Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. 13 Sums staðar hefur gefist vel að einkaaðilar sjái um snjómokstur. Málsvarar einkarekstrar víöa um heim hafa á seinni árum vakið athygli á félagslegu gildi kaupsýsl- unnar. 1 þessu hugtaki felst meöal annars framlag einkarekstrar til opinberrar þjónustu. Meö einkarekstri opinberrar þjón- ustu vinnst tvennt að þeirra dómi. Annars vegar minnkar eyösla ríkis- ins og hins vegar koma kostir einka- rekstrar ótvírætt í ljós og yfirburðir hans yfir miöstýröan rekstur, sem ekki lýtur aga samkeppninnar. Spurningin sem snýr aö þeim sem standa straum af kostnaöi viö rekst- ur ríkisins hlýtur aö vera þessi: Er hægt aö fá sömu þjónustu og nú er veitt fyrir lægra verö, þ.e. lægri skatta? Hér er umfang opinberrar þjónustu og útþensla ríkisins ekki til umræöu heldur aöeins leiðir til aö minnka kostnaðinn. Rekstur opinberrar þjónustu í hagnaðarskyni Einkarekstur opinberrar þjónustu I Bandaríkjunum hefur „The Die- bold Institute for Public Policy Studies” safnaö dæmum um hver árangurinn hefur oröiö, þar sem einkaaöilar hafa tekið að sér rekstur opinberrar þjónustu í hagnaöar- skyni. Hvarvetna hefur kostnaöurinn viö þjónustuna minnkað og fyrirtækin hafa jafnframt skilað hagnaöi. Þau sviö sem einkareksturinn hefur fariö inn á eru fjölmörg, svo sem rekstur slökkviliðs, sjúkrabif- reiöa, sjúkrahúsa og bamaheimila; viðhald samgöngumannvirkja; skjalavinnsla; sorphreinsun og snjó- mokstur. Hér verður aðeins minnst á nokkur þeirra dæma, sem Diebold stofnunin safnaði, en þau tala sínu máli. Einkafyrirtæki, sem sér um rekst- ur slökkviliðs fyrir 95 þúsund íbúa í Scottsdale í Arizona, sér íbúum borgarinnar fyrir brunavemd fyrir um helming kostnaöar á ibúa miðað viö slökkvilið í næriiggjandi borgum. Rochester í New York gerði verit- takasamning um öll bílageymsluhús, sem áöur voru rekin af borginni og sparaði með því 276 þúsund dollara á ári. Hópur kaupsýsluleiötoga í Alleg- hone hefur náö sparnaöi sem metinn Kjartau Stefánsson er á 1,25 milljónir dollara með þvi aö miðla hinu opinbera af þekkingu sinni í meöferö og vörslu sk jala. Hver er munurinn? Hawthorne í Californiu fær verk- taka til þess aö annast ýmsa þætti i heilsugæslu og sparar meö því 35 þúsund dollara á ári. Orange í Califomiu er með verk- takasamning viö Computer Science Corporation um rekstur tölvuaöstööu sinnar. Markmiöið er aö spara 11 milljónir dollara á sjö ára samnings- tímabili. Butte í Montana er meö verktaka- samning um sorphreinsun og rekstur sjúkrahúss. Eftir eins árs rekstur er búist við aö árlegt tap sjúkrahússins minnki úr um þaö bO 800 þúsund dollurum í 200 þúsund dollara. Sorphreinsun í New York borg kostar 209 dollara á fjölskyldu á ári. Rétt handan borgarmarkanna í Bellerosa, þar sem eru sams konar hús, er ko'stnaðurinn aðeins 72 dollar- ar. Hver er munurinn? Þegar einka- fyrirtæki veitir þjónustu í hagnaðar- skyni kostar hún 72 dollara en þegar hún er unnin af f jölmennu liði opin- „Hvarvetna hefur kostnaðurinn við þjón- w ustuna minnkað og fyrirtækin hafa jafn- framt skilað hagnaði.” berra starfsmanna án hagnaöar kostar hún 209 dollara. Hlutverk hagnaðar I þessu samspili ríkis og einka- rekstrar er hagnaöarvonin hreyfi- afliö, aðhaldið kemur frá samkeppn- inni og árangurinn veröur annaö- hvort lægri skattar og óbreytt þjón- usta eöa óbreyttir skattar og meiri og betri þjónusta. Yfirleitt hefur þessi samvinna gengiö vel en fyrirtækin hafa þó rekiö sig á eitt vandamál. Nægilegur skilningur á hlutverki hagnaöar er ekki fyrir hendi til þess að fyrirtæki og einstaklingar fái aö halda því sem þeir hafa aflaö viö aö endurbæta þjónustuna. Þegar séö veröur aö hægt er að ná hagnaði er hættan sú aö almenningsálitið muni krefjast þess aö hann veröi tekinn, jafnvel þótt þjónustan kosti minna en áöur. Ef þetta gerist, eyðileggst hvatinn til þess aö halda áfram endurbótum á þjónustunni. Almenningssamþykki viö hagnaöi á ýmsum sviöum er skil- yröi fyrir því aö raunveruleg geta einkaframtaksins veröi nýtt. Skattgreiðendur borga Hér aö framan hafa verið nefnd raunveruleg dæmi, sem sýna að unnt er aö ná fram sparnaöi í opinberum rekstri meö því aö innleiða þar markaðsaðhald. Þessi dæmi eru ÖU frá Bandaríkjunum, en ekkert mælir á móti því aö svipað geti gerst hér á landi, ef vilji og skilningur ráöa- manna er fyrir hendi. Nú þegar hefur veriö samið viö einkaaðUa um sorphreinsun í nokkrum sveitarfé- lögum landsins. Hugmyndin um einkarekstur opinberrar þjónustu er því hvorki ný né framandi. Þetta fyrirkomulag ætti aö reyna á fleiri sviöum í rekstri ríkis og sveitarfé- laga. Reyndar ætti spamaöur í opin- berum rekstri að vera krafa skatt- greiöenda, því þaö eru þeir sem borga reikninginn, þó þeir fái hann aldrei í hendurnar öðruvísi en í formi álagningarseöils. Kjartan Stefánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.