinni
— Fram-Víkingur á aðalleikvanginum í
Laugardal og Kef lavík-Vestmannaeyjar
íKeflavík
Tveir leikir veröa í 1. deild i kvöld — leikir
úr tíundu umferö mótsins. Eftir þá hafa öll lið-
in leikið sextán leiki. Eiga tvo leiki eftir hvert.
Fram og Víkingur leika á Laugardalsvelli
kl. 19 og má búast við tvísýnum leik þótt þarna
eigist við neðsta og efsta sætið í deildinni.
Fram þarf á stigum að halda í fallbaráttunni
hörðu og Vikingur þarf auðvitað einnig á stig-
um að halda í keppninni um íslandsmeistara-
titilinn. Sigri Víkingur í kvöld er íslandsmeist-
aratitillinn nær örugglega í höfn. Víkingur hef-
ur 20 stig eftir 15 leiki, tveimur stigum á undan
KR, sem leikið hefur 16 leiki. Fram er með 13
stig eftir 15 leiki. KA og ísaf jörður hafa 14 stig
eftir 16 leiki og Keflavík 14 stig eftir 15 leiki.
Síðan koma Valur og Breiðablik með 15 stig |
eftir 16 leiki.
Keflavík og Vestmannáeyingar leika á gras-1
veilinum í Keflavík og hefst leikurinn einnig kl. [
19. Eins og hefur komið fram eru Keflvikingar I
í fallhættu og þurfa mjög á stigum aö halda.
Vestmannaeyingar eru með 16 stig eftir 151
leiki í fjórða sæti. Möguleiki á íslandsmeist-1
aratitilinum er enn ekki úr sögunni hjá þeim. [
Greinilegt af þessu að það stefnir í tvo hörku-1
leiki i 1. deildinni í kvöld. -hsím.
Fashanutil
Southampton
Southampton fékk í gær nýjan leikmann, sem talið er
að muni koma í stað Kevin Keegan sem farinn er til
Newcastle. Nýi leikmaðurinn er Justin Fashanu,
blökkumaðurinn sem leikið hefur með Nottingham For-
est. Að vísu er Justin aðeins „lánaður” til Southampton
í mánaðartíma en eftir þann tíma er reiknað með að
Southampton kaupi hann.
Nottingham Forest keypti Justin Fashanu fyrir eina
milljón sterlingspunda fyrir rúmu ári frá Norwich.
Hann lék marga leiki í aðalliði Forest en sýndi lítið.
Skoraði aðeins fjögur mörk á síðasta leiktímabili. Hins
vegar 22 með Norwich leiktimabilið á undan. Fashanu
hefur leikið i enska landsliðinu, leikmenn 21 árs og
yngri. Hann er ættaður frá Nígeríu. Hann mun leika
sinn fyrsta leik með Sotubampton á laugardag þegar
keppnin í 1. deild hef st — í Coventry.
Enska knattspyrnusambandið dæmdi Arsenal í gær
til að greiða 500 þúsund sterlingspund fyrir Lee Chap-
mann, miðherjann sem liðið keypti frá Stoke. Deilur
urðu milli félaganna um kaupverðið. Arsenal vildi
greiða 250 þúsund pund en Stoke vildi fá meira. Ekki
var þess getiö í fréttum BBC i gær hvort kaupin mundu
ganga til baka vegna þessarar hækkunar. -hsim.
Hamborg missti
stig á heimavelli
Þrír leikir voru í 1. deildinni í Vestur-Þýzkalandi í
gærkvöldi. Urslit.
Bielefeld—Braunschweig 2—0
Hamborg—Werder Bremen 1—1
Gladbach—Niirnberg 1—2
Staða efstu liða eftir tvær fyrstu umferöimar.
Bielefeld 2 2 0 0 3-0 4
Karlsrahe 2 2 0 0 2—0 4
Dortmund 2 110 4—2 3
Nuraberg 2 110 4—33
Stuttgart 2 110 3—23
-hsím.
Stjarnan f ékk skell
Stjaraan úr Garðabæ fékk óvæntan skell i úrslita-
keppninni i 4. deild Islandsmótsins í knattspyrau í gær-
kvöldi. Þá lék Stjaraa við Þór í Þorlákshöfn, sem ekki
hafði unnið leik í úrslitakeppninni til þessa, og mátti
sættasig viö2:0tap.
Þórsliðið gat nú í fyrsta sinn í úrslitakeppninni mætt
með fuliskipað lið og var það þá jafnoki hinna og vel
það, eins og menn raunar vissu fyrirfram. Þór skoraði
bæði sín mörk í fyrri hálfleiknum og sáu þeir Erlingur
Sæmundsson og hinn markheppni Eirikur Jónsson um
að gera þau.
Þessi úrslit gera það að verkum að Ármenningum
nægir jafntefli í síðasta leiknum í A-riðlinum til að kom-
ast í úrslit í 4. deildinni og tryggja sér þar með sæti í 3.
deildinni næsta ár.
Staðan í A-riðlinum er nú þessi:
Ármann 3 2 1 0 8:3 5
Stjaraan 3 111 5:4 3
Þór Þorláksh. 4 1 0 3 3:9 2
I B-riðlinum áttu að leika i gærkvöidi Leiftur og Valur
Reyðarfirði og átti sá leikur að vera á Olafsfirði. Komu
Austfirðingarair ekki til leiks — sögðu að Olafsfjarðar-
völlurinn væri ófær. Þeim var tilkynnt að þeir yrðu að
mæta þar fyrir hádegi, hvað sem tautaði og raulaði, og
hefur leikurinn því verið settur á í kvöld.
Staðan í B-riðlinum er þessi:
Valur Reyðarf. 2 2 0 0 4:2 4
Leiftur Ólafsf. 3 2 0 1 5:3 4
Reynir Árskógss. 3 0 0 3 4:8 0
-klp-
Diego Maradona
—fyrsti leikurinn með Barcelona.
Karl Hermannsson, þjálfari
Keflvikinga
George Kirby, þjáifari Akurnesinga.
„Stefnum auðvitað
að sigri í 2. deild”
— sagði Ásgeir Elíasson
„Ég er ánægður með að hafa sigrað í
þessum leik með aðeins 10 leikmönn-
um nær allan síðari hálfleikinn.i Nú
Úrslitaleikur bikarkeppninnar á sunnudag:
Þjálfaramir vilja
ekki spá um úrslit
— en reikna báðir með tvísýnum og skemmtilegum leik
„Nei, ég vil ekki nefna neinar tölur í
sambandi við úrslitin. Vona að leikur-
inn verði skemmtilegur og góður og ég
get ekki sagt um hveraig Keflavíkur-
liðið verður skipað fyrr en eftir leikinn
við Vestmannaeyjar í kvöld,” sagði
Karl Hermannsson, þjálfari Kefl-
víkinga, á blaðamannafundi á skrif-
stofu KSÍ. Urslitaleikur bikarkeppni
KSt verður á sunnudag kl. 14 á Laugar-
dalsvelli og leika þar Akranes og
Keflavik. í fyrsta sinn sem tvö lið utan
Reykjavíkur keppa til úrslita í bikar-
keppninni frá því 1975. Þá léku þessi
sömu lið og sigraði Keflavík 1—0. Það
er eini sigur Keflvikinga í bikarkeppn-
inni. Akuraesingar hafa einnig sigrað
einu sinni, 1978. Leikurinn á sunnudag
verður hins vegar 10. úrslitaleikur
Skagamanna. Þriðji úrslitaleikur Kefl-
víkinga.
, ,Við verðum með sama lið og sigraði
Vflcing í undanúrslitum í þeim
Maradona lék með Barcelona
Diego Maradona, argentínski lands-
liðsmaðurinn, lék sinn fyrsta opinbera
leik með Barcelona í gær. Það var á
fjögurra liða móti í Barcelona. 90
þúsund áhorfendur sáu leik Barcelona
og Porto Alegro frá Brasilíu. Mikil von-
brigði. Ekkert mark skorað og Alegro
komst svo í úrslit mótsins með því að
sigra í vítaspyraukeppni.
Til úrsUta leikur brasiliska liðið við
Man. City. Man. City og Köln gerðu
jafntefU 1—1 og brezku leikmennirnir
sigraðu svo í vítaspyraukeppni. Barce-
lona og Köln leika því um þriðja sætið.
Þjóðverjinn Berad Schiister lék með
Barcelona í síðari hálfleik. Er að ná
sér eftir erfið meiðsU.
-hsim.
skemmtilega leik. Við sýndum þá að
við eigum skflið að vera í úrslitum með
því að sigra Islandsriíeistarana. Ég vil
ekki spá um úrslit en ég reikna með
skemmtilegum og tvísýnum leik og að
betra liðið sigri,” sagði George Kirby,
þjálfari Skagamanna, á blaðamanna-
fundinum.
Urlistaleikurinn á sunnudag er hinn
23.1 bikarkeppni KSI. Fyrst var keppt
1960. Magnús V. Pétursson verður
dómari og þetta verður síðasti stórleik-
urinn sem hann dæmir hér á landi.
Magnús hefur verið dómari í 32 ár, lit-
ríkur og snjall dómari. Davíð Oddsson,
borgarstjóri í Reykjavík, verður
heiðursgestur á leiknum. Mun afhenda
sigurvegurunum bikarinn að leik lokn-
um. Hljómsveitin Upplyfting iriun
leika á vellinum hálftíma fyrir leik og í
hálfleik keppir hún við hina kunnu
skemmtikrafta Sumargleðinnar,
Omar, Bessa og þá alla saman. Nánar
á morgun.. hsím.
Það voru mörg verðlaun og margir eigulegir hlutir sem afhentir voru í afmælis hófi Golfsambands Islands um fyrri helgi. Hér sést hópurinn sem hlaut verðlaun á
Islandsmótinu sem lauk um sömu belgi. DV-mynd S.
Tveir fengu gullmerki ÍSÍ
—40 ára af mælishátíð Golf sambands fslands, sem er elsta sérsamband
innan íþróttasambandsins
Golfsamband íslands hélt upp á 40
ára afmæii sitt með miklu hófi í
Átthagasal Hótel Sögu á laugardags-
kvöldið í fyrri viku. Var þar margt um
manninn og margar ræður fluttar.
Sveinn Björnsson, forseti ISI, var
meðal ræðumanna á þessu afmælishófi
elsta sérsambandsins innan vébanda
ISI og sæmdi hann tvo stjórnarmenn
guflmerki Iþróttasambandsins. Vora
það þeir Kristján Einarsson og Konráð
R. Bjamason.
Nokkrir aðilar voru sæmdir gull- og
silfurmerki GSI á þessum tímamótum.
Þeir sem þau f engu voru þessir:
Gullmerkið:
Sveinn Snorrason
KristjánEinarsson
Hermann Magnússon
Páll Asgeir Tryggvason
Silfurmerkið:
OlafurTómasson
Guðlaugur Guðjónsson
Kjartan L. Pálsson
Sigurður Héðinsson.
höfum við í Þrótti tryggt okkur sæti í 1.
defld næsta keppnistímabil og stefnum
auðvitað að því að sigra í 2. deildinni,”
sagði Ásgeir Elíasson, leikmaður og
þjálfari Þróttar, eftir að Reykjavikur-
liðið hafði sigrað Reyni, Sandgerði, 1—
0 í 2. deild á Laugardalsvellinum i gær-
kvöld. Þar með hefur Þróttur hlotið 24
stig í 15 leikjum og aðeins eitt félag
getur náð þeirri stigatölu í deildinni,
Þór, Akureyri. Þróttur þarf tvö stig úr
þremur síðustu leikjum sínum til að
tryggja sér sigur í 2. deild. Það ætti að
vera létt fyrir strákana í Þrótti.
Leikur Þróttar og Reynis í gær var
harður. Ekkert gefið eftir. Þróttur var
sterkara liðið í fyrri hálfleik, lék þá
undan norð-austan golunni. Tókst þó
ekki að skora frekar en Sandgerðing-
um.
Nær strax í byrjun síðari hálfleiks
braut Ágúst Hauksson, einn albezti
leikmaður Þróttar, af sér og var vikið
af velli af dómaranum, Friðgeiri Hall-
grímssyni. Þróttur var því með tíu
leikmenn síðustu fjörutíu mínúturnar.
En fimm mín. eftir að Ágústi var vikið
af vefli tókst miöherjanum eldfljóta,
Sverri Péturssyni, að skora fyrir
Þrótt. Það varð eina mark leiksins.
Sandgerðingar sóttu mjög lokakafla
Staðan
Staðan í 2. defld eftir sigur Þróttar í
gærkvöld: Þróttur R 15 10 4 1 23—7 24
Þór, Ak. 15 6 7 2 28-15 19
FH 15 5 6 4 17—20 16
Reynir, Sand. 15 6 3 6 20—15 15
Njarðvík 15 5 4 5 22—24 14
Einherji 15 6 2 7 21—24 14
Völsungur 15 4 5 6 17—19 13
Fylkir 15 1 10 4 12—16 12
Skaflagrímur 15 4 4 7 16-25 12
Þróttur N 15 4 3 8 7—20 11
Badminton
hjáKR
Starfsemi badmintondeildar KR
hefst af fullum krafti 1. september
næstkomandi. Innritun í tima eru hjá
Oskari Guðmundssyni, simar 14519 og
15881. Sérstakir unglingatimar verða á
laugardögum milli 13—15.
leiksins og fengu tvö góð færi, sem þeir
misnotuðu. Þróttar-vömin stóð þó
nokkuö vel fyrir sínu með þá Asgeir,
gamla landsliðskappann, og Pál Olafs-
son, landsliðsmanninn i handknatt-
leiknum, sem beztu menn.
hsim.
Hætta við mark Reynis í leiknum við Þrótt i gærkvöldi.
DV-mynd S.
Heimsmethafinn eld-
fljótur og sigraði
Italinn Pietro Mennea, heimsmet-
hafinn og ólympíumeistarinn í 200 m
hlaupi, sem tilkynnti að hann væri
hættur keppni nokkrum mánuðum.
eftir að hann sigraði á ólympíuleikun-
um í Moskvu 1980, birtist á hlaupa-
brautinni á ný í gær. Tók hann þátt í
miklu alþjóðlegu frjálsiþróttamóti í
Tirrenia á Italiu. Sigraði í 200 m
hlaupinu á 20,94 sek. Næstir komu tveir
landar hans, Giovanni Bongiorao á
20,96 og Carlo Simionato á 21,03 sek.
Eftir hlaupið sagðist Mennea hafa
áhuga á að taka þátt í ólympíuleikun-
um í Los Angeles 1984.
Af öðrum árangri á mótinu má nefna
að WUson Waigwa, Kenýa, sigraði í
1500 m hlaupi á 3:37,26 min. Bretinn
Buckner varð annar á 3:37,96 min.
Maricia Puica, Italíu, sigraði í 1500 m
kvenna á 3:57,82 min. Gabriella
Dorio, Italíu, önnur á 3:38,65 mín. Frá-
bærir timar.
Laut yfir 22 metra
Á stórmóti í Koblenz í V-Þýzkalandi í
gærkvöld varpaði Bandaríkjamaður-
inn Dave Laut 22,02 m i kúluvarpi.
Bishop Dolgiewicz, Kanada, annar
með 20,56 m. Þá Brian Oldfield, USA,
20,35 m og Dean Crouser, USA, 20,15.
Calvin Smith, USA, sigraði í 100 m á
10,23 sek. en Cari Lewis er farinn heim
til Texas eftir meiðslin sem hann hlaut
í Köln. I 3000 m hlaupi sigraði Vestur-
Lokaknallí
Kerlingarfjöllum
Það verður áreiðanlega líf og fjör í
KerlingarfjöUum nú um helgina þegar
haldið verður upp á það að sumarver-
tíðinni er að ljúka. 1 tilefni af því verð-
ur haldin lokakvöldvaka með hörku-
balli á eftir, þar sem Eyvi, Sigurður og
Einar sjá um stuðið. Skíðafæri er stór-
fínt og lyftur og skíðakennsla í fullum
gangi fram á sunnudag.
Sérstök kvöldferð verður frá Um-
ferðarmiðstöðinni á föstudag kl. 18 fyr-
ir þá sem ekki koma á eigin bíl.
Ferðaskrifstofan Urval tekur á móti
skráningu í ferðina en menn geta einn-
ig mætt beint í bilinn á Umferðarmið-
stöðinni rétt fyrir kl. 18.
Er vonazt til að margir yngri og eldri
nemendur skólans stormi í Kerlingar-
fjöll í þessa síðustu skíðaferð sumars-
ins.
Ur Kerlingarfjöllum. Fremst má i
landsliðskappann í knattspyrnu á
um áður, Hörð Óskarsson, KR.
Stóri bróðir beztur í
Coca Cola golfmótinu
A meðan Björgvin Þorsteinsson var
að berja golfboltann bezt allra og
tryggja sér sigur í „Icelandic
Masters” á Grafarholtsvellinum um
helgina, eins og við sögðum frá í DV i
gær, var bróðir hans, Viðar Þorsteins-
son, að berja golfboltann bezt allra á
Nesvellinum á Seltjaraamesi.
Þar var Coca Cola-keppnin háð um
helgina og tóku þátt í henni yfir 100
manns. Þar sigraði Viðar með miklum
yfirburðum, lék 36 holurnar á 148 högg-
um (71:77) og var hann 5 höggum betri
en borötenniskappinn góðkunni Gunn-
ar Finnbjömsson, sem lék á 153 högg-
um. Á eftir þeim komu Jóhann O.
Guðmundsson, GR, og Peter Salmon
GR, á 154 höggum og síöan Marteinn
Guönason, GS, á 157 höggum.
Ágúst Guðmundsson, fyrrverandi
knattspyrnukappi úr Fram, var yfir-
burða maður í keppninni með forgjöf.
Lék hann langt undir sinni forg jöf báða
dagana og var á nettó 128 höggum.
Guðbjartur Þormóðsson, GK, varð
annar á 134, síðan komu þeir Harry
Hillsman GK, og Viðar Þorsteinsson,
GK á 136 höggum og eftir þeim Jón
bakari Sigurðsson, NK, á 137
höggum. -klp-
Þjóðverjinn Hans-Jörg Kunze á
13:23,71 mín. Doug Padilla, USA,
annar á 13:24,23 min. Bretinn Kim
Hutchins þriðji á 13:25,08 min.
Steve Scott, USA, náði frábærum
árangri í míluhlaupi 3:49,72 min, svo
og Steve Maree, USÁ, sem hljóp á
3:49,75 min. Hörkukeppni. Thomas
Wessinghage, V-Þýzkalandi, þriðji á
3:50,19 min. Þá Pierre Deleze, Sviss,
3:50,38 min, Ray Flynn 3:50,55 min. og
Tom Byers, USÁ, 3:50,84 min. Mike
Boit, Kenýa, varð 9. á 3:53,30 min.
Sara Simeoni, Italíu, stökk 1,96 m í
hástökki kvenna og sigraði.
Collen Reinstra, USA, önnur með
1,94 m.
-hsim.
Strákarnir
töpuðu
íslenzka píltalandsliðið í knattspymunni, 18
ára og yngri, tapaði landsleiknum við fær-
eysku piltana í Klakksvik í gærkvöldi. Eitt
mark skorað í leiknum og það gerðu Færey-
ingar tíu mínútum fyrir leikslok. íslenzku
strákarair fengu færi í leiknum sem þeim
tókst ekkiaðnýta.
Að sögn Gisla Einarssonar fór leikurinn
fram við hinar verstu aðstæður i Klakksvik.
Hávaðarok og mikil rigning meðan á leikn-
um stóð. Rignt hefur i sjö daga samfleytt í
Kiakksvík. Leikurinn var slakur, mest
miðjuþóf. Liðin leika á ný í Þórshöfn á föstu-
dag. -hsím.
Sigur h já
Lokeren og
Antwerpen
Heil umferð var leikin í 1. defldinni í
belgísku knattspyraunni í gærkvöldi.
Þar voru öll „Islendingaliðin” í eldlín-
unni og gekk mis jafnlega h já þeim.
Pétur Pétursson og félagar hjá Ant-
werpen héldu áfram sigurgöngu sinni
— sigruðu að þessu sinni REC Seresien
2:0 í leik þar sem ungverski landsliðs-
maðurinn hjá Antwerpen, Fazekas,
sýndi frábæran leik.
Lokeren sigraði Winterslag á útivelli
1:0 og gerði hollenzki landsliðsmaður-
hm Rene van der Gyp, sem leikur á ís-
landi í næstu viku, markið fyrir Loker-
en á síðustu mínútu leiksins.
Sævar Jónsson átti góðan leik þegar
CS Brugge mætti Club Brugge í
„derbyleiknum” í gærkvöldi. Átti Sæv-
ar m.a. mikið skot á mark en rétt
framhjá. Club Brugge sigraði í leikn-
um 1:0.
Þá lék lið Lárusar Guðmundssonar,
Waterschei við Beveren á útivelli í
gærkvöldi. Varð jafntefli í þeim leik
0:0.
KB/-klp-
útsala
-—— o
Á sumarf atnaði
og skóm
Allt að
30%
«
afsláttur
búðin
Ármúla 38, sími 83555 og
Laugavegi 97, sími 17015.
Aðalleikvangur — Laugardal
FRAM - VÍKINGUR
i kvöld kl. 19.00
st yty-iínennrt-
ofl
fj^