Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Síða 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Príscilla Presley
í fyrsta sinn
í kvikmynd
- verð að lifa af kvikmyndaleik, segir hún
FTiscilla Presley, fyrrum eigin-
kona Elvis heitins Presley, er þessa
dagana aö leika í sinni fyrstu kvik-
mynd. Kvikmyndin heitir Come-
back.
Ekki viröist allt ganga eins og í
sögu því að orðrómur hefur borist
um að reynsluleysi hennar hafi vald-
ið töluverðum töfum við kvikmynda-
tökuna. Reyndari leikarar eins og
Michael Landon (Húsið á sléttunni,
Bonanza) létu þetta fara svo i taug-
arnar á sér að um tima ætlaði Prisc-
illa að hætta. En kærasti hennar,
Michael Edwards, taldi hana á að
halda áfram.
„Ég er mjög heppin að hafa hann
mér við hlið,” segir Priscilla. „Hann
er eini maðurinn sem ég hef hitt síð-
an við Elvis vorum saman, sem ég
get í senn treyst og treyst á. Það
gengur allt mikið betur ef maður get-
ur borið vandamál sín undir þann
sem maður elskar. ”
Priscilla segir aö hún verði að
treysta á laun sín fyrir kvikmynda-
leik til að framfleyta sér. Dóttir
hennar og Elvis Presley erfði allar
milljónirnar og framfærslugreiðslur
vegna skilnaöar þeirra verða stöðv-
aðaríár.
Hún hefur hafnað tilboöum um að
skrífa bók um hjónaband sitt og
rokkstjörnunnar. ,,Ég mundi aldrei
segja neinum öðrum frá ævintýra-
stundum mínum með honum,” segir
hún, „við skildum ekki sem óvinir.
Þetta bara gekk ekki vegna þess að
hann verndaði mig of mikið.”
H
„Hann er eini maðurinn sem ég hef
getað treyst síðan ég skildi við.
Presley,” segir Priscilla Presley
um kærastann, Michael Edwards.
Góðgerðartónleikar
Karls Bretaprins
— hámark kvöldsins er prinsinn fór
j
' V |
úrjakkanum
Pete Townshend og George Martin
tóku að sér í sumar að halda rokktón-
leika að beiðni Karls Bretaprins.
Þetta voru að sjálfsögðu góögeröar-
tónleikar.
Tónleikarnir hófust að sjálfsögöu
með þvi aö prinsinn og allir hinir
pönkaramir risu úr sætum og hlýddu
á þjóðsönginn. Því næst hófu Madn-
ess leik, klæddir afkáralegum bún-
ingum og léku m.a. God save the
queen á kazoo-hljóöfæri.
Prinsinn fór upp á svið á tónleikun-
um, ekki til að taka lagið heldur til að
veita hljómsveitinni Unity verðlaun
fyrir sigur í hljómsveitasamkeppni.
Unity var raunar hljómsveit kvölds-
ins að áliti gagnrýnenda. Hápunktur
kvöldsins var er Karl prins stóð upp
og klæddi sig úr jakkanum.
Á tónleikunum komu fram auk
Madness og Unity Joan Armatrad-
ing, Jethro Tull, Robert Plant, Phil
Collins og fleiri. Og aö lokum tróð
sérstök sveit upp undir stjórn Peter
Townshend, foringja The Who. Fyrir
utan Townshend sjálfan voru í sveit-
inni Phil Collins á trommur, Gary
Brooker á píanó, Mick Kam í Japan
á bassa, Midge Ure, gítarleikari
Ultravox, og Dave Formula, hljóm-
borðsleikari Magazine.
Kari Bretaprins heiöraði sjö rastafarí-stráka úr hljómsveitinni Unity með nærveru sinni á tónieikunum. Til
vinstri: Pete Townshend sem skipulagði tónleikana ásamt eiginkonu sinni, Karen.
Eiginkona Larry
Hagman hannar
sundlaugar og potta
Maj Hagman, eiginkona Larry
Hagman, leikarans góðkunna úr
Dallas, nýtur góðs af vinsældum
eiginmanns síns í vinnu sinni. Hún
teiknar sundlaugar og heita potta
með góðum árangri og ekki spillir
það fyrir að f jölmiðlar eru svo sólgn-
ir í tíðindi af „vonda manninum í
Dallas” að hún eyðir tæpast miklu í
auglýsingar.
Þetta byrjaði allt er hún teiknaði
og sá um byggingu á laug í garðinum
þeirra. Vinur þeirra sem átti viö
veikindi í baki að stríða var svo hrif-
inn af lauginni að hann bað hana um
að hanna eina slíka fyrir sig. Og
þetta spurðist út og að lokum hafði
Maj svo mikið að gera við að hanna
laugar og heita potta aö hún ákvað
að gera þetta að bisness.
Að sögn eiginmanns hennar, Larry
Hagman, er Maj svo fær í sínu fagi
að hún getur tekið röntgenmyndir og
hannað eftir þeim laug eða heitan
pott meö það í huga hvemig sé best
fyrir einstakling að hafa laugina og
þá einkum hvemig eigi aö staðsetja
innstreymi heits vatns.
„Hún er ein aöalmanneskjan í
þessu fagi héma í Kalifomíu — ekki
hvað varðar magn heldur gæði. Hún
er alltaf í símanum að tala við bygg-
ingarmenn um byggingu lauga og
potta. Hún kemur til með að hanna
35—40 potta á árinu. ”