Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER1982.
„Reiknum með að allir
sætti sig við það”
um framhald viö undirbúning frum-
varpsins eftir fund með aöilum
vinnumarkaöarins í fyrradag. Þar
var staöfestur mikill ágreiningur
milli vinnuveitenda og launþega um
nýjan vísitölugrundvöll.
Tillögudrög vísitölunefndar eru,
eins og áöur hefur veriö rakiö hér í
blaðinu, um aö móta lifskjaravísitölu
í staö framfærsluvísitölu. Nýja
visitalan, nýi grunnurinn, byggist í
fyrsta lagi á nýlegri neyslukönnun
Hagstofunnar, og í öðru lagi á
breytilegri opinberri þjónustu, út-
gjöldum tii vegamála og álögöum
tek jusköttum á einstaklinga.
Þá snúa hugmyndimar aö því að
til viðbótar viö búvörufrádrátt og
frádrátt vegna áfengis og tóbaks,
komi orkufrádráttur. A hann aö vega
svipaö og tapast í frádrætti vegna
minnkandi vægis búvörunnar í
neyslu.
Ekki eru ráöagerðir uppi um að
áhrifum viöskiptakjara á vísitölu
yrði breytt. Hins vegar er þaö
mikilvæg tillaga aö veröbótatímabil
verði lengt úr þrem mánuðum í fjóra
eða jafnvel sex. En búvöruverö og
fiskverð veröi ákveöiö í takt.
Miklir útreikningar hafa veriö
gerðir um nýjan vísitölugrunn. Tals-
menn launþega segjast vera mjög
uggandi um aö niöurstaöan veröi
skertur kaupmáttur launa um allt aö
nokkra hundraðshluta. -HERB.
Enginn meiríhluti um
ff
ff
vísitölufrumvarpið
— „menn hljóta að sameinast um orlofsf rumvarpið”
Talsmaður
væntanlegs
vísitölu-
frumvarps:
„Það hefur ekki veriö gert ráö
fyrir því, að unnt veröi aö ná sam-
komulagi allra um vísitölufrum-
varpiö. En viö höfum reiknað meö
því, aö allir sættu sig viö þaö, létu
þaö yfir sig ganga,” sagöi einn tals-
manna frumvarpsins í samtali viö
DV ígær.
Þessi orö féllu, þegar DV spuröi
Ásmundur
Stefánsson,
forseti ASÍ:
„Þaö er enginn meirihluti fyrir
vísitölufrumvarpinu á þingi,” sagöi
Ásmundur Stefánsson forseti AS! í
samtali við DV í gær. ,,Ég skil alla
vega ekki að stjómarandstaðan sam-
þykki þaö frekar en annað af
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.”
Vísitölunefndin, Þóröur Friöjóns-
son, Þröstur Olafsson og Halldór Ás-
grímsson, hélt fund í fyrradag meö
aöilum vinnumarkaöarins. Tillögur
nefndarinnar eru ekki fullmótaöar.
,,Ég varð ekki miklu nær um þær á
þessum fundi, þetta er allt mjög
óljóst enn,” sagöi Ásmundur
Stefánsson. Tillögunum, eins og þær
liggja nú fýrir í mótun, hefur veriö
lýst hér í DV og á fundinum í fyrra-
dag var staöfestur mikill á-
greiningur miili vinnuveitenda og
launþega.
Vinnuveitendur vilja ganga
iengra en ýtrustu tillögur nefnd-
arinnar ná um takmörkun
vísitöluverðbóta á laun. Launþegar
munu í engu kvika frá þeim bótarétti
sem núverandi framfærsluvísitala
tryggir I veröbótum á laun. Þeir vísa
og til erindisbréfs vísitölunefndar,
þar sem kveðið sé á um aö nýja lífs-
kjaravísitalan eigi að tryggja laun-
þegum sambærilegan kaupmátt í
kaupgjaldsvísitölu og verðbótum og
f ramfærsluvísitalan gerir nú.
En munu launþegasamtökin láta
visitölubreytingar yfir sig ganga,
þrátt fyrir andstööuna, eins og DV
hefur á öörum staö eftir talsmanni
vísitölumálsins?
„Þetta eru aö vísu nýjar fréttir
fyrir mig,” sagði Ásmundur
Stefánsson, ,,en ég held aö þetta mat
komi aldrei til, eins og staöan er á
þingi.”
Ásmundur var þá spuröur, hvort
samtökin myndu láta sem ekkert
væri ef bráðabirgöalögin gengju í
gildi endanlega 1. desember meö
kjaraskerðingunni, án þess aö hljóta
meöferö á þingi með fylgi-
frumvörpum.
„Þaö er aö minu mati lítil hætta á
að sú staöa komi upp. Ég tel sama og
útilokað aö þau verði látin ganga yfir
án afgreiöslu á Alþingi fyrir 1.
desember meö orlofslengingunni og
láglaunabótunum. Annaö væri
raunar stór hnekkir fyrir þing-
ræðið.”
Ásmundur minnti á að samningar
við opinbera starfsmenn um 10.17%
orlof í staö 8.33% tækju gildi 1.
desember. „Þaö er jafnréttisleg
skylda aö ganga frá almennu orlofs-
lengingunni fyrir 1. desember,”
sagöi hann, „raunar er oriofsmáliö
alveg sérstakt og þar sem opinberir
starfsmenn hafa fengið lengt orlof er
oriofsmáliö ekki í neinum beinum
tengslum viö almennar kjara-
ráöstafanir. Þaö er hreint jafnréttis-
mál fyrir aöra en opinbera starfs-
menn.”
Forseti ASI kvaöst ekki trúa öðru
en þingmenn yröu sammála um
þetta viðhorf til orlofsmálanna.
Þess má geta, að Geir Hallgríms-
son, formaöur Sjálfstæöisflokksins,
lýsti andstöðu viö orlofslengingu nú,
viö ríkjandi aöstæöur, á Alþingi í
fyrrakvöld. -HERB.
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins:
„Þolum ekki verðbóta-
skerðinguna eina”
„Nei,” var þrumandi svar
Guömundar J. Guðmundssonar al-
þingismanns, formanns Verka-
mannasambandsins, þegar DV
spuröi hann í gær: Munt þú og þínir
menn sætta þig við að bráöa-
birgðalögin gangi að fullu í gildi 1.
desember og þar með veröbóta-
skeröingin, en ekkert £uinaö? „Viö
munum ekki þola verðbóta-
skerðinguna eina,” sagði
Guðmundur.
Hvað ætliö þið þá að taka til
bragös? „Þaö er eitt og annaö
hægt,” var svarið.
Guömundur var á fundi aðila
vinnumarkaðarins . með vísi-
tölunefndinni í fyrradag. Um stööu
vísitölumálsins sagöi Guömundur:
„Þaö er allra veöra von. ”
I samtalinu viö DV var þing-
maðurinn afar varkár í svörum, eins
og sjá má, og tók sér lengri tíma til
þess aö íhuga svörin en til þess aö
svara.
-HERB.
Kennarar mótmæla
fjársvelti Náms-
gagnastofnunar
Kennarafélag Reykjavíkur hefur
nýlega sent frá sér mótmæli vegna
þess fjársveltis sem Námsgagnastofn-
un hefur búið viö undanfarin ár. Aö
mótmælunum standa einnig Kennara-
félög Kópavogs, Reykjaness,
Seltjamarness og Kjósarsýslu.
Félögin greina frá því aö miklar vonir
heföu í upphafi veriö bundnar viö
Námsgagnastofnun sem tók við hlut-
verki Rikisútgáfu námsbóka og
Fræöslumyndasafns ríkisins fyrir
nokkrum árum. Stofnunin hefur hins
vegar lengi verið í fjársvelti sem
veldur því að útgáfa nýs efnis dregst
og nauösynleg námsgögn berast ekki á
réttum tíma. Félögin skora því á fjár-
veitinganefnd Alþingis og fjármála-
ráðherra aö endurskoöa fjárveitingu
til Námsgagnastofnunar og hækka
hana verulega.
-PÁ.
Þema Amnesty-samtakanna:
„Samviskufangar í sveitum”
„samvisKurangar i sveitum" Dændur, landbúnaöarverkamenn og
veröur þema samtakanna Amnesty. aðrir minnihlutahópar, sem vita oft
Intemational í samviskufangavikunni sáralítiö um rétt sinn og hafa sjaldn-
25.-31. október. Samtökin vilja vekja ast aðgang aö fjölmiölum. Stjórn
athygli manna á sveitafólki víða um Amnestysamtakanna hefur sett upp
lönd' sem handtekið er, pyndaö og lif- sýningu í anddyri Háskólabíós um
látið saklaust. I þessum hópi eru þettaefni. -PÁ.
Það er ekki algeng sjón að sjá hundi ekið um á
hjóibörum. Dömurnar Dóra og Anna urðu á vegi Ijós-
myndara D V með hund, sem þær fundu skammt frá
dýraspítalanum í Víðidal og töldu hann vera fótbrotinn.
Fengu þær iánaðar „sjúkrabörur" hjá hestamönnum og
óku hundinum til síns heima. Hundurinn Bósi gengur
með og fylgist af áhuga með sjúkrafiutningi féiaga síns.
DV-myndS.