Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Page 4
4 DV. MIÐVIKUDAGUR27. OKTOBER1982. Tónleikar í Hamrahlíðarskólanum 24. október. Flytjendur: Páll Jóhannesson tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari. Á söngskrá: verk eftir: Caccini, Pergolesi, Gluck, Sigfús Einarsson, Inga T. Lárusson, Donizetti, Cilóa, Sigvalda Kaldalóns, Eyþór Stefánsson og Verdi. Að undanfömu hafa Páll Jó- hannesson tenórsöngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari farið vítt um landið og haldið tónleika. Nú var röðinkominaðReykjavík.Fyr- ir ári hélt PáU utan til frekara náms og voru þessir tónleikar hinir fyrstu eftir aö PáU lagði fyrir alvöru á grýtta braut söngvaratilverunnar. Efnisskráin var spunnin, eins og svo oft, úr ítölskum óperaaríum og íslenskum sönglögum. Þótt merki- legt megi viröast þurfa þessir and- stæðu pólar alls ekki að eiga Ula sam- an á söngskrá. Eða öllu heldur — ef vel er með farið sóma íslensk söng- lög sér ágætlega við hliðina á ítölsk- um frægðararíum. Og svo fór í þetta sinn. Falleg rödd, frábær undir- leikari Tvennt stuðlaði einkum að því að svo vel fór: í fyrsta lagi að PáU hefur einkar þekkUega og faUega söngrödd og í öðru lagi að hann hafði meö sér . í Páii Jóhannesson: Efni i stórtenór. EFNISTENÓR Tónlist Eyjólfur Melsted einstakan meðleikara til stuðnings. PáU kunni að nota sér frábæran undirleik Jónasar út í æsar. Satt best að segja var ég stundum uppteknari af því að dást að makalausum undir- leiknum og því hvemig Jónas laðaði með leik sínum fram sérstaka sam- vinnu þeirra tveggja en því að hlusta eftir hvort söngvarinn gerði sig sek- an um hinar smæstu y firs jónir í með- ferð verkefna sinna. Tónleikar þessir báru það með sér að PáU er efnistenór í miklum og ör- um þroska. Ekki minnist ég að hafa heyrt tU hans í einsöng síðan á ljóða- tónleikum nokkru áöur en hann hélt utan til framhaldsnáms. Síðan hefur Páll stigið risaskref á þroskabraut. Haldi svo áfram sem veriö hefur eig- um við von í stórtenór þar sem Páll er. EM Ferskur, framsækinn og frumlegur jass Charlie Haden Liberation Music Orchestra f Háskólabíói 24. október á vegum Jass- vakningar. Friðarhreyfing sú sem á síðustu misserum hefur skotið stríðsagentum skelk í bringu á sér marga fylgjendur í listaheiminum, sem annars staðar. Það sagði reyndar við mig einn glögg- ur náungi, sem síður en svo aðhyUist afvopnunarstefnu, sannkallaður grýlu- málari, að söfnurum útrýmingar- vopna stafaði ekki svo ýkja mikil hætta af marsérandi boröa- og spjaldaber- um. Það væri ekki fyrr en fjandans listamönnum tækist að ná tökum á lýönum að illt blóö hlypi í aUt saman. Nefndi hann réttilega hveraig síðhærð- um trúbadorum hefði tekist aö klúðra stríösgæfu Bandaríkjamanna í Víet- nam. Endurtekning Einn þeirra sem lagði andófinu gegn Víetnamstríðinu lið var Charlie nokkur Haden, jass-bassaleikari sem löngum hefur notið mikillar virðingar inn- vígðra í jassinum en síður en svo öðlast þá frægð sem nægði tU að gera hann að poppsöluvarningi. Hann hóaði á sínum tíma saman hópi úrvalsmanna og lék í nafni friðar undir heitinu Charlie Had- en Láberation Music Orchestra. Það er næsta ótrúlegt aö honum skuli takast aö hóa sama hópi saman nú um þrett- án árum síöar tU tónleikahalds í þágu friðar á ný. N.N. Ekki var áheyrendum kynnt neitt nafn á ópusi þeim sem CharUe Haden og „liberatorar” hans fluttu í Háskóla- bíói. Gerði það reyndar Utið til því músík stendur mætavel fyrir sínu þó hún heiti ekki neitt. Uppistaðan var tvö stef ættuð úr Rómönsku Ameríku, að mér heyrðist,fyrra stefið var bæna- vers, eða sálmur, en hið síðara hógvær gleðisöngur. Stefin birtust síðan í um- myndunum á mUU þess sem einstökum Uðsmönnum var leyft að leika frjálst. Annars var músíkin töluvert bundin, kirfUega skrifuð, jafnvel í smáatrið- um, og því impróviseringar mun bundnari en gengur og gerist í jassi yfirleitt. Á við Geysisgos Það var mikU upplifun að hlýða á meistara Haden (sumir bera nafnið fram hæden) og Uðsmenn hans. Þar eru innan um stórkostlegir músíkant- ar. Má þar nefna píanistann, norrænn- ar ættar, Cörlu Bley að nafni. Hún mun Uka vera útsetjari hljómsveitarinnar og sem sUk er hún löngu þekkt fyrir vönduð vinnubrögð, auk þess sem hún er frábær píanisti. Paul Motian trommuleikari hélt huga manns gjör- samlega föngnum. Makalaus frum- kraftur hans er á við Geysisgos. Frumflutningur Ýmsar smáveUur mátti finna í leik hljómsveitarinnar. Blásaramir voru stundum fuUónákvæmir í innkomum og héldu séreinkennum sínum um of tU streitu í samleik. En það sem gerði tón- leikana mest spennandi var að hér var um frumflutning að ræða. Allur leikur var svo innilega ferskur og laus við rútínuyfirbragð. Vera má að við hefð- um fengið slipaöri hljómsveitarleik ef hópurinn heföi komið hingað i lok Evrópuferðar en þá er líka hætta á aö eitthvað hefði skolast burt af fersk- leika þess frumlega og framsækna jass sem Charlie Haden og kompaní jusu yfir ánægöa áheyrendur í Háskólabíói — svo hörkufínum jassi að maður fyrirgaf þunghentum hljóðblandar- anum syndirnar. EM Taiió frá vinstri: Mick Goodrick, Paul Motian, Chariie Haden. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Gert út á spár og drauma Eftir því sem harðnar á dalnum æsast draumar og spár. Útvarpsum- ræðurnar — um stefnuræðu forsætis- ráðherra, svo og stefnuræðan sjálf, — beindu ekki athyglinni að neinum nýjum lausnum. Stjórnarliðið talaði af bjartsýni um hlutina. Stjórnar- andstaðan var svartsjTi. Þannig hef- ur þetta verið frá því fariö var að út- varpa umræðum upp úr 1930. Og þannig verður þetta enn um stund. Hins vegar eru nú tillögur uppi um 300% refsivexti í Seðlabankanum á sama tíma og ríkisbankarnir eru Iátnir standa undir löngum lánum hallaútgerðar sem verður ekki bjargálna á því að bankarnir fari á hausinn. Áætlanir fyrir það ár sem nú er að líða eru byggöar á spá Þjóð- hagsstofnunar sem gerð var fyrir margt löngu, en um hana gildh, eins og aðrar spár, að enginn ber ábyrgð á henni þótt tillögur í efnahagsmál- um hafi verið byggðar á henni, næst- um eins og áætlaðar tekjur og áætl- aður vöruskiptajöfnuöur lægi þegar á borðinu. Þjóöartekjur hafa sigið ískyggilega og einstök fyrirtæki iiggja . óseldan fisk fyrir tugi milljóna ei ekki hundruð. Þjóðhags- spár gera enga stoð í slíku ástandi. Það vekur athygli að menn skuli orða 300% refsivexti, að visu á fimmtánda stigi ófamaðar, í pen- ingamálum. Slík vaxtatala á sér marga digra bræður sem koma á undan henni. í sjálfu sér er með svona hugmyndum verið að veita innsýn í örvæntingarfullt hugarfar þeirra sem gerst vita um ástand pen- ingamála. Þessi örvænting samsvar- ar því aö hér verði ekki hægt að um- flýja hnm vegna þess að þjóðfélag er komið í stórastopp Iöngu áður en far- ið er að greiöa 300% refsivexti. Það er einmitt verið að lýsa yfir yfirvof- andi hruni með svona hugmyndum. Enginn þingmanna minntist á refsi- vaxtatillöguna. Hún var þeim of við- kvæmt mál. Hins vegar gátu þeir eytt tíma sínum í eitt af þeim sára- fáu skiptum sem þeir ná eyrum þjóðarinnar til að gera meiri spár og ráða fleiri drauma. Geir Hallgrímsson lýsti því yfir i útvarpinu að við værum að sigla hraðbyri inn í efnahagskerfi kommúnista. Þetta eru tímabær að- vörunarorð sem Svavar Gestsson svaraði með því að hann vissi að allir hinir skynsamari kjósendur ætluðu að kjósa Alþýðubandalagið. Hann var að auki sá eini mælenda sem tal- aði eins og kosningar væru á næsta leyti. Kannski hann viti það. Ríkis- stjórn, sem sumpart er mynduð út af hégómamálum, var auðvitað aldrei í stakk búin til að snúast við af snerpu, bæði fljótt og vel, gegn þeim áföllum sem hér hafa verið að skella yfir eitt af öðru. Fiskurinn er ekki lengur til í s jónum í því magni sem hann var og ætti raunar að selja eina fjörutíu skuttogara nú þegar. í vetur ræðst það af afla á grunnmiðum hvort ein- hver umtalsverður þorskur er eftir eða ekki. Má vera að eitthvað af Grænlandsþorski koml til hjálpar. Loðnan er horfin og ekki verður bætt úr því. Mikið af skreið hefur safnast upp í landinu sem framleiðendur sitja með og greiða háa vexti á bið- tímann. Mögulegt er, og reyndar lik- legt, að sama og ekkert seljist af henni á þessu ári. Svona árferði er alveg kjörið til að taka upp efnahagskerfi kommúnista. Það hreinlega bíður við dyrnar með þeim nýju viðhorfum sem því fylgja. Engin fyrirtæki þurfa að bera sig, aðeins ef þau eru í eigu ríkisins, og hver og einn verður að lifa eins og honum er skipað vegna þess að at- vinnu og launum er stjórnað aö ofan. Og loks þegar allir eru orðnir eigna- lausir og fátækir og tvö prósent landsmanna eru gengin í stjórnar- flokkinn þá er komið á hið fasta og varanlega ástand fátæktar og eymd- ar og hungurs. Það er þetta sem Svavar Gestson er að tala um þegar hann segir að hinir skynsamari kjós- endur kjósi Alþýðubandalagið næst. Þeir sem eiga eftir aö fara í sólar- landaferðina sina á þessu ári eða kaupa enn eínn nýjan bíl ættu að fara að hraða sér. Tækifærunum fer fækk- andi enda verður nú gert út á aðrar spár og aöra drauma en áður. Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.