Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1982, Blaðsíða 6
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER1982. 6 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Það er útbreiddur misskilningur að elliárin séu slæm og að aidraðir siu heimskir eða þurfí að verða ein mana. Féir verða heimskari með árunum og eiiin er góður tímt tíl að sinna áhugamáium. * msk-1 i ' Ws M $ :i \ | FORDOMAR UM ELLINA — vitleysa að gamlir þurfi að vera leiðir, einmana eða heimskir Þaö er skoöun margra að eitthvaö sé leiöinlegt viö þaö aö veröa gamall. Halda margir aö þá veröi maöur einmana, kalkaöur og óvinsæll. Þessi misskilningur veldur því aö margir líta á ellina sem æviskeiö án gleði og lífsgæða, áður en að henni kemur. Án þess að vita nægilega mikið um þennan „þriðja aldur” ævinnar þá erum við fljót aö segja ellina vera orsök ýmissa hluta. Oft heyrist sagt: „Æ, hún er svo gömul, hún skilur þetta ekki.” Er þar meö sagt að allir sem yngri eru m heföu skilið sama hlutinn? Það er oft ástæöulaust að kenna aldrinum um það sem úrskeiðis fer, þaö er oftast hægt að finna aðrar ástæður og líta á málið frá öðrum hliðum! Þriöji aldurinn eða árin frá 60—90 ára er sá hluti lífsins sem ný tilvera hefst hjá okkur. Það er gott aö skipuleggja þessi ár á einhvern hátt, þau eru hjá mörgum einstaklingum einu árin sem verulega er hægt að nota til að sinna áhugamálum. Ekki má álíta sem svo að allt sé slæmt við ellina. Þá minnkar kapp- hlaupið við timann, en þetta er mjög einstaklingsbundið. Það er flestum í sjálfsvald sett hvernig þeir verja árunum og hvenær menn gefa sér tíma til að sinna áhugamálum. Alla- vega er ekki ráölegt aö draga það í svo mörg ár aö áhugamálin falli niður. Þó koma oftast önnur þeirra í stað. Það er einmitt stór kostur við þriðja aldurinn, ef heilsan er góö þá eru þetta oft betri ár en þau sem á undan hafa gengið. (Þýtt og endursagt — RR) Að fá sér permanent, lltun, strípur eða klippingu gefur alltaf nýtt Utllt og veitir andlega vellíðan. OLÍA í HÁRIÐ - EDIK í SKOLVATN — ýmsar ráðleggingar varðandi hár Oft heyrist sagt: „Þessi þarf ekkert að gera fyrir háriö á sér, það er alltaf fallegt.” En það er staðreynd aö allir þurfa að þvo hár sitt og getur hárþvott- ur haft mikil áhrif á útlit hársins. Þaö er ekki gott að nota alltaf sama sjampóið. Hámæring er nauösynleg eftir hárþvott, einkum á lituðu hári. Hárnæring er góð fyrir allt hár, en það má ekki nota mikið af henni eftir hvem hárþvott, þá vill hárið fitna fyrr. Best er að nudda næringunni vel í enda hársins. Það era ýmis góð ráð til fyrir þá sem hafa tíma til að gefa hárinu sérstaka meðferð. Þá er einnig bent á ýmislegt sem mörgum kemur ekki til hugar eins og að breyta vemlega til og skipta al- gerlega um greiðslu eða klippingu. Jafnvel að lita hárið, fá í þaö strípur eða permanent. Kostnaður við slíkt er gefinn upp. 1. Þvoðu hárið daglega ef það fitnar fljótt — fitugt hár er aldrei aölaö- andi. Best er að þvo hárið að morgni. 2. Besta hámæringin fyrir slitið, „dautt” og þurrt hár er ólífuolía, majones eða eggjahvítur. Hvað af þessu sem notað er þá haföu það i hárinu í 20 minútur, þvoöu þaö úr mildu s jampói og notaðu borðedik í skolvatnið. 3. Ertu með fíngert barnahár? Hafðu þá endilega permanent í því til að fá meiri lyftingu í það. Permanent kostar frá 380 krónum í 450 krónur, efháriðersítt. 4. Gamalt franskt ráö fyrir klofna hárenda er: Taktu smáhárbrúsk snúðu upp á hann (þéttingsfast), strjúktu síðan snúningslengjuna niður á við (frá endanum að hárs- rót), þannig færðu þessa fíngerðu slitnu enda til aö standa út og renndu síöan kertaioga hratt um þá(óþarft ætti að vera að taka fram að ef einhver lesenda hefur áhuga á að reyna þetta franska ráð — þá verður að fara mjög gæti- lega). 5. Hægt er að fá í snyrtivöruverslun- um glitrandi „gel” til að strjúka yf- ir hárið fyrir kvöldsamkvæmið og gerir það hárið sérlega „sam- kvæmislfigt”. 6. Strípur eru ennþá sígildar til að lífga upp á hárið. Hafðu þær þó þunnar. Fyrir grannleitar á að hafa meira af strípum í hliðunum en ofan á hvirflinum, þaö gefur andlitinu meiri fyllingu. Til að virka langleitari er best að hafa meira af strípum ofan á hvirflinum en í hliðunum. Strípur kosta 290— 400 kr. 7. Athugaðu möguleika hártoppa. Hártoppar geta gert kraftaverk, bæði fyrir þær þunnhærðu og einn- ig hinar til að gefa sérstakan stíl fyrir spennandi tækifæri. 8. Þurfirðu að fara í boð snögglega og hárið er ómögulegt, hreint en „lúpulegt”, sáldraðu smá talkúmi yfir hárið og burstaðu þaö síðan vel með bursta sem færður hefur verið í nælonsokk. 9. Láttu klippa hárendana a.m.k. fjórða hvern mánuð til að fá meiri rækt í hárið. 10. Er hárið á þér orðið of ljóst af of miklum strípum? Athugaöu þá að hægt er að fá dökkar strípur ekki síöur en ljósar. 11. Beygðu þig fram og burstaðu hárið vel í áttina að gólfinu, sveigðu síð- an höfuöið aftur og lagaðu hárið að- eins til. Þessi aðferð fær hárið til að liggja ekki eins „klesst” að höfð- inu. 12. Mikilvægt atriöi: hafðu ekki sömu hárgreiðsluna árum saman. Að fá sér permanent, litun, strípur eða klippingu gefur alltaf nýtt útlit og veitir andlega vellíöan. Hárlitun kostar um 250 krónur en klipping 130—190 ef blásið er einnig. 13. Þær ljóshæröu geta lýst á sér hárið með því að greiða sítrónusafa í hárið meðan verið er í sólbaði. 14. Til þess að hárið virki einstaklega hreint er ágætt ráð að bursta hársrótina mjög vel með hörðum bursta áður en hárið er þvegið, núa síðan sjampói vel í hársvörðinn, þannig næst upp flasa, dautt skinn og óhreinindi sem oft verða eftir við fljótfæmislegan hárþvott. 15. Sagt er aö fiskur skerpi heila- sellumar, en að borða fisk hefur einnig mjög góð áhrif á hárið. 16. Þegar þú sefur ein(n) notaðu þá tækifærið og gefðu hárinu extra þjónustu: Nuddaöu í það hreinni ólifuolíu eða kókoshnetuolíu, sofðu síðan með baðhettu. Þvoist vel úr að morgni og árangurinn lætur ekkiásérstanda. 17. Ekkert fær hár til að glansa eins mikiö og ef það er skolaö upp úr ediki. Borðedik er best fyrir ljóshært fólk en vínedik fyrir dökkhærða. Blöndunin skal vera tveir hlutar vatns á móti einum hluta ediks. Hellist yfir vel skolað hár. 18. Ekki nota heitan hárblásara á viðkvæma hárendana. Þurrkaðu endana með blásaranum þangað til þeir eru næstum þurrir. 19. Geföu máttlausu hári extra lyftingu með því að núa „geli” í hárið við hársvörðinn eftir aö hafa þurrkað það vel með handklæöi. Láttuhárið (með gelinu) þoma vel og burstaðu það síðan. 20. Ljóst hár mun haldast fallega „upplitað” eftir sumarsólina með því aö skola það úr kamillutei eftir hvern hárþvott. -RR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.