Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1982, Blaðsíða 36
NÝJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM FÆST ALLS STAÐAR 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA ÞVERHOLTI 11 27022 •w FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST1982. Alþýðubanda- lag með vinnu- staðafundi Alþýöubandalagiö ætlar sér greini- lega að vera við öllu búiö. Þaö byrjaði í gær á langri lotu vinnustaöafunda í borginni. Venjulega er slíkt lítiö í gangi nema í kosningabaráttu. Alþýöubandalagsmenn segjast á þessum fundum ætla aö kynna fyrir al- menningi þær tillögur sem þeir báru fram í stjórnarliðinu um efnahagsmál ogfleira. _HH Vaxandiverð- bólga fram á mitt næsta ár — segir í spá Vinnuveit- endasambandsins Verðbólga fer vaxandi á næstu mánuðum og veröur um 65% á fyrra heimingi næsta árs, aö því er segir í spá sem Vinnuveitendasamband Islands hefur látiö gera um þróun verðlags, gengis og launa til loka næsta árs. I spánni er byggt á nýgerðum efna- hagsráöstöfunum ríkisstjórnarinnar og tekiö miö af þeim áætlunum sem liggja fyrir um samdrátt þjóöartekna. I spánni er gert ráö fyrir aö heldur hægi á verðlagsþróuninni á síðari hluta næsta árs. Frá upphafi til loka ársins 1983 er hækkun framfærsluvísitölu talin verða um 50% en meðaltalshækk- un milii áranna 1982 og 1983 er ríflega 60%. Spáin gerir ráö fyrir að gengi Bandaríkjadollars verði um 16 krónur um næstu áramót og tæpar 23 krónur í lok ársins 1983, en dollar er nú skráður áum 14,30 krónur. ÖEF Strokufanginn látinn laus Strokufanganum sem var handtekinn í fyrrakvöld á veitingahúsinu Aski, Laugavegi 28, var sleppt um fimmleyt- iö í gærdag en þá rann gæsluvarðhald hans út. Samkvæmt upplýsingum Rannsóknarlögreglu ríkisins þótti ekki ástæöa til aö halda honum lengur. Maöurinn braust inn í skartgripaversl- un Benedikts Guömundssonar aö Laugavegill. Þýfiöhefurekkifundist. Þá rann gæsluvarðhald stúlkunnar, sem grunuð var um aðild aö fíkniefna- misferli, út í gær. Fjöldi manns haföi verið yfirheyrður vegna þess máls en engir verið handteknir. Stúlkan var grunuð um aö hafa flutt inn og selt eitt kíló af kannabisefnum. -JGH. LOKI Allaballar ætla nú að rifjaí upp tengsl sín við verka- lýðinn. j TIL ARSIHÆSTARETTI — margir lögf ræðingar telja hin nýju lög brjóta í bága við st jórnarskrá — kona tekur f fyrsta sinn sæti í réttinum Þrír dómarar hafa verið ráönir til starfa hjá Hæstarétti í eitt ár, frá og meö 15. september næstkomandi. Þeir eru : Guömundur Skaftason, hri., Guömundur Jónsson borgar- dómari og Guðrún Erlendsdóttir, hrl. og lektor viö Háskóla Islands. Síðastliðinn vetur voru samþykkt lög á Alþingi sem veittu Hæstarétti heimild til timabundinnar ráöningar þriggjadómara. Þegar á frumvarpsstigi ollu þessi lög miklum úlfaþyt meðal lög- fræöinga, sem margir hverjir telja þau brjóta í bága við stjómarskrá Islands. Lögin voru sett til þess að greiða úr málum sem hlaðist hafa upp hjá Hæstarétti. Friðjón Þórðarson dóms- málaráðherra bar frumvarpið fram. Armann Snævarr hæstaréttar- dómari samdi það. -FG. Tökur eru nú hafnar á mynd Kristinar Jóhannesdóttur, Á hjara veraldar. Jónsson, Heiga Jónsdóttir og Þóra Friðriksdóttir. Á stóru myndinni sóst Kristín er höfundur handrits og leikstýrir en henni til aðstoðar er Sigurður hvar einnipersónu myndarinnar er bjargað eftir að hafa dottið isjóinn. Pálsson. Kvikmyndatökumaður er Karl Óskarsson og aðalleikarar Arnar DV-myndEinar Ólason. Arutún Akopian: Fremsti töframaður Sovét- ríkjanna sýnir hér á landi Arutún Akaopian, fremsti töfra- maður Sovétríkjanna og þó víðar væri leitað, er staddur hér á landi. Hann er hér í boði sýningarinnar Heimiliö og fjölskyldan og mun leika listir sínar á sýningunni kl. 5 og 9næstudaga. <----------m. „Þetta er frábært,” mátti heyra á sýningunni í gær. Arutún Ak- opian er þekktastur fyrir að berta sjónhverfingum rétt fyrir framan nefíð á fólki. Er hann hafði leikið með spilin á þennan hátt tók hann þau og stokkaði eins og ekkert væriauðveldara. D V-mynd-G VA. Akopian er byggingarverkfræð- ingur að mennt. Á yngri árum dansaði hann ballett en 17 ára gamall heillaðist hann svo af töfra- brögðum að hann ákvað að leggja þau fyrir sig. Hann hefur unnið f jölda viðurkenninga jafnt í heima- landi sínusem erlendis. Akopian notar einungis hendumar við töfrabrögð sín og lítil sem engin hjálpartæki. A sýningu í gær fór Akopian á kostum og var mjög vel tekið. I upphafi átti sonur Amtún að koma hingað en hann varð fyrir slysi og komst ekki. Fyrir milligöngu sovéska sendiráðsins tókst að fá föður hans sem, að syninum ólöst- uðum, er mun frægari. Margar vikur tekur að fá miöa á sýningar hans í Moskvu. -ás.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.