Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982.
11
„Sjúkrahúsin hafa verið
svelt undanfarin ár”
— segir Gunnar Sigurðsson, nýráðinn yf irlæknir lyf lækningadeildar
Borgarspítalans
Gunnar Sigurösson hefur veriö
ráöinn yfirlæknir lyflækningadeildar
Borgarspítalans frá 1. október aö
telja. Tekur hann við af Þórði
Harðarsyni sem skipaður hefur veriö
próf essor viö Háskóla Islands.
Gunnar Sigurösson er fæddur í
Hafnarfiröi áriö 1942. Aö loknu
stúdentsprófi frá M.R. 1962 stundaði
hann nám viö læknadeild Háskóla
Islands og lauk kandídatsprófi þar
áriö 1968. Hann starfaöi sem
aöstoðarlæknir um tveggja ára skeið
en hélt síðan til Lundúna þar sem
hann stundaöi framhaldsnám 1970—
1975. Lauk Gunnar doktorsprófi frá
Lundúnaháskóla áriö 1975. Næstu tvö
ár stundaði Gunnar rannsóknir viö
Califomiuháskóla í San Fransisco.
Hann var viðurkenndur sérfræö-
ingur í innkirtla- og efnaskiptasjúk-
dómum 1976. Siöan 1977 hefur
Gunnar starfaö í Reykjavík, fyrst
viö Rannsóknarstöð Hjartaverndar
en síðan 1977 hefur hann starfað við
lyflækningadeild Borgar- og Land-
spítalans. Gunnar er jafnframt
dósent við læknadeild Háskóla
Islands. Hann er kvæntur Sigríöi
Einarsdóttur og eiga þau þrjú böm.
Blaöamaður DV innti Gunnar
Sigurösson eftir því hvemig honum
litist á nýja starfiö.
„Mér líst ágætlega á þetta, hér er
gott starfsfólk og góöur andi og ég
vænti alls góös af því. Eg hef starfað
hér aö hluta og þekki því staðinn.”
— Ihverjuerstarf þitt fólgiö?
„Þaö má segja aö þaö felist í því aö
annast samskipti viö aörar deildir
spítalans og aö starfið gangi snurðu-
laust fyrir sig. Þetta er sem sagt
stjómunarstarf. Á deildinni eru 30
rúm og jafnframt höfum viö á okkar
könnu Hvítabandið aö hluta og
Droplaugarstaði. Nú, hér starfa f jöl-
margir læknar og aöstoöarlæknar.
Hlutverk yfirlæknis er ekki að vera
með nefið ofan í hvers manns koppi í
lækningum heldur eins og ég segi aö
sjá um aö alit gangi snuröulaust
fyrirsig.”
— Er nægjanlegt fjármagn veitt
til spítalans?
,JIei, þaö finnst okkur ekki. Viö
veröum náttúrlega aö sníöa okkur
stakk eftir vexti, en okkur finnst að
við höfum verið sveltir á undan-
fömum ámm. Það er margt annaö
en sjúkrarúm sem við þurfum aö
greiöa fyrir. Það er kannski eðlilegt
aö þeir sem veita fjármagn til okkar
skilji ekki þá liði.
Þaö mætti verja meira fjármagni
Gunnar Sigurðsson yfirlsknlr.
til spítalans. Það er frekar þörf fyrir
fleiri sjúkrarúm en hitt. En til
stendur að opna nýja álmu aö hluta á
næsta ári, þannig aö það bætir aðeins
úr skák. Að vísu er sá hluti ætlaður
til öldrunarlækninga en þar opnast
aö minnsta kosti rúm.”
-ás.
Rannveig Guömundsdóttir, formaður bæjarstjómar, afhendir Asgeiri Jóhannes-
syni, stjóraarformanni Sunnuhlíðar, gjöfina frá Kópavogsbæ.
Keflavík:
Norðurland eystra:
Forval hjá
Framsókn
Kjördæmisþipg framsóknarmanna í
Noröurlandskjördæmi eystra fór fram
um helgina á Húsavík. Þar var haft
forval vegna framboöslista í væntan-
legum alþingiskosningum. Þeir sem
valdir voru eru: Aöalbjörn Gunnlaugs-
son, Böövar Jónsson, Egill Olgeirsson,
Guðmundur Bjarnason, Hákon
Hákonarson, Hilmar Daníelsson,
Ingvar Gíslason, María Jóhannes-
dóttir, Níels Ámi Lund, Stefán
Valgeirsson, Valgeröur Sverrisdóttir
og Þóra Hjaltadóttir.
Innan sex vikna skal kalla saman
auka-kjördæmisþing þar sem valdir
verða 6 úr þessum hópi og síðan verður
kosiö í þriöja skipti og sexmenn-
ingunum raöaö í sæti. Sú útkoma
verður bindandi.
-GS/Akureyri.
Skóverksmiðja SÍS
á Akureyri:
Stefnir í
stóraukná
framleiðslu
Skóverksmiöja SÍS á Akureyri fram-
leiddi 50 þúsund pör af skóm á fyrstu
níu mánuðum þessa árs. Eru þaö jafn-
margir skór og framleiddir voru þar
allt árið í fyrra. Stefnt er aö því aö
framleiöslan í ár nái 63 þúsund pörum.
Sala skæöa frá verksmiðjunni hefur þó
ekki oröiö eins mikil og menn vonuðust
eftir.
Allir skór verksmiðjunnar á Akur-
i eyri eru nú framleiddir undir vöru-
merkinu ACT. Þeir eru hannaöir af
Krístni Bergssyni og Austurríkis-
manninum Lehman.
-SKJ.
Tómstundaheimilið
Ársel:
Enn laus
pláss fyrir
skólaböm
Enn eru laus pláss fyrir börn í
tómstundaheimilinu Árseli, aö sögn
Valgeirs Guöjónssonar forstööu-
manns. Tómstundaheimilið er ætlaö
átta til tólf ára börnum og geta þau
dvalið í Árseli þann hluta dagsins sem
þau eru ekki í skólanum. Tekiö veröur
við fimmtán bömum fyrir hádegi og
fimmtán eftir hádegi.
-SKJ.
Kópavogsbær veitti
viðbótarframlag
til Sunnuhlíðar
— 1,1 milljón afhent í tilefni árs aldraðra
Bæjaryfirvöld í Kópavogi afhentu
nýlega 1,1 milljón króna til stuðnings
og framkvæmda viö Sunnuhlíð,
hjúkrunarheimili aldraöra í Kópavogi.
Forseti bæjarstjómar afhenti gjöfina
og sagöi viö þaö tækifæri aö þetta
viðbótarframlag heföi verið samþykkt
í tilefni af ári aldraöra.
Sunnuhlíö var tekin í notkun sl. vor,
og hefur nú tekiö á móti 80 sjúklingum,
en alls er rúm fyrir 38 vistmenn í einu.
Margt er enn ógert í Sunnuhlíö og
verður áfram tekið við frjálsum fram-
lögum til frekari framkvæmda, tækja-
kaupa og uppbyggingar.
-SKJ.
Skuldir Sporsins enn
óuppgerðar
— ógemingur að láta sauma-
stofuna bera sig, segir fyrr-
verandi forstöðumaður Sporsins
Ekki hefur enn verið gengiö endan-
lega frá eignum og skuldum sauma-
stofunnar Sporsins hf. í Keflavík.
Tuttugu konur úr Verkakvennafélagi
Keflavíkur og Njarðvíkur stofnuöu
fyrirtækiö fyrir þrem árum. Að sögn
Guðrúnar Olafsdóttur, sem veitti
fyrirtækinu forstöðu, var þaö sett á
laggirnar vegna þess að lítið er um
atvinnu fyrir konur í Keflavík, ef
fiskvinnslan er undanskilin. Kefla-
víkurbær veitti bæjarábyrgö fyrir
láni til saumastofunnar og aö sögn
Guðrúnar eru vélar og aðrar eignir
félagsins nú í höndum bæjarins. Allri
vinnu í fyrirtækinu var hætt um
síöustu áramót.
Guörún sagði aö rekstur Sporsins
heföi gengiö erfiölega eins og rekstur
annarra iðnfyrirtækja á Islandi.
Ogjörningur heföi verið aö láta fyrir-
tækið bera sig því engar fyrir-
greiöslur fengust. Konumar sem
unnu í fyrirtækinu áttu allar hlut í
því.
Guðrún taldi að Keflvíkingar
þyrftu ekki aö óttast auknar álögur
þó aö Sporið hf. heföi neyðst til að
leggja niöur starfsemi sína. Skuldir
fyrirtækisins heföu verið litlar og
ættu því ekki aö veröa bæjarfélaginu
þungur baggi.
-SKJ.